Fréttablaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 32
600 9,14 700 milljónir evra er upphæðin sem ríkið ætlar að greiða fyrir 75 pró-senta hlut í Glitni. prósent er fall Nasdaq-vísitölunnar í Bandaríkjunum á mánudag. milljarðar Bandaríkjadala er sú upp-hæð sem bandarísk stjórnvöld vilja verja til að kaupa upp verðlaus eigna- söfn fjármálafyrirtækja. SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is B A N K A H Ó L F I Ð Óhætt er að segja að Davíð Oddsson, formaður banka- stjórnar Seðlabankans, hafi verið áberandi í ólgusjó fjár- málalífsins síðustu daga. Ekki aðeins var ein af fréttamynd- um ársins tekin af honum undir stýri með forsætisráðherr- ann í farþegasætinu og fjár- málaráðherrann aftur í, held- ur kom það einnig í hlut seðla- bankastjórans að tilkynna um aðgerðir ríkisstjórnarinnar og bjóða einstökum mönnum sæti í nýrri stjórn Gitnis, ef marka má fréttir fjölmiðla. Í gær sat Davíð svo aftur á fundi ríkisstjórn- arinnar eftir nokkurt hlé, nú sem gestur við fundarborðið. Er furða, þótt menn telji enn að Davíð ráði hér öllu í samfé- laginu? Sannspár um stefnuna? Langminnugir rifja nú upp að undir lok júlí birti banda- ríska fjármálastofnunin Merril Lynch (sem nú heyr- ir sögunni til) greiningu um íslensku bankana sem vakti mikinn úlfaþyt. Þar undrað- ist Richard Thomas aðgerða- leysi stjórnvalda og taldi helst koma til greina að það væri meðvitað og hugmyndin sú að þjóðnýta síðan einn eða fleiri af íslensku bönkunum. Íslenskir stjórnmálaleiðtogar áttu ekki orð til yfir palladóma greinandans, en hvaða dóm skyldi sagan fella um hann? Hvað er með ábyrgðina? Það segir sína sögu um það fárviðri sem geisar í íslensku viðskiptalífi, að ýmsar stór- fréttir komast varla á blað og sum stórmál eru þegar fall- in í gleymskunnar dá. Man til dæmis einhver eftir ábyrgð- inni sem Björgólfsfeðgar ætl- uðu að létta af Eimskipi, upp á litla 25 milljarða? Eða upp- skipti Nýsis? Eða innkomu sjeiksins frá Brúnei inn í Kaupþing? Nei, það er ekki að undra. Þetta gerðist nefnilega allt fyrir minna en tíu dögum. Davíð við stýrið Hvers vegna PwC? Þekkingarfyrirtæki í fremstu röð á Íslandi og leiðandi á alþjóðavettvangi.  Endurskoðun  Fyrirtækjaráðgjöf  Skatta- og lögfræðiráðgjöf Reykjavík - Akureyri - Húsavík - Selfoss - Reykjanesbær www.pwc.com/is *connectedthinking Endurvinnum – umhverfisins vegna Núna er ekkert mál að endurvinna! Blaðberi Fréttablaðsins er handhæg taska undir dagblöð og ýmsan annan pappír sem fellur til á heimilinu. Blaðberinn kostar ekki neitt og kemur þér á lagið með að endurvinna dagblaðapappír. Nældu þér í Blaðbera og geymdu hann á góðum stað. ...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn... Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24, alla virka daga, frá kl. 8-17, á meðan birgðir endast. F í t o n / S Í A

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.