Fréttablaðið - 01.10.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
EFNAHAGSMÁL Gengi krónunnar
féll um ríflega fimm prósent í gær
og hefur það aldrei verið lægra.
Ólíklegt er talið að ríkið geti í bráð
losað sig við 75 prósenta hlut sinn í
Glitni, en stjórnvöld segjast ekki
ætla að eiga hlutinn til langframa.
Þetta kemur fram í nýju mati Fitch
Ratings á Glitni.
„Virðist sem téð matsfyrirtæki
álíti að íslenska ríkið hafi tekið sér
stærri bita í munn en það nái að
kyngja varðandi fjármögnun hins
nýja ríkisbanka á næstu mánuð-
um“, er niðurstaða greiningar-
deildar Kaupþings í kjölfar þess
að erlend matsfyrirtæki hafa hvert
af öðru sent tilkynningar um lækk-
un á lánshæfiseinkunn íslenska
ríkisins. Moody‘s lækkaði nú síðast
lánshæfiseinkunn Glitnis og íhug-
ar að lækka einkunnir hinna stóru
bankanna.
Greiningardeild Kaupþings
segir jafnframt að yfirtaka ríkis-
ins á Glitni sé auk þess talin tak-
marka svigrúm ríkisins til þess að
bregðast við öðrum lausafjár-
vandamálum í íslensku fjármála-
kerfi.
Gengi krónunnar hefur fallið
næstum stöðugt allt undanfarið ár.
Virði hennar er aðeins ríflega
helmingur þess sem það var fyrir
réttu ári. Danska krónan kostar nú
tuttugu íslenskar og japanska jenið
er komið upp í heila krónu.
Verðmæti hlutar ríkisins í Glitn-
is jókst um 116 milljarða króna í
gær, en þá hófust að nýju viðskipti
með hlutabréf í bankanum. Tap
annarra hluthafa Glitnis nemur
hátt í 170 milljörðum króna eftir
gærdaginn. Þorsteinn Már Bald-
vinsson, stjórnarformaður Glitnis,
sagði í viðtali við Kastljós í gær-
kvöldi að stærstu mistök sem hann
hefði gert lengi, hefðu verið að
leita til Seðlabankans vegna vand-
ræða Glitnis.
Þorsteinn segir að Davíð Odds-
son og Geir H. Haarde hafi sett
afarkosti án þess að meta veð fyrir
láni til Glitnis.
Davíð hafi boðað til blaðamanna-
fundar áður en helstu hluthafar í
Glitni höfðu undirritað samkomu-
lag um að ganga að tilboði ríkisins,
þvert á loforð um annað frá
bankanum.
Viðskipti með þrjá sjóði bankans
hefjast aftur í dag. Öll skuldabréf
Stoða, sem eru í greiðslustöðvun
hafa verið tekin úr úr sjóðunum.
- shá, ikh / sjá síður 2, 4, 6 og Markaðinn
Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
1. október 2008 — 267. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
Húsaskjól fyrir
vegalaus dýr
Dýrahjálp Íslands
vinnur að því
að setja á fót
dýraathvarf.
TÍMAMÓT 18
TÓMAS R. EINARSSON
Spilaði á djasshátíð á
slóðum Drakúla greifa
• bílar • ferðir
Í MIÐJU BLAÐSINS
Jacchigua
Danssýning fyrir alla fjölskylduna
í Salnum 4., 5., 8., 10. og 11. okt.
Miðasala á salurinn.is og í síma 570 0400
Komdu á risastóraopnunarhátíðokkar í Grafarvogi
þann 4. október kl. 8
Korputorg
112 REYKJAVÍK
Minnist
Hrafnhildar
Friðrik Ómar heldur
styrktartónleika til
minningar um Hrafn-
hildi Lilju Georgs-
dóttur.
FÓLK 30
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
DÍSILBÍLAR eru sjötíu prósent allra nýrra bíla í Noregi.
Hollustuverndin í Noregi hvetur fólk til að kaupa frekar dísil-
bíla og segir þá ekki hafa jafn skaðleg áhrif á heilsu fólks og
umhverfið og bensínbílar. Hlutfall dísilbíla af nýjum seldum
bílum er hæst í Noregi af öllum Evrópulöndunum.
Bassaleikarinn Tómas R. Einars-
son hélt með latínkvartett sinn til
Rúmeníu í lok ágúst og spilaði þar
á djasshátíð í borginni Brasov í
Karpatafjöllum. Þar komst hann í
návígi við sjálfan Drakúla„Við skoð ð
myndin að Drakúla greifa var í
haldi um tíma. Það eru margar
aldir síðan sá grimmi maður sat
þarna járnaður en það kemur ekkií veg fyrir að ferð
nokkra diska af Romm Tomm
Tomm og gaf framkvæmdastjóra
djasshátíðarinnar í Braso iHa
Djassað fyrir DrakúlaTómas R. Einarsson og latínsveit hans spiluðu nýlega á djasshátíð í Brasov í Rúmeníu og heimsóttu
kastala Drakúla í næsta nágrenni. Tómas er ekki frá því að augntennur hans hafi lengst í heimsókninni.
Tómas og félagar þrömmuðu upp í kastala þar sem fyrirmyndin að Drakúla greifa var í haldi um tíma og fundu augntennurnar
lengjast.
MYND/ÚR EINKASAFNI
KAUPMANNAHÖFN – LA VILLAHeimagisting á besta stað í bænum. Býður alla Íslendinga velkomna.Geymið auglýsinguna.www.lavilla.dk. S.0045 3297 5530. GSM. 0045 2848 8905
LEIÐSÖGUNÁMHnitmiðað og skemmtilegt nám fyrir þá, sem vilja kynnast Íslandi í máli og mynd-
um. Námið er opið öllum þeim, sem áhuga hafa á að læra hverning standa skal að
leiðsögn erlendra og innlendra ferðamanna um Ísland.Stuðst er við námsskrá menntamálaráðuneytisins um viðurkennt leiðsögunám.
Helstu námsgreinar:
● Helstu viðkomustaðir ferðamanna í máli og myndum.
● Saga landsins, jarðfræði, bókmenntir og listir, menningartengd ferðaþjónusta.
Mannleg samskipti.
● Skipulagðar ferðir og afþreyingaferðir. Ritgerðarverkefni og margt fleira. Leiðbeinendur eru þaulvanir leiðsögumenn og sérfræðingar á hinum ýmsu sviðum.
Boðið er uppá dag- og kvöldnám, auk þess sem farið er í vettvangsferðir.
Umsögn:
„Síðasta haust hóf ég leiðsögunám við Ferðamálaskóla Íslands.
Námið fór fram úr mínum björtustu vonum. Ég hef ferðast mikið
um landið frá barnsaldri, en þrátt fyrir það öðlaðist ég nýja sýn á
landið í skólanum. Námið er hnitmiðað og að auki mjög
skemmtilegt, reyndar svo skemmtilegt að ég vil helst fá framhalds-
nám. Þetta nám kemur mér að miklu gagni í starfi mínu sem
kennari og vonandi sem leiðsögumaður í framtíðinni“.
FERÐAMÁLASKÓLI ÍSLANDS,Bíldshöfða 18, sími 567 1466,Opið til kl. 22.00,
Martha Jensdóttir
kennari.
STÍF NORÐAN ÁTT Í dag verða
norðan 8-15 m/s víðast hvar. Snjó-
koma eða slydda norðan og austan
til en þurrt og bjart með köflum
syðra. Hiti 0-6, mildast sunnan til.
VEÐUR 4
1
2
3
43
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 1. október 2008 – 40. tölublað – 4. árgangur
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Aftur í lás | Viðskipti með hluta-bréf voru stöðvuð af varúðará-stæðum í kauphöllum í Moskvu í Rússlandi aðeins mínútu eftir að þau hófust í gærmorgun en menn óttuðust að mikið fall víða um heim í fyrradag myndi smita út frá sér til Rússlands.
Fjárfestar uggandi | Gengi hlutabréfa féll verulega í Banda-ríkjunum eftir að fulltrúar þings-ins felldu tillögur stjórnvalda um að setja á laggirnar sjóð sem kaupa á verðlausar eignir fjár-málafyrirtækja á mánudags-kvöld. Fall sem þetta hefur ekki sést í 21 ár.
101 olía | Heimsmarkaðsverð á hráolíu fór í 101 dal á mánudag eftir skell á hlutabréfamörkuð-um um allan heim. Sérfræðingar segja þrengingar í alþjóðahag-kerfinu skýra minni eftirspurn eftir olíu og keyri það verðið niður. Verðið fór hæst í rúma 147 dali í júlí.
Fyrsta fórnarlambið | Írland er fyrsta evrulandið sem verð-ur kreppunni að b á
Orðskýringin
Hvað eru
lánalínur?
6
Landsbankinn / GlitnirSameinaður banki jafnstór Kaupþingi
4-5
Gylfi Magnússon
Bjart framundan
6
Hag ð
Utanþingsviðskipti voru með bréf í Landsbankanum fyrir 5,6 milljarða króna snemma í gær-morgun á genginu 21,5 krónur á hlut. Viðskiptin voru í stærri kantinum, þau fyrri upp á rúman 1,1 milljarð króna en hin upp á rúma 4,5 milljarða. Utanþingsviðskipti eru þau viðskipti sem eiga sér stað beint á milli markaðsaðila og tilkynnt er um eftir á.
Heildarvelta með bréf í Lands-bankanum námu rúmum 9,4 millj-örðum króna í gær.
- jab
LANDSBANKINN Viðskipti með hlutabréf
Landsbankans námu rúmum níu milljörð-
um í gær.
Keypt í LÍ utan þings Ingimar Karl Helgasonskrifar
„Enda þótt íslenska ríkið segist ekki ætla að eiga hlut
sinn í Glitni um lengri tíma, telur Fitch ekki líklegt
að það losni auðveldlega við hlutinn í bráð,“ segir í
rökstuðningi matsfyrirtækisins Fitch Ratings, fyrir
lækkaðri lánshæfiseinkunn Glitnis, úr B/C í F.
Fitch lækkaði einnig lánshæfiseinkunn ríkisins.
Það hefur Standard & Poors einnig gert og japanska
matsfyrirtækið R & I.Forystumenn ríkissjóðs sögðu í fyrradag að ekki
stæði til að eiga 75 prósenta hlut í Glitni til lang-
frama. 600 milljónir evra koma fyrir. Ríkið kemur
þar inn, með fyrirvara um samþykki hluthafafund-
ar í Glitni, og samþykki Alþingis.Ráðherrar í ríkisstjórninni fullyrtu eftir ríkis-
stjórnarfund í gær að engar formlegar viðræður
ættu sér stað við Landsbankann um að sameiningu
við Glitni. Davíð Oddsson seðlabankastjóri kom á
ríkisstjórnarfund og fór yfir stöðu mála með ríkis-
stjórninni. Hann kannaðist lítt við fund forsætisráð-
herra með Björgólfi Thor Björgólfssyni og banka-
stjórum Landsbankans í fyrrakvöld.Áður en ákveðið var að ríkið kæmi inn í hluthafa-
hóp Glitnis, var rætt um sameiningu við Lands-
bankann, með fulltingi ríkisins. Ekki varð af því en
enn virðast vera þreifingar í gangi milli ríkisins og
Landsbankans.
Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssam-
bands lífeyrissjóða, segir að ekkert hafi verið rætt
um það í hópi lífeyrissjóða að koma inn í Glitni. Þá
hafi ekkert borist frá stjórnvöldum í þá veru.
Ríkið eignaðist hlutinn í Glitni í kjölfar þess
að þýskur banki hætti við lánsloforð. Þá leit-
aði Glitnir til Seðlabankans, sem hafði sjálfur
fengið lán hjá hinum sama banka til að t
gjaldeyrisvaraforðan
Óvíst að ríkið geti selt Glitni í bráðFitch Ratings segir ólíklegt að ríkið geti selt hlut sinn í Glitni á næstunni. Lífeyrissjóðir eru ekki inni í myndinni. Enn er uppi á borðinu að Landsbankinn sameinist Glitni.
Er prentverkiðSvansmerkt?
HEILBRIGÐISMÁL Árvisst söfnunarátak Krabbameins-
félags Íslands hefst í dag með sölu á bleiku slauf-
unni.
Dorrit Moussaieff forsetafrú veitti fyrstu bleiku
slaufunni viðtöku í höfuðstöðvum Krabbameinsfé-
lags Íslands í gær. Dorrit heimsótti einnig Leitarstöð
Krabbameinsfélagsins og skoðaði nýjan stafrænan
tækjabúnað leitarstöðvarinnar sem sagður er skipta
sköpum í nýgreiningu á brjóstakrabbameini.
Bleika slaufan er í ár hönnuð af Hendrikku Waage
sem hlotið hefur alþjóðlega viðurkenningu fyrir
skartgripahönnun sína.
Markmið Krabbameinsfélagsins er að selja 40
þúsund bleikar slaufur fram til 15. október
næstkomandi. Um fjögur þúsund slaufur höfðu verið
seldar í forsölu til fyrirtækja í gær.
Lesendur Fréttablaðsins geta fylgst með því
hvernig Krabbameinsfélaginu gengur að ná
markmiði sínu á forsíðu Fréttablaðsins næstu
fimmtán daga. - ovd
Ætla að selja 40 þúsund bleikar slaufur til styrktar Krabbameinsfélagi Íslands:
Nýr tækjabúnaður skiptir sköpum
BLEIKA SLAUFAN Hendrikka Waage nælir fyrstu bleiku slaufunni í jakka Dorritar Moussaieff forsetafrúar og Guðrún Agnars-
dóttir, forstjóri Krabbameinsfélagsins, stendur hjá. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Yfirtaka á Glitni hefti ríkið
Erlend matsfyrirtæki óttast að yfirtaka ríkisins á Glitni geti reynst of stór biti og staðið öðrum aðgerðum rík-
isins fyrir þrifum. Óvíst er um sölu hlutarins á næstunni. Gengi krónunnar lækkaði um fimm prósent í gær.
Eftirsóttur
Hallgrímur Jónas-
son er undir
smásjá fjölda
félaga bæði
hérlendis og
erlendis.
ÍÞRÓTTIR 26
VIÐSKIPTI Þunginn í viðræðum
Straums og Landsbankans um
sameiningu hefur aukist. Unnið
var langt fram á kvöld í höfuð-
stöðvum Landsbankans í gær.
William Fall, forstjóri Straums,
og Björgólfur Thor Björgólfsson
stjórnarformaður voru þar báðir.
Björgólfur Thor og bankastjórar
Landsbankans ræddu við
forsætisráðherra um bankamál í
fyrrakvöld.
Ýmislegt hefur dunið á
Landsbankanum undanfarið.
Nefna má Nýsi, Eimskip og nú
Stoðir, sem skulda Landsbankan-
um umtalsvert fé. Þá hefur
Straumur tilkynnt um hugsanlegt
milljarðatap vegna gjaldþrots
bandaríska fjárfestingarbankans
Lehman Brothers. Þá hefur tapast
fé vegna gjaldþrots XL Leisure.
Fitch hefur lækkað lánshæfis-
einkunn Straums og Landsbank-
ans. Moody‘s íhugar að lækka
lánshæfismat Landsbankans. - ikh
Fundir á kvöldin og nóttunni:
Vaxandi þungi
hjá Straumi og
Landsbanka
LANDSBANKINN OG GLITNIR
Sameinaður banki
yrði á við Kaupþing
Markaðurinn
FYLGIR BLAÐINU Í DAG
1. okt 2007 1. okt 2008
RÝRNUN KRÓNUNNAR
VERÐGILDI ÍSLENSKU KRÓNUNNAR
ER AÐEINS UM 60 PRÓSENT AF ÞVÍ
SEM ÞAÐ VAR FYRIR RÉTTU ÁRI.