Fréttablaðið - 28.09.2008, Blaðsíða 46
8 FERÐALÖG
UPPÁHALDSHVERFIÐ? Ég bý í West End,
þekki þann hluta borgarinnar best og held
mest upp á það hverfi. West End er frábær
hluti Glasgow-borgar, háskólahverfi með
mörgum góðum stöðum og í raun er synd
að Íslendingar sem koma til Glasgow fara
sjaldan þangað.
UPPÁHALDSVEITINGASTAÐURINN? Án efa
No16 á Byres Road númer 16 í West End.
Það er lítill skosk-ítalskur staður, með frá-
bærum mat og ekki mjög dýr. Svo leist mér
líka mjög vel á nýopnaðan stað í hverfinu
sem heitir LaVallee Blanche við sömu götu,
hann er skosk-franskur. Heart Buchanan er
góður delicatessen-staður, líka í West End.
BESTU BARIRNIR? The Butterfly
and the Pig er mjög skemmti-
legur pöbb/veitingastaður niðri
í bæ. Þar er hægt að fá mjög
góðan pöbb-mat og hlusta á
lifandi tónlist um helgar. Mjög
skemmtileg stemning. Niðri í bæ er
líka skemmtilegur kokkteila-
staður sem heitir The
Blue Dog. Fyrir þá allra
hörðustu sem vilja
halda áfram eftir að
pöbbunum er lokað
mæli ég með Sub
Club. Í hverfinu mínu mæli ég með Tenn-
ents og The Lismoree sem eru ekta pöbbar
með góðum bjór. Svo eru margir staðir við
Aston Lane sem gaman er að heimsækja.
SKEMMTILEGAST AÐ SKOÐA? Ég mæli
með Dómkirkjunni og Necropolis sem
er gamall kirkjugarður þar við. Háskóla-
byggingin er líka mjög falleg og vel þess
virði að skoða. Rétt hjá henni er Kelving-
rove-listasafnið fyrir þá sem hafa áhuga á
að skoða söfn. Svo er Glasgow auðvitað
heimabær fótboltafélaganna Rangers og
Celtic. Það er mjög gaman að kíkja á leik
á Ibrox, heimavöll Rangers, eða Parkhead,
heimavöll Celtic.
BESTI HLAUPATÚRINN? Þegar ég fer
út að skokka fer ég í Kelvingrove Park
og hleyp meðfram Kelvin-ánni og að
grasagarðinum, þetta er nokkuð vinsæl
hlaupa- og gönguleið.
BESTU VERSLANIRNAR? Fyrir þá sem
eru að versla eru verslunar-
göturnar Sauchiehall
Street, Buchanan Street
og Argyle Street frá-
bærar og þar er allt að
finna, eins og kannski
margir Íslendingar vita.
HEIMAMAÐURINN
Glasgow, Skotlandi
VIGNIR HELGASON
N
ú fara skíðafríin að bresta á í
vetur og fólk fer að flykkjast til
Austurríkis, Sviss og Ítalíu. En
fyrir þá sem vilja bregða út af
vananum býður Íran upp á fyrsta flokks
skíðasvæði og magnaða menningu. Í Teher-
an blasa við tignarleg fjöll með snæviþökt-
um toppum og í kringum borgina í Alborz-
fjöllunum eru fjögur stór skíðasvæði.
Dizin International Skiing Area er
stærsta og besta svæðið í Alborz-fjöllunum
og skemmtilegt hvernig „International“ er
tekið fram í nafninu. Þetta gæti verið
hvaða skíðasvæði sem er í Evrópu eða
Bandaríkjunum og fólkið eins, þó að
skammt undan í borginni sé allt aðra menn-
ingu að finna.
En Dizin hefur upp á allt það besta að
bjóða. Brattar brekkur, frábæran snjó, nóg
af púðursnjó og helsti kosturinn er samt sá
að þó að Alborz-fjöllin séu sambærileg við
Alpafjöllin eru þau laus við túrisma. Raðir
í lyftur eru nánast engar og brekkurnar
ekki troðnar af fólki.
Fyrir þá sem vilja smá ævintýri í skíða-
fríið sitt mælum við með Íran þar sem
hægt er að heimsækja Teheran, skoða æva-
fornar moskur og hallir, drekka te á tehús-
um, kíkja á markaði og upplifa persnerska
menningu í leiðinni.
ÖÐRUVÍSI SKÍÐAFRÍ
Snæviþakin Alborz-fjöllin gnæfa í baksýn Teheran.
ÞAKKARGJÖRÐAR-
HÁTÍÐ Í BOSTON
VERÐ 99.900 KR.*
Á MANN Í TVÍBÝLI.
27. NÓV. –1. DES.
LOKKANDI TÆKIFÆRI TIL AÐ BORÐA GÓÐAN MAT
OG GERA FRÁBÆR INNKAUP
Njóttu þess að vera í hátíðarstemmningu með Icelandair
í Boston þar sem Sólveig Baldursdóttir, ritstjóri Gest-
gjafans, leiðir hópinn eins og undanfarin ár.
Útsölur í Boston byrja 28. nóvember. Flestar verslanir eru
opnaðar mun fyrr en venjulega, sumar kl. 5:00 að morgni,
og vöruúrval í bandarískum verslunum er ótrúlegt!
Tryggðu þér sæti í tíma! Síðast komust færri að en vildu.
+ Nánari upplýsingar eru á www.icelandair.is
* Innifalið: Flug, rúta til og frá flugvelli erlendis, gisting á Courtyard by Marriot Boston Tremont Hotel í 4 nætur, þakkargjörðarkvöldverður á Avila Restaurant, skoðunarferð um borgina í rútu með íslenskum fararstjóra, íslensk fararstjórn og flugvallarskattar.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
C
E
4
38
07
9
/0
8
Ferðaávísun gildir