Fréttablaðið - 01.10.2008, Blaðsíða 1
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 1. október 2008 – 40. tölublað – 4. árgangur Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Aftur í lás | Viðskipti með hluta-
bréf voru stöðvuð af varúðará-
stæðum í kauphöllum í Moskvu
í Rússlandi aðeins mínútu eftir
að þau hófust í gærmorgun en
menn óttuðust að mikið fall víða
um heim í fyrradag myndi smita
út frá sér til Rússlands.
Fjárfestar uggandi | Gengi
hlutabréfa féll verulega í Banda-
ríkjunum eftir að fulltrúar þings-
ins felldu tillögur stjórnvalda
um að setja á laggirnar sjóð sem
kaupa á verðlausar eignir fjár-
málafyrirtækja á mánudags-
kvöld. Fall sem þetta hefur ekki
sést í 21 ár.
101 olía | Heimsmarkaðsverð á
hráolíu fór í 101 dal á mánudag
eftir skell á hlutabréfamörkuð-
um um allan heim. Sérfræðingar
segja þrengingar í alþjóðahag-
kerfinu skýra minni eftirspurn
eftir olíu og keyri það verðið
niður. Verðið fór hæst í rúma 147
dali í júlí.
Fyrsta fórnarlambið | Írland
er fyrsta evrulandið sem verð-
ur kreppunni að bráð en lands-
framleiðsla þar dróst saman tvo
ársfjórðunga í röð. Talið er að
fleiri Evrópulönd muni fylgja í
kjölfarið þegar tölur birtast um
landsframleiðslu þeirra á þriðja
ársfjórðungi.
Olíupeningar leka | Norski
olíusjóðurinn tapaði 136 millj-
örðum íslenskra króna á gjald-
þroti bandaríska bankans Wash-
ington Mutual í síðustu viku.
Norski vefmiðillinn E24.no segir
tæpa þrjá milljarða bundna í
hlutabréfum og sé það tapað fé.
Afgangurinn var í skuldabréf-
um og óvíst hversu háa fjárhæð
sjóðsstjórarnir sjái aftur.
Orðskýringin
Hvað eru
lánalínur?
6
Landsbankinn / Glitnir
Sameinaður banki
jafnstór Kaupþingi
4-5
Gylfi Magnússon
Bjart framundan
6
Hagnaður ríkisins á 75 prósenta
hlut sínum í Glitni nam eftir kaup-
hallarviðskipti gærdagsins 119,3
milljörðum króna. Að sama skapi
má segja að hluthafar bankans frá
því fyrir helgi hafi tapað tæplega
166 milljörðum króna.
Gengi bréfa í bankanum féll um
rúmlega 71 prósent í viðskiptum
gærdagsins, úr 15,7 krónum á hlut
á föstudag og í 4,55 krónur á hlut.
Lokað var fyrir viðskipti með bréf
félagsins á mánudag.
Töluverð viðskipti áttu sér stað
í gær með bréf Glitnis, eða fyrir
rúmar 2.085 milljónir króna. Nokk-
ur sveifla var á gengi bréfanna, en
viðskipti með þau hófust þó tölu-
vert yfir metnu kaupgengi ríkisins,
sem var nálægt 1,9 krónum á hlut.
Fyrstu viðskipti voru rétt undir
fimm krónum á hlut, en hæst fór
gengið í 6,50 krónur. Þá fór hagn-
aður ríkisins á pappír í 206 millj-
arða króna. Ríkið setti á mánu-
dag nýtt hlutafé fyrir 84 milljarða
króna í Glitni og eignaðist þar með
þrjá fjórðu hluta bankans. - óká
Hagnaður ríkisins af
Glitni 119 milljarðar
Glitnir fjöldi hluta
Hluthafar Glitnis 14.881
Ríkið 44.642
Samtals 59.523
Hagnaður ríkisins í milljónum króna
Hlutafé 84.000
Gengi inn 1,88 krónur á hlut
Gengi nú 4,55 krónur á hlut
Markaðsvirði hlutar 203.298
Hagnaður 119.298
Tap hluthafa í milljónum króna
Gengi var 15,70 krónur á hlut
Markaðsvirði hlutar var 233.627
Gengi nú 4,55 krónur á hlut
Markaðsvirði hlutar nú 67.707
Tap hluthafa 165.920
V E R Ð M Æ T I G L I T N I S
Utanþingsviðskipti voru með
bréf í Landsbankanum fyrir 5,6
milljarða króna snemma í gær-
morgun á genginu 21,5 krónur
á hlut. Viðskiptin voru í stærri
kantinum, þau fyrri upp á rúman
1,1 milljarð króna en hin upp á
rúma 4,5 milljarða.
Utanþingsviðskipti eru þau
viðskipti sem eiga sér stað beint
á milli markaðsaðila og tilkynnt
er um eftir á.
Heildarvelta með bréf í Lands-
bankanum námu rúmum 9,4 millj-
örðum króna í gær. - jab
LANDSBANKINN Viðskipti með hlutabréf
Landsbankans námu rúmum níu milljörð-
um í gær.
Keypt í LÍ
utan þings
Ingimar Karl Helgason
skrifar
„Enda þótt íslenska ríkið segist ekki ætla að eiga hlut
sinn í Glitni um lengri tíma, telur Fitch ekki líklegt
að það losni auðveldlega við hlutinn í bráð,“ segir í
rökstuðningi matsfyrirtækisins Fitch Ratings, fyrir
lækkaðri lánshæfiseinkunn Glitnis, úr B/C í F.
Fitch lækkaði einnig lánshæfiseinkunn ríkisins.
Það hefur Standard & Poors einnig gert og japanska
matsfyrirtækið R & I.
Forystumenn ríkissjóðs sögðu í fyrradag að ekki
stæði til að eiga 75 prósenta hlut í Glitni til lang-
frama. 600 milljónir evra koma fyrir. Ríkið kemur
þar inn, með fyrirvara um samþykki hluthafafund-
ar í Glitni, og samþykki Alþingis.
Ráðherrar í ríkisstjórninni fullyrtu eftir ríkis-
stjórnarfund í gær að engar formlegar viðræður
ættu sér stað við Landsbankann um að sameiningu
við Glitni. Davíð Oddsson seðlabankastjóri kom á
ríkisstjórnarfund og fór yfir stöðu mála með ríkis-
stjórninni. Hann kannaðist lítt við fund forsætisráð-
herra með Björgólfi Thor Björgólfssyni og banka-
stjórum Landsbankans í fyrrakvöld.
Áður en ákveðið var að ríkið kæmi inn í hluthafa-
hóp Glitnis, var rætt um sameiningu við Lands-
bankann, með fulltingi ríkisins. Ekki varð af því en
enn virðast vera þreifingar í gangi milli ríkisins og
Landsbankans.
Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssam-
bands lífeyrissjóða, segir að ekkert hafi verið rætt
um það í hópi lífeyrissjóða að koma inn í Glitni. Þá
hafi ekkert borist frá stjórnvöldum í þá veru.
Ríkið eignaðist hlutinn í Glitni í kjölfar þess
að þýskur banki hætti við lánsloforð. Þá leit-
aði Glitnir til Seðlabankans, sem hafði sjálfur
fengið lán hjá hinum sama banka til að styrkja
gjaldeyrisvaraforðann. Sjá síðu 2 og miðopnu
Óvíst að ríkið geti
selt Glitni í bráð
Fitch Ratings segir ólíklegt að ríkið geti selt hlut sinn í Glitni
á næstunni. Lífeyrissjóðir eru ekki inni í myndinni. Enn er
uppi á borðinu að Landsbankinn sameinist Glitni.
Er prentverkið
Svansmerkt?
Tíma - og verkskráning
Flotastýring og eftirlit
www.trackwell.com