Fréttablaðið - 08.10.2008, Blaðsíða 6
6 8. október 2008 MIÐVIKUDAGUR
HÚSNÆÐISMÁL „Þetta er ekki einfalt
mál. Við vitum ekki hve umfangs-
mikil yfirtakan verður. Fyrst þarf
að fara yfir það á hvaða verði Íbúða-
lánasjóður tekur yfir þessi íbúða-
lán. Við hljótum að yfirtaka með
afslætti sem gefur svigrúm til að
gera betur fyrir fólk í greiðsluerfið-
leikum,“ segir Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra.
Verðtryggð íbúðalán bankanna
nema tæpum 500 milljörðum
króna. Ekki er vitað hvað Íslend-
ingar skulda í erlendum lánum en
þau geta jafnvel skipt hundruðum
milljarða. Óvíst er hve mikið af
lánunum flyst til Íbúðalánasjóðs.
Jóhanna segir að lánin verði
yfirtekin með þeim skilmálum og
kjörum sem á þeim eru. Svo verði
úrlausn skoðuð einstaklingsbundið
og reynt að taka á hverju tilfelli.
Útilokað sé að segja nánar hvaða
kjör skuldararnir fá. Mestu skipti
að þeir komist í skjól hjá Íbúða-
lánasjóði. Hún getur heldur ekki
sagt hvenær eða hvort búið verði
að yfirtaka lánin fyrir næstu
mánaðamót.
„Við þurfum að skoða hvaða
heimildir við getum útvíkkað í
lögum um Íbúðalánasjóð sem snúa
að greiðsluerfiðleikum og vanskil-
um. Við höfum úrræði um að frysta
lánin, lengja í lánum, skuldbreyta
en við þurfum hugsanlega að fara
út í víðtækari aðgerðir. Ofarlega á
blaði er frumvarp um greiðsluað-
lögun. Þetta er úrræði fyrir fólk
sem er komið í svo mikil vandræði
að það sér ekki fram á annað en að
missa sínar íbúðir,“ segir Jóhanna.
Stofnanir sem heyra undir
félagsmálaráðuneytið íhuga að
setja upp sameiginlegt vefsvæði
með leiðbeiningum fyrir fólk og
upplýsingum um þjónustu velferð-
arkerfisins. Nokkur ráðuneyti
munu koma að þessu. „Við erum að
hugsa um hvernig hægt er að koma
upplýsingum til fólks og leiðbeina,
útskýra hvað nýja löggjöfin þýðir
og hvaða aðgerðir verða á vegum
Íbúðalánasjóðs. Við erum að skoða
hvort við eigum að koma upp sam-
eiginlegu vefsvæði allra stofnana
þannig að fólk geti leitað að upp-
lýsingum út af þessum hörmung-
um og hremmingum sem við erum
að lenda í. Ljóst er að við þurfum
að efla starfsemi stofnana tíma-
bundið,“ segir hún.
Grænt símanúmer verður tekið
upp. Þeim sem hringja í það verð-
ur beint áfram eftir því hvert
erindið er. Upplýsingaefni fyrir
innflytjendur og uppalendur er á
prjónunum. ghs@frettabladid.is
Óvíst er um kjör á
yfirteknu lánunum
Íbúðalánasjóður mun yfirtaka íbúðalán banka sem fara í þrot með afslætti.
Ekki er vitað hvaða kjör skuldararnir fá eða hvenær gengið verður frá yfirtök-
unni. Fyrirhugað er að taka upp grænt númer og vefsvæði fyrir almenning.
Magnús Gunnlaugsson, bílstjóri
„Að sjálfsögðu
hef ég áhyggjur.
Kannski missir
maður vinnuna
eða kannski
eykst vinnan.
Bankakerfið er
búið að stinga
sig alveg af. Það
er óvissa.“
Svava Kristjánsdóttir, húsmóðir
Nei, því við
höfum ofur-
menni sem
forsætisráðherra.
Hann hefur gert
kraftaverk á
síðustu dögum
og bak við hann
stendur góð
kona. Það var
ekki hægt að gera betur.“
Theodóra Ágústsdóttir,
starfsmaður í verslun
„Já, þetta er ekki
eðlilegt, mér er
ekki sama um
ástandið í heim-
inum. Maður
verður að hugsa
betur um pen-
ingana og spara.
Er það ekki eina
vitið?“
Alfreð Óskar Alfreðsson,
húsasmíðameistari
„Já, það hef ég.
Fjárhagurinn
hefur minnkað.
Það þarf fleiri
þúsundkalla
til að lifa, að
ég tali ekki um
húsnæðislánið.
Ég lýsi vanþókn-
un á uppaliðið
svokallaða og lýsi ábyrgð þeirra á
ástandinu eins og það er í dag.“
Anna Eðvarðsdóttir,
verslunarmaður
„Ég er með fimm
börn og er búin
að vera að þræla
og púla í 25 ár.
Þetta ástand
gerir mér síður
en svo auðvelt
fyrir. Ég vil sjá
Davíð og Geir
víkja.“
Oddur Grétarsson,
menntaskólanemi
„Það er óhætt að
segja að maður
hafi áhyggjur af
þessu ástandi,
en það snertir
mig sem betur
fer lítið. Ég er
hvorki með bíl
né þarf að greiða
af lánum.“
Hefur þú áhyggjur af
efnahagsástandinu?
EFNAHAGSMÁL Verðhækkanir und-
anfarið gætu stöðvast og jafnvel
gengið til baka eftir að gengi
krónunnar var læst í gær. For-
senda þess er þó að stjórnvöld
tryggi nægilegt framboð gjald-
eyris.
Skortur var á gjaldeyri í gær
sem varð til þess að hann var
keyptur á allt að 30 prósent yfir-
verði. Í slíku ástandi stoðar
gengislæsing lítið.
Finnur Árnason, forstjóri Haga,
segir að í kjölfar yfirlýsingar rík-
isstjórnarinnar um fast gengi í
gærmorgun hafi birgjar brugðist
við og boðað verðbreytingar.
Fyrirheit voru gefin um að verð
myndi lækka ef gengið yrði áfram
það sem það var í gær.
„Tryggt framboð gjaldeyris
skiptir núna öllu máli. Ég trúi og
treysti að stjórnvöld tryggi það
sem nauðsynlegt er og helst meira
svo gengið styrkist enn frekar,“
segir Finnur. Lífsspursmál sé að
styrkja krónuna og snúa verð-
þróuninni við.
Andrés Magnússon, fram-
kvæmdastjóri Samtaka verslunar
og þjónustu, segir mikla umfram-
eftirspurn hafa verið á gjaldeyr-
ismarkaði í gær. „Ef ekki er
tryggður nægur gjaldeyrir er
svona ákvörðun hvorki fugl né
fiskur. Það stendur upp á stjórn-
völd að auka framboðið og þau
eru klárlega að reyna það. En
áður en það tekst hefur svona
aðgerð ekkert upp á sig,“ sagði
Andrés. - bþs
Verðlækkanir eru líklegar ef stjórnvöldum tekst að útvega nægan gjaldeyri:
Tryggt framboð gjaldeyris skiptir öllu
ANDRÉS
MAGNÚSSON
FINNUR
ÁRNASON
EFNAHAGSMÁL Alþýðusambandið
styður aðgerðir ríkisstjórnarinn-
ar í efnahags- og peningamálum,
að sögn Gylfa Arnbjörnssonar,
framkvæmdastjóra ASÍ.
Þar sem aðstæður breyttust
skyndilega um og eftir helgi varð
ekkert af aðkomu aðila vinnu-
markaðarins að málum. Slík
aðkoma er þó ekki úr sögunni.
Þvert á móti. „Þegar menn fara
að átta sig betur á umfanginu er
augljóst að það þarf að ráðast í
aðgerðir til að koma til móts við
landsmenn til að mæta þeim
þrengingum sem þeir hafa orðið
fyrir,“ segir Gylfi. - bþs
Framkvæmdastjóri ASÍ:
Þörf á að mæta
vanda fólksins
FJÁRMÁL Vanskilum hefur fjölgað
um allt land, samkvæmt yfirliti
yfir vanskil frá Creditinfo. Fjöldi
einstaklinga, 18 ára og eldri, á
vanskilaskrá er 16.086 talsins
miðað við þriðjudaginn 7.
október. Hæst mælist hlutfall
einstaklinga í vanskilum á
Reykjanesi, eða 1.407. Á höfuð-
borgarsvæðinu eru 9.967 á
vanskilaskrá.
Í yfirlitinu kemur fram að nú
eru 1.704 einstaklingar 60 ára og
eldri í alvarlegum vanskilum.
Á þessu ári hafa alvarleg
vanskil einstaklinga aukist mjög
hratt. Á fyrstu níu mánuðum
ársins er fjöldi nýskráðra
einstaklinga á vanskilaskrá sá
sami og allt árið 2007. - ghs
Vanskil einstaklinga:
Aukist mjög
hratt á árinu
FJÖLMIÐLAR „Við vorum sendir
hingað til að fjalla um efnahagslíf-
ið á Íslandi en svo kemur þessi
úlfaþytur upp sem er náttúrlega
afskaplega
heppilegt fyrir
mig sem
fréttamann,“
segir Ray
Furlong,
fréttamaður
BBC, sem
staddur er hér á
landi.
„Ég held að
fólk sé almennt afar forvitið um
efnahagshnignunina hvar sem
hennar gætir. En svo eiga Bretar
nokkurra hagsmuna að gæta vegna
eignatengslanna við Íslendinga.
Þar að auki tel ég að fólki þyki
staðan á Íslandi nokkuð athyglis-
verð þar sem bankarnir eru svo
gríðarlega stórir og efnahagur
þeirra margfalt á við landsfram-
leiðslu landsins og þetta gerir
yfirvöldum málið afar erfitt.“ - jse
Efnahagsvandinn á Íslandi:
Athyglisvert í
augum Breta
RAY FURLONG
REYKJAVÍK Borgarstjórn samþykkti
í gær sérstaka aðgerðaáætlun til
að bregðast við efnahagsástandinu
sem nú er uppi.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
borgarstjóri sagði á fundi borgar-
stjórnar í gær að slæmar horfur í
efnahagsmálum kalli á gagngera
endurskoðun á rekstraráætlunum
Reykjavíkurborgar. „Við núver-
andi aðstæður á lánamörkuðum má
heita vonlítið að unnt sé að fjár-
magna hallarekstur á aðalsjóði
sveitarfélags.“
Í ræðu Hönnu Birnu í gær kom
fram að gert er ráð fyrir 4,5 millj-
arða halla á rekstrarniðurstöðu A-
hluta borgarsjóðs á þessu ári, ef
framlög til sviða aukast til sam-
ræmis við verðbólgu. Þá stefni í 6,2
milljarða halla eignasjóðs á þessu
ári vegna aukins fjármagnskostn-
aðar, gengisáhrifa og vegna þess
að lóðasala hefur aðeins verið lítið
brot af því sem gert var ráð fyrir.
Hanna Birna sagði stefna í að
lausafjárstaða borgarinnar verði
5,4 milljarðar við árslok „en svo
lág lausafjárstaða hefur mjög nei-
kvæð áhrif á aðgengi að lánsfjár-
magni“.
Til að bregðast við þessum
aðstæðum verður ekki orðið að
óskum sviða Reykjavíkurborgar
um auknar fjárheimildir á næsta
ári, en gert verður ráð fyrir að
hægt verði að ná fram 15 prósenta
sparnaði í innkaupum með auknu
aðhaldi. - ss
Aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar vegna efnahagsástandsins samþykkt:
Vonlítið fyrir borgina að fá lán
VERÐLAG „Það stendur ekki til að
hreyfa neitt við verði á raforku
núna,“ svarar Þorsteinn Hilmars-
son, upplýsingafulltrúi Lands-
virkjunar, því hvort von sé á
hærri rafmagnsreikningum í
kjölfar falls krónunnar.
Þorsteinn bendir á að þótt
stærsti hluti skulda Landsvirkj-
unar sé í erlendum myntum þá
séu tekjur fyrirtækisins að
mestu í dollurum vegna stóriðju.
Frá síðustu áramótum sé
Landsvirkjun gerð upp í dollur-
um. „Það má segja að við séum
heppin að þessu leyti. Þótt tekjur
okkur á almenna markaðnum
dragist saman í dollurum
reiknað þá gera úgjöldin það
einnig mælt í dollurum. Þannig
að í sjálfu sér hefur gengis-
þróunin engin nærtæk áhrif á
starfsemi okkar. - gar
Landsvirkjun þolir gengisfall:
Hækka ekki
rafmagnsverðAÐGERÐAÁÆTLUN REYKJAVÍKURBORGAR
■ Gjaldskrár fyrir grunnþjónustu
munu ekki hækka að svo stöddu.
■ Grunnvelferðarþjónusta mun ekki
skerðast.
■ Starfsfólki verður ekki sagt upp, en
sparað í nýráðningum í stjórnsýslu.
■ Fjárheimildir sviða ekki auknar frá
því sem nú er.
■ Stefnt að 15 prósenta sparnaði í
innkaupum.
■ Forgangsröðun framkvæmda end-
urskoðuð. Framkvæmdum sem geta
beðið, eða kalla á aukinn rekstrar-
kostnað, verður frestað.
■ Viðræður við ríkið um framkvæmd-
ir brýnna samgönguverkefna og
aðkomu að almenningssamgöngum.
■ Eignir seldar fyrir að lágmarki einn
milljarð á ársgrundvelli.
■ Hagkvæmari greiðslukjör boðin
vegna lóðakaupa. Minni áhersla á ný
byggingasvæði.
■ Efnt til samráðs við ríki og sveitar-
félög um leiðir til að efla leigumark-
að.
■ Grænn langtímasparnaður með
betri orkunýtingu og vistvænum
innkaupum.
■ Efling ráðgjafar og velferðarþjón-
ustu í þjónustumiðstöðvum.
Óttast þú um starfsöryggi þitt?
Já 38,4%
Nei 61,6%
SPURNING DAGSINS Í DAG
Telur þú að nú sé kominn
stöðugleiki í efnahagslífið á
Íslandi?
Segðu skoðun þína á vísir.is
Miklar annir voru hjá starfsmönnum
Landsbankans í gær. Þjónustan gekk
nokkurn veginn með hefðbundnum
hætti og hraðbankar og heimabanki
í lagi.
Halldór Jón Kristjánsson, banka-
stjóri Landsbankans, segir að starf-
semi bankans og þjónusta hafi geng-
ið bærilega miðað við aðstæður.
Breytingin hafi verið gerð í samstarfi
Landsbankans og Fjármálaeftirlitsins
og það hafi hjálpað til. Allir hefðu
viljað lengri tíma til undirbúnings en
í gærkvöldi hafi stjórnendur bankans
metið það sem svo að skynsamlegt
væri að nýta sér skjól neyðarlaganna
þar sem svo erfitt lausafjárástand
væri á mörkuðum.
STARFSEMIN HEFUR GENGIÐ BÆRILEGA
FRYSTA LÁN OG
LENGJA „Við
höfum úrræði
um að frysta
lánin, lengja
í lánum og
skuldbreyta,“
segir Jóhanna
Sigurðardóttir
félagsmálaráð-
herra.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
KJÖRKASSINN