Fréttablaðið - 26.09.2008, Blaðsíða 43
FÖSTUDAGUR 26. september 2008 23
75 ára afmæli
Hjartans þakkir til ykkar allra sem
gerðuð mér 75 ára afmælisdaginn
þann 14. september ógleymanlegan.
ABC barnahjálp hefur móttekið
framlag ykkar með þökkum.
Guð og gæfan fylgi ykkur öllum.
Marinella Ragnheiður
Haraldsdóttir
70 ára afmæli
70 ára í dag
Haraldur
Sigurgeirsson
Grundarhvarfi 3, Kóp.
Er staddur erlendis.
30 ára afmæli
Sigurjóna S.
Sigurjónsdóttir
er þrítug í dag.
IWH – til hamingju
með nýju átöppunarverksmiðjuna
Við óskum IWH hjartanlega til hamingju með nýju 7.000 m2
átöppunarverksmiðjuna í Ölfusinu.
Starfsfólk JÁVERKS þakkar IWH og samstarfsaðilum sínum fyrir
frábært samstarf og við erum stolt af því að hafa fengið að vera
þátttakendur í uppbyggingu þessarar nýju umhverfisvænu stóriðju.
JÁVERK annaðist alla hönnun og fullnaðarfrágang mannvirkisins.
Verkið hófst í maí 2007 og IWH hefur nú framleiðslu í þessu glæsilega
mannvirki. Fyrirtækið framleiðir og flytur út íslenskt vatn undir
vörumerkinu Iceland Glacial. Gert er ráð fyrir að um 40 manns starfi í
nýju verksmiðjunni í Ölfusi. Til viðbótar starfa um þessar mundir um
30 manns hjá félaginu í Bandaríkjunum og 10 manns í Bretlandi.
Gagnheiði 28
IS-800 Selfoss
Sími +354 480 1700
Fax +354 480 1701
www.javerk.is
icelandicglacial.com
AFMÆLI
SERENA
WILLIAMS
tennisspilari
er 27 ára.
Kvennasögusafnið leitar
eftir nöfnum stúlkna sem
voru á myndum er fylgdu
Teofani-sígarettum á árun-
um 1929 og 1930. Safnið á
nokkrar ómerktar mynd-
ir og biður lesendur Frétta-
blaðsins um aðstoð. Á vef
Kvennasögusafnsins, www.
kvennasogusafn.is/Teofani/
Teofani/Teofani.htm, er
hægt að skoða allar mynd-
irnar. Ef einhver ber kennsl
á stúlkurnar er hann beð-
inn að hafa samband við
Kvennasögusafnið í síma
525 5779 eða í tölvupósti á
netfangið audurs@bok.hi.is.
Þekkir ein-
hver þessar
stúlkur?
Eldur og ís er yfirskrift tón-
leika Sinfóníuhljómsveitar
Íslands sem verða haldnir í
Háskólabíói í kvöld, en þar
munu hljóma verk sex ís-
lenskra tónmeistara tuttug-
ustu aldar.
Tilefni tónleikanna er
fyrirhuguð tónleikaferð
hljómsveitarinnar til Japan,
en auk íslenskrar tónlist-
ar verða meðal annars allar
sinfóníur Sibeliusar fluttar í
þeirri ríflega þriggja vikna
ferð.
Tveir úr hljómsveitinni
leika einleik á tónleikunum í
kvöld. Ari Þór Vilhjálmsson
fer með einleikshlutverkið
í verðlaunaverki Hafliða
Hallgrímssonar, Poemi. Þá
spilar Hallfríður Ólafsdótt-
ir á flautu í divertimentói
Þorkels Sigurbjörnssonar,
Kólumbína.
Íslenskir tónar
Hallfríður Ólafsdóttir flautuleikari
leikur einleik í kvöld.