Fréttablaðið - 24.09.2008, Side 1

Fréttablaðið - 24.09.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000 MIÐVIKUDAGUR 24. september 2008 — 260. tölublað — 8. árgangur Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447 s ng Mjódd Verktakinn og fararstjórinn Örn Kjærnested hefur haft óbilandi áhuga á útivist og ferðalögum alla tíð. Hann byrjaði í skátunum sembarn og var k sig í Madonna di Campiglio, einum þekktasta skíðabæ Ítalíu. Þar hefur hann dvalið á hverju ári íðtíu á halda jólin þar í fimmta sinn m ðfjölskyld i Í Paradís að sumri sem vetri Örn Kjærnested stundar útivist og ferðamennsku af miklum móð. Hann þekkir suma staði betur en aðra og í fjallaþorpinu Madonna di Campiglio á Ítalíu er hann öllum hnútum kunnugur. Örn fer með gönguhópa um Dólómítafjöll á hverju sumri. Hér heldur hann á potti sem er notaður til að elda á hlóðum. MYND/ÚR EINKASAFNI ENDURVINNSLUVIKA var haldin í fyrsta sinn á Íslandi í síðustu viku. Samkvæmt nýrri könnun hefur hlutfall þeirra sem flokka sorp til endurvinnslu hækkað frá árinu 2006, en þá flokkuðu 84 prósent sorp. Nú flokka um 91 prósent sorp til endurvinnslu. ÖRN KJÆRNESTED Kann best við sig í Madonna di Campiglio • ferðir • heimili • bílar Í MIÐJU BLAÐSINS Blöndunartæki MORA INXX Baldursnesi 6 Akureyri Sími 414 1050 Smiðjuvegi 76 Kópavogi Sími 414 1000 Opið virka daga frá 8 -18 laugardaga frá10 -15 Í minningu vinar Gunnar Kvaran heldur Bach-tónleika í Krists- kirkju í minningu Úlriks Ólasonar og til styrktar org- elsjóði kirkjunnar. TÍMAMÓT 18 KAFLASKIPTI Á WALL STREET Fjárfestingarbankar hverfa Markaðurinn FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG Ragna Sara JónsdóttirSamfélagsleg ábyrgð fyrirtækja 6 5 Sögurnar... tölurnar... fólkið... Miðvikudagur 24. september 2008 – 39. tölublað – 4. árgangur Endalok fjárfestingarbankaHeyra þeir brátt sögunni til? 4 Veffang: visir.is – Sími: 512 5000 H E L S T Í Ú T L Ö N D U M Allt á hliðina | Mikil lækkun var á alþjóðlegum hlutabréfa-mörkuðum í gær og í fyrradag. Skellurinn skýrist af hagnaðar-töku fjárfesta eftir mikla hækk-un vestanhafs á föstudag og efa-semdir um að björgunaraðgerð-ir bandarískra stjórnvalda muni nægja til að slá á hrakspár um samdrátt í Bandaríkjunum. Olíu-verð rauk upp í kjölfarið. Traust kerfi | Henry Paulson fjármálaráðherra sagði undir lok síðustu viku að bandarískt fjármálakerfi væri í grundvallar-atriðum traust. Hann taldi ekki sjá fyrir endann á fjármálakrepp-unni fyrr en fasteignamarkaðir í Bandaríkjunum rétti úr sér. Heimskur banki | Bankinn KfW hefur hlotið titilinn heimskuleg-asti banki Þýskalands eftir að í ljós kom að hann setti rúmlega 30 milljarða króna inn í Lehman Brothers aðeins tveimur tímum áður en bankinn var lýstur gjald-þrota fyrir rúmri ik Þrjátíu milljó i Vistvænn kostur! Sjeikinn í KaupþingiHver er maðurinn? „Björgunaraðgerðir stjórnvalda munu kosta bandaríska skatt-greiðendur mun minna en ef ekkert hefði verið gert,“ sagði Henry Paulson fjármálaráð-herra í vitnaleiðslu fyrir banka-málanefnd bandaríska þingsins í gær. Þar sat hann til svara ásamt Ben Bernanke seðlabankastjóra og Christopher Cox, forstjóra bandaríska fjármálaeftirlitsins. Paulson gerði þar grein fyrir verðfalli á fjármálamörkuðum og þrengingum á fasteignamark-aði vestra og mikilvægi þess að ríkið gripi til aðgerða til að fyrir-byggja frekari hremmingar. „Við verðum að grípa til að-gerða gegn annarri bólumyndun og fjáraustri í öðrum geirum,“ sagði Paulson enn fremur. - jab Mikilvæg aðgerð RÁÐHERRANN OG BANKASTJÓRINN Henry Poulson, fjármálaráðherra Bandaríkjanna og Ben Bernanke seðla-bankastjóri. MARKAÐURINN/AP Björn Ingi Hrafnsson skrifar „Með því að gengisvísitalan fari upp fyrir 180 stig hafa ræst svörtustu spár um krónuna frá því í vor,“ segir Ólafur Ísleifsson, lektor við Háskólann í Reykjavík, en gengisvísitala íslensku krónunnar rauf 180-stiga múrinn í fyrsta sinn í gær og hefur krónan aldrei verið veikari. „Stjórnvöld mega ekki láta undan dragast að grípa til úrræða til að auka framboð á gjaldeyri, efla traust á íslensku efna- hagslífi og styrkja verðmyndun á krónunni sem komin er langt frá því sem telja má eðlilegt jafn- vægisgengi,“ segir Ólafur.Eiríkur Guðnason seðlabankastjóri segir bank- ann ekki hafa upplýsingar um ástæður óróans, en gengisvísitalan steig hratt í gær og fyrradag. Vil- hjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka at- vinnulífsins, segir mörg fyrirtæki komin í vand- ræði út af þessari þróun og menn bíði sífellt þess að botninum sé náð. Enn sé mikil óvissa á mörkuð- um í Bandaríkjunum og við Íslendingar séum að gjalda fyrir það. Greiningardeild Kaupþings segir í hálffimm- fréttum sínum, að á meðan óvissa ríki um krónu- bréf megi ætla að fjárfestar haldi að sér hönd- um og gæti krónan því veikst frekar á næstunni. Þýski þróunarbankinn KfW, sem er næststærsti krónubréfaútgefandinn til þessa, tilkynnti á mánu- dag um tveggja milljarða króna viðbótarútgáfu í flokki krónubréfa, samkvæmt greiningu Glitnis. 27,5 milljarðar hafa fallið á gjalddaga í septemb- er. Heildarútistandandi krónubréf nema nú um 306 milljörðum króna, en næsti gjalddagi er 6. október næstkomandi en þá fellur á gjalddaga 29 milljarða króna útgáfa Evrópska fjárfestingarbankans. Svörtustu spár um krónuna hafa ræstJöklabréfum á gjalddaga kennt um fall krónunnar, einnig skorti á gjaldeyri og óvissu um ástand á heimsmarkaði. Útistandandi krónubréf nema nú 306 milljörðum króna. SIGRÚN HJÁLMTÝSDÓTTIR Tekur ástfóstri við Rússland Tók upp plötu með Terem-kvartettinum FÓLK 30 Hörður til Keflavíkur Hörður Axel Vilhjálmsson er genginn á ný til liðs við Keflavík eftir stutt stopp í Afríku. ÍÞRÓTTIR 26 Abba-sýning til Íslands Hljómsveitin Arrival syngur og leikur vinsælustu Abba-sýningu heims á Íslandi í nóvember. FÓLK 30 VEÐRIÐ Í DAG ROFAR TIL VESTRA Í dag verða sunnan eða suðvestan 5-13 m/s. Talsverð úrkoma suðaustanlands en annars úrkomuminna, styttir víða upp vestan til seinni partinn. Hitinn verður á bilinu 7-14 stig. VEÐUR 4 9 12 13 11 10 SAMFÉLAGSMÁL „Það má segja að Laugardælir séu heldur betur komnir á kortið,“ segir Kristinn Ásgeir Friðfinnsson, sóknarprestur Hraungerðisprestakalls og því prestur í Laugardælakirkju, en mikil umferð hefur verið í Laugar- dælakirkjugarð síðan Bobby Fis- cher var borinn þar til grafar. Um 30 manns búa í Laugardælum sem er um kílómetra frá Selfossi. „Það kom oft fyrir í júlí og ágúst að það komu jafnvel tvær rútur á dag. Svo virðist sem nokkrar ferða- skrifstofur hafi gert smá lykkju á hringveginn til að koma okkur inn á hann. Svo er mikið um það að Íslend- ingar fari að leiðinu um helgar.“ Haraldur Þórarinsson, kirkju- garðsvörður og íbúi í Laugardæl- um, segir íbúa þar ekki hafa nýtt sér þessa umferð. „Hann liggur nú hér þar sem hann vildi fá að vera í friði svo það væri varla við hæfi,“ segir hann. En presturinn hefur fengið sinn skerf af athyglinni. „Blaðamenn frá Daily Times og Sunday Times hafa talað við mig en það sem vekur athygli þeirra er að hann skyldi hafa verið grafinn án vitundar sókn- arprestsins, það finnst þeim afar athyglisvert,“ segir Kristinn. - jse Mikil umferð er að leiði Bobbys Fischer í Laugardælakirkjugarði: Fischer kom Laugardælingum á kortið HVAR ER HLUTVERKIÐ MITT? Þeir Árni Beinteinn og Davíð Kristján mættu í áheyrnarprufur fyrir uppfærslu Þjóðleikhússins á Kardemommubænum í gær. Örn Árnason, Rúnar Freyr Gíslason og Kjartan Guðjónsson fara með hlutverk Kaspers, Jespers og Jónatans. Sigurður Sigurjónsson leikur Tóbías í turninum og Selma Björnsdóttir leikstýrir. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Engin svör Ólafur F. Magnússon lýsir eftir upp- lýsingum um kostnað fyrirtækja vegna borgarfulltrúa. UMRÆÐAN 16 PENINGAMÁL Svörtustu spár frá í vor um íslensku krónuna hafa ræst að sögn Ólafs Ísleifssonar, lektors við Háskóla í Reykjavík. Í gær fór gengisvísitala krónunnar í fyrsta skipti yfir 180 stig. Ástæða gengisfalls krónunnar er af sérfræðingum að hluta rakin til mikillar óvissu um frekari útgáfu svokallaðra krónubréfa. Í augnablikinu nema útistandandi krónubréf 306 milljörðum króna. Greiningar- deild Kaupþings segir að á meðan óvissa sé um þróun krónabréfa megi búast við frekari veikingu krónunnar. Eiríkur Guðnason seðlabanka- stjóri segir bankann ekki hafa upplýsingar um ástæður óróans í kringum krónuna. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir Íslendinga gjalda fyrir óvissu í Bandaríkjunum. - bih / sjá Markaðinn Fall íslensku krónunnar: Svörtustu spár frá í vor rættust LÖGREGLUMÁL Þrír starfsmenn hótelsins Extreme í þorpinu Caparete í Dóminíska lýðveldinu hafa verið handteknir vegna morðsins á Hrafnhildi Lilju Georgsdóttur, samkvæmt upp- lýsingum sem Fréttablaðið hefur frá upplýsingadeild lögreglunnar þar í landi. Hrafnhildur var fram- kvæmdastjóri hótelsins. Eins manns til viðbótar sem grunaður er um aðild að málinu er leitað. Hrafnhildur fannst látin í fyrradag inni á baðherbergi á hótelherbergi en hún hafði verið stungin á öxl, hendi og brjóst og einnig hlotið áverka á höfði. Lög- reglan telur að morðið hafi verið framið á sunnudag. Það var samstarfsstúlka Hrafn- hildar sem kom að henni en hún vildi athuga með hana þar sem hún hafði ekki séð til hennar síðan á laugardag. Herbergi hennar var læst þegar að var komið en stúlkan hafði uppi á aukalykli að herberginu. Sam- kvæmt vef- fréttamiðlin- um El Nacional er þetta annað alvarlega glæpamálið á innan við viku á þess- um slóðum þar sem fórnarlambið er fram- kvæmdastjóri hótels. Í síðustu viku var framkvæmdastjóra eins hótels rænt en mannræningjarn- ir tóku hann úr bifreið sinni og við það viðbeinsbrotnaði hann og hlaut meiðsl á hálsi. Síðastliðinn sunnudag létust síðan tveir af fjórum mannræningjanna í aðgerðum lögreglunnar. Hrafnhildur var 29 ára, ógift og barnlaus. Hún hafði síðan í apríl síðastliðinn ferðast um heiminn. Fór hún til Ástralíu, Dubai og síðan til Dóminíska lýðveldisins. Sérstök minningarsíða um Hrafn- hildi hefur verið opnuð á face- book-vefsíðunni og höfðu vel á annað hundrað manns skráð sig þar inn í gærkvöldi. - jse Þrír handteknir vegna morðs Lögreglan í Dóminíska lýðveldinu rannsakar morð á íslenskri konu. Þrír samstarfsmenn hennar hafa verið handteknir og eins manns er leitað. Framkvæmdastjóra annars hótels á svæðinu var rænt í síðustu viku. HRAFNHILDUR LILJA GEORGSDÓTTIR DÓMINÍSKA LÝÐVELDIÐ HAÍTÍ Puerto Plata Santo Domingo Port-au-Prince Santiago CABARETE KARÍBAHAF EYJAN HISPANIOLA Í KARÍBAHAFI

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.