Fréttablaðið - 09.10.2008, Blaðsíða 64
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Ólafs Sindra
Ólafssonar
Í dag er fimmtudagurinn
9. október, 282. dagur ársins.
Björgunaraðgerðir stjórnvalda ganga fyrst og síðast út á að
sleppa því barasta að borga skuld-
ir. Það virkar ágætlega, því verð-
ur ekki neitað. Ég hef verið að
íhuga að fara að þeirra fordæmi
sjálfur, skilja gróðavænlega
starfsemi mína og eignir frá þess-
um leiðindaskuldum – og leyfa
svo skuldahlutanum að fara á
hausinn.
ÉG er í það minnsta hæstánægð-
ur með þessi skilaboð frá æðstu
ráðamönnum. Hér hef ég vaðið í
þeirri villu allt of lengi að einhver
dyggð eða jafnvel réttlæti sé fólg-
ið í því að reyna að standa við þær
skuldbindingar sem ég geri – og
það jafnvel þótt þær séu við
útlendinga.
BETUR má þó ef duga skal og
það vita ráðamenn líka. Nú ríður
á að næla í öll lán sem hægt er og
safna forða. Þá skiptir engu hvað-
an gott kemur. Rússland er t.a.m.
fínn kostur. Rússar eru nefnilega
hvort eð er í ónáð hjá vestrænum
vinum okkar, svo við getum sníkt
aðstoð hjá Bandaríkjamönnum ef
sovétið sendir vopnaða handrukk-
ara á okkur þegar fréttist af
næsta skrefi í björgunaráætlun-
inni góðu. Næsta skref er nefni-
lega leynivopnið – þjóðarstolt
okkar íslenska hagkerfis.
VIÐ fáum bara nýja kennitölu á
allt heila klabbið.
ÞAÐ verða engar eignir eftir í
þrotabúi gamla Íslands, þaulæfð-
ir viðskiptamógúlar okkar munu
hafa komið öllum verðmætum
örugglega undan áður en það
verður tekið til gjaldþrotaskipta.
Þeir hafa verið að æfa þessar
aðgerðir í smáum skömmtum í
áratugi til að vera viðbúnir akk-
úrat svona ástandi.
NÝJA Ísland, Iceland Republic
hf., verður mikla betra og með
flottara lógó. Íslendingar fá allir
forkaupsrétt á hlutabréfum, laun
æðstu ráðamanna verða árang-
urstengd og frelsið verður ráð-
andi.
BÁLREIÐIR Rússarnir geta ekki
snert okkur í nýja landinu, þó það
sé reyndar ekkert annað en gamla
Ísland með nýju nafni og árang-
urstengdum forstjórum. Þeir
verða að láta sér nægja að hirða
bara restina af gamla Íslandi; ein-
hver kíló af verðlausum krónum
sem hægt er að bræða (nýja
Ísland verður auðvitað gert upp í
evrum) og nokkra fúna ráðherra-
bústaði sem tímabært var orðið
að skipta um.
GUÐ blessi Ísland II.
Ísland II
8.01 13.15 18.27
7.49 13.00 18.08
Komdu með allt í Gull
Lifðu núna
Þú færð Ofurheimasímann. Allt innifalið, símtöl í alla aðra
síma, óháð kerfi – líka í GSM og til útlanda fyrir 3.490 kr. *
Þú færð lægsta mínútuverð í GSM, óháð kerfi
Þú færð mesta hraðann á Netinu
Þú færð okkar bestu kjör og sparnað sem er gulls ígildi
Vertu með allt á einum stað og skráðu þig strax í nýja
vildarþjónustu í 1414 eða á vodafone.is.
Vodafone Gull – það besta sem við bjóðum
* U.þ.b. 30 helstu viðskiptalönd Íslands. Símtöl í 118 og 900 númer eru gjaldfærð.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Svefnpokapláss
kr. 1.500 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is