Fréttablaðið - 25.09.2008, Blaðsíða 25
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Gæðaefni, tilgerðarlaus snið með
smá tvisti og falleg smáatriði höfða
til Katrínar Ólínu Pétursdóttur,
vöruhönnuðar og listamanns. „Ég
fæ ekki leiða á slíkum flíkum á
meðan aðrar geta dagað uppi inni í
skáp,“ segir Katrín. Hún skaut sér
inn í búð í mýrarhverfinu í París í
ausandi rigningu á vormánuðum
og féll þá fyrir grárri slá sem ein-
mitt er þessum eiginleikum búin.
„Búðin var teppalögð og enginn
inni í henni nema fýldur afgreiðslu-
maður. Á fóninum var dáleiðsluleg
frönsk kvikmyndatónlist og þarna
hékk slá sem talaði til mín. Ég sló
til og keypti hana, fékk meira að
segja afslátt og hef verið í henni í
allt sumar.“
Sláin er hönnuð af Christopher
Lemaire, einum aðalhönnuði
Lacoste. „Það er eitthvað sportlegt
en í senn gamaldags við hana sem
gerir hana rómantíska og frjáls-
lega. Hún er þægileg og nytsamleg
en mér finnst skipta mestu máli að
líða vel í fötunum mínum. Þá finnst
mér hiklaust þess virði að fjár-
festa í yfirhöfnum og góðum
skóm.“
Silkiklúturinn sem Katrín ber
við slána er hluti af smávörulínu
hennar og fæst meðal annars í
Belleville og Saltfélaginu en Katrín
hefur ýmislegt annað á sinni
könnu.
Á laugardaginn verður opnuð
samsýningin ID-LAB í Hafnarhús-
inu þar sem hún sýnir 85 fermetra
teikningu og hreyfimyndaverk.
Auk þess er hún þátttakandi í sýn-
ingunni 8+8 í Hafnarfirði en þar
má sjá samvinnu hennar og steypu-
stöðvarinnar Mest í steyptum
garðbekk og kolli. Þá verður hún
með sýningar ásamt öðrum Íslend-
ingum í Tallin og Helsinki nú um
mánaðamótin. vera@frettabladid.is
Tilgerðarlaus með tvisti
Gamaldags, sportleg, rómantísk, nytsamleg og þægileg slá eftir Christopher Lemaire talaði til Katrínar
Ólínu Pétursdóttur í ausandi rigningu í París á vormánuðum. Hún hefur gengið í henni allar götur síðan.
Katrín fær ekki
leiða á tilgerðar-
lausum flíkum
úr gæðaefnum.
ÁHÆTTUREIKNIR HJARTAVERNDAR , sem er að finna
undir slóðinni hjartarannsokn.is, metur áhættu einstaklings á að fá
hjartasjúkdóm á næstu tíu árum. Vanti rétt gildi til að setja inn í reikn-
inn má nálgast þau á heilsugæslustöð viðkomandi aðila. Einnig er vel-
komið að koma í áhættumat til Hjartaverndar.
FR
ÉT
TA
B
LÐ
IÐ
/A
R
N
ÞÓ
R
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Patti lagersala
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
í 4
mism
unand
i áklæ
ðum
Bjóðum
1 5 tun
gusófa
verð áður 139.000
kr.69.000,-
á aðeins
yfir 200 gerðir af sófum
VERÐHRUN
HEILSUSETUR ÓRGUNNU
bur uppá haust tilbo
á einkatímum og
áhugaver námskei
Ungbarnanuddnámskei 2 okt. og 6 nóv. ver kr. 12.000
Indverskt höfu- og Andlitsnudd 4ja okt. og 13 nóv. ver kr. 15.000
Baknudd- rstipunktar 1-2 nóvember ver kr. 19.000
Kynningarnámskei í svæanuddi 7 október ver kr. 22.000
einkatímar
Indverskt höfu- og andlitsnudd me sérvöldum ilmolíum
Baknuddmefer me rstipunktum og ilmolíum
Svæanuddmefer á vibragssvæi fóta
Ver einkatíma 30 mín kr. 3.000 og 60 mín kr. 6.000
Hómópatamefer frá 4.000 kr. me “remedium”
faglærur kennari -meferaraili melimur í BIG SMFI FÍSH
skoau www.heilsusetur.is og vertu velkomin a hafa samband á prema@mmedia.is og í
síma 896-9653