Fréttablaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 48
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þórhildar Elínar Elínardóttur Vökustaurar forfeðranna hafa nú loks endurheimt hlutverk sitt síðustu örlaganætur. Ósofnir og veðraðir víkingarnir hafa snúið aftur til að færa okkur almúgan um þau tíðindi að skildirnir séu brotn- ir, axirnar hauslausar og útrásin hafi breyst í innrás. Vígamennirn- ir vega mann og annan og nú er af sem áður var; allir eru berir um bak því enginn finnst bróðirinn lengur. Engin furða að þeim hafi ekki komið blundur á brá. Áður var mjóróma gagnrýni hinna óbreyttu á ofurlaun víkinganna svarað með fullyrðingum um yfir- náttúrulegt hæfi þessara manna, hver þeirra var jafn mikils virði og hundrað óbreyttir. MÝLDUR lýðurinn muldraði í barminn en lét gott heita eins og alltaf, enda hlaut þjóðfélaginu að vera mikill akkur í svona verð- mætu fólki. Á meðan hinn almenni borgari ergði sig á hækkun matar- körfunnar upp fyrir neðri skýj- a mörk var spilað með töluvert hærri fjárhæðir á næturfundum víkinganna. Venjuleg úrlausnar- efni hversdagsins verða hjóm eitt hjá alvörubisness þar sem heilu fyrirtækjunum er þrusað þvers og kruss yfir borðið. Hver hefur eirð í sér til að steikja fiskibollur og snýta krakkagrísum þegar spurn- ingin vofir yfir okkur öllum: Tekst að stöðva dómínóið? Litla, með- virka þjóðin í norðri veit nú ekki sitt rjúkandi ráð. Eftir áralangan sameiginlegan pirring yfir van- trausti erlendra fjölmiðla og skæt- ing í garð útrásarhetjanna eru nú aftur tvær skoðanir í boði. Helm- ingurinn getur verið sannfærður um að Davíð hafi bjargað bönkum og þjóð frá glötun, hafi upp á eigin spýtur reddað málunum með töff- aralegum einleik á ögurstundu. Hinir eru einna helst á því að Davíð hafi verið að hefna persónu- legra harma sinna. Einhvern veg- inn snýst allt aftur um Davíð. Ein- mitt þegar við vorum farin að vona að hann myndi una glaður við sitt spakur og hlédrægur kemur hann eins og upprisin múmía sem hefur endurheimt undrakraftana. Nú verður allt gott því pabbi er kominn aftur til að passa okkur. ÞAR sem fyrirsjáanlegt er að bankastjórarnir og við hin verðum bráðum öll á strípuðum ríkistöxt- um munum við kannski eiga fleira sameiginlegt en áður. Verðum ein þjóð á ný. Kannski blankari en vonandi reynslunni ríkari. Góði pabbi, vondi pabbi 7.37 13.17 18.55 7.24 13.02 18.38 Í dag er miðvikudagurinn 1. október, 275. dagur ársins. Tveggja manna herbergi á kr. 5.000 nóttin Svefnpokapláss kr. 1.500 nóttin Gesthús Dúna Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.