Fréttablaðið - 05.10.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
49,65%
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
24
st
un
di
r
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 46% meiri
lestur en 24 stundir og 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
5. október 2008 — 272. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
MENNING „Þetta er langstærsta
verkefni sem ég hef komið nálægt.
Það er verið að tala um 40 til 60
milljóna dollara mynd. Risadæmi,“
segir Baltasar Kormákur.
Búið er að ganga frá því að fram-
leidd verði Hollywood-mynd sem
tekin verður að mestu leyti á
Íslandi. Baltasar leikstýrir mynd-
inni sem verður gerð eftir handriti
hans og Ólafs Egilssonar. Myndin
byggir á minnum úr Íslendinga-
sögum og hefur
verið kynnt sem
„spaghetti-west-
ern-viking-
movie“. Töku-
tími er sex
mánuðir en
sagan gerist að
vetrarlagi, vori
og sumri. Fram-
leiðendur eru
þeir hinir sömu
og gerðu mynd Baltasars Run For
Her Life – sem nú heitir Inhale –
auk þess sem stærri framleiðend-
ur munu koma að myndinni. Vinnu-
titill hennar er Saga. Myndin kallar
á mikinn mannafla og er gríðleg
innspýting í kvikmyndageirann
hér á landi sem og í efnahagslífið í
heild: Sextíu milljónir dollara
leggja sig á 6,6 milljarða í íslensk-
um krónum miðað við gengi föstu-
dags. - jbg / sjá síðu 26
Risavaxin víkingamynd sem tekin verður á Íslandi er í burðarliðnum:
Sjö milljarða mynd Baltasars
BALTASAR
KORMÁKUR
Smáskífumaður með góðan smekk
BIRGIR ÍSLEIFUR GUNNARSSON
FER FYRIR HLJÓMSVEITINNI
MOTION BOYS
fjölskyldan[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS UM FJÖLSKYLDUNA ]október 2008
ÍÞRÓTTAIÐ
FYLGIR Í DAG
12
BJART EYSTRA Í dag verður
suðaustan strekkingur sunnan til
og vestan annars hægari. Rigning
eða skúrir á vesturhluta landsins en
yfirleitt bjart austast. Hiti 2-9 stig,
mildast suðvestan til.
VEÐUR 4
5 3
2
47
HAFÐI BETUR
Í BARÁTTUNNI
Vigdís ræðir glímuna
við krabbamein,
batann og mikilvægi
samstöðu gegn sjúk-
dómnum VIÐTAL 10
KR bikarmeistari 2008
Pétur Hafliði Marteinsson endaði feril-
inn með bikarmeistaratitli hjá Vestur-
bæjarliðinu eftir sigur gegn Fjölni í gær.
EFNAHAGSMÁL Lífeyrissjóðirnir
buðust í gær til þess að færa hluta
eigna sinna til landsins, að tiltekn-
um skilyrðum uppfylltum. Meðal
þeirra eru að bankar, fjármála-
stofnanir og fjárfestingarfélög
geri slíkt hið sama. Þá er þess
krafist að skýrt verði í hvað fjár-
munir lífeyrissjóðanna fari og að
þeir nýtist ríkissjóði beint.
„Að þessum björgunarleiðangri
verða allir að koma: stjórnvöld,
Seðlabankinn, viðskiptabankarnir,
fjárfestingarfélög og aðilar vinnu-
markaðarins. Öðruvísi er þetta
ekki framkvæmanlegt,“ segir
Arnar Sigmundsson, formaður
stjórnar Landssamtaka lífeyris-
sjóða.
Hreiðar Már Sigurðsson, for-
stjóri Kaupþings, vildi ekki tjá sig
beint um kröfu lífeyrissjóðanna.
Hann sagði þó að allir yrðu að
leggjast á eitt. „Ég held að þetta
leysist ekki nema allir aðilar komi
að borðinu. Við erum reiðubúnir
að leggja okkar af mörkum,“ segir
Hreiðar.
Geir H. Haarde forsætis ráðherra
vildi lítið tjá sig um hvaða tillögur
væru uppi á borðinu. Hann sagðist
vænta yfirlýsingar fyrir opnun
markaða á morgun. „Mér finnst
stemningin vera þannig að aðilar
vinnumarkaðarins og lífeyrissjóð-
irnir vilji koma að þessu af fyllstu
ábyrgð,“ sagði Geir.
Ögmundur Jónasson, formaður
BSRB, segir niðurstöðu verða að
fást í dag og kallar eftir eignasölu.
„Mín skoðun er að bönkum og fjár-
málastofnunum beri að huga að
eignasölu til að hjálpa til við að
leysa okkur niður úr þeirri snöru
sem við óumdeilanlega höngum í
sem þjóð.“
Eiríkur Jónsson, formaður Kenn-
arasambandsins, segist vænta þess
að launþegasamtök slái af kröfum
sínum. Nú sé ekki tími til að heimta
prósentuhækkanir launa.
- kóp / sjá síður 2 og 4.
Svör fyrir opnun markaða
Lífeyrissjóðir bjóðast til að flytja hluta erlendra eigna sinna heim svo fremi að fjármálastofnanir geri það
líka. Forstjóri Kaupþings segir bankann tilbúinn að leggja sitt af mörkum. Rætt um að frysta launakröfur.
Á MILLI FUNDAHRINA Unnið var að lausnum á efnahagsvandanum í allan gærdag. Fjöldi funda var í Ráðherrabústaðnum þar sem Geir H. Haarde og þrír aðrir ráðherrar tóku
á móti fulltrúum atvinnulífsins, banka, stéttarfélaga og lífeyrissjóða. Búist er við tilkynningu fyrir opnun markaða á morgun. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
20