Fréttablaðið - 12.10.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
[ SÉRBLAÐ FRÉTTABLAÐSINS
UM MENNINGU OG LISTIR ]
menning
október 2008
. M
EÐ
G
Ó
Ð
FÚ
SL
EG
U
L
EY
FI
U
N
U
D
Ó
RU
C
O
PL
EY
.
Í DRAUMI SÉR-
HVERS MANNS
er fall hans falið
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í
Skaftahlíð 24 alla virka daga
frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfið
Blaðberinn...
Sími: 512 5000
SUNNUDAGUR
12. október 2008 — 279. tölublað — 8. árgangur
Opið 13–18
Lokadagur
BÆTIR Í VIND Í dag verða austan
10-15 m/s en hægari NV-til. Rigning
í fyrstu sunnan- og vestanlands og
úrkoma í flestum landshlutum í
kvöld. Slydda sums staðar norðan
til. Hiti á bilinu 2-10 stig.
VEÐUR 4
3 2
4
7
5
VEÐRIÐ Í DAG
% 20 40 60 80 100
40.000 slaufurSöfnunarmarkmið
HEILBRIGÐISMÁL Ráðhús Reykja-
víkur var lýst bleikt í gærkvöldi í
tilefni af sölu Krabbameinsfé-
lagsins á bleiku slaufunni, sem er
tákn baráttunnar gegn brjósta-
krabbameini. „Lýsingin var
hönnuð í sjálfboðavinnu af
nemendum Tækniskólans. Þetta
var mjög metnaðarfullt verkefni
og tókst afar vel,“ segir Guðrún
Agnarsdóttir, forstjóri Krabba-
meinsfélagsins. „Með þessu
viljum við votta Íslendingum
þakklæti fyrir að hafa tekið svona
vel undir átak okkar. Okkur
langaði líka að lýsa upp skammd-
egið, vekja von og hvetja lands-
menn til samstöðu á þessum
erfiðu tímum.“
Salan á slaufunum, sem eru
fjörutíu þúsund, hefur gengið
afar vel og eru þær nánast
uppseldar. - fb
Ráðhúsið í bleikum litum:
Íslendingum
vottað þakklæti
BLEIKT RÁÐHÚS Ráðhús Reykjavíkur var
lýst bleikum litum í gærkvöldi í tilefni af
sölu á bleiku slaufunni. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
EVRÓPUÆVINTÝRI VALS Á ENDA
Kvennalið Vals á ekki lengur möguleika á að
komast í átta liða úrslit Evrópukeppninnar eftir
2-3 tap á móti ítölsku meisturunum í Bardolino.
29
ICESAVE Í HOLLANDI Stuðningsmenn hollenska landsliðsins í knattspyrnu vísuðu til hremminga á íslenskum bankamarkaði þegar
landslið Íslands og Hollands mættust í undankeppni HM í gær. Hollendingar fögnuðu sigri í leiknum og gátu líka fagnað því að
samkomulag náðist um ábyrgðir á greiðslum til eigenda Icesave-reikninga Landsbankans í Hollandi. NORDIC PHOTOS/AFP
VIÐSKIPTI Nýtt félag sem tekur við rekstri Glitnis var
stofnað á föstudag. Það hefur ekki enn tekið form-
lega til starfa en búast má við að það verði fljótlega.
Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins verður
Birna Einarsdóttir bankastjóri Nýja Glitnis eins og
bankinn mun heita. Birna er framkvæmdastjóri
viðskiptabankasviðs Glitnis.
Formaður stjórnar Nýja Glitnis er Jón Þór
Sturluson aðstoðarmaður Björgvins G. Sigurðssonar
viðskiptaráðherra. Aðrir í stjórn bankans eru Þóra
Hjaltested, Guðjón Ægir Sigurjónsson, Maríanna
Jónsdóttir og Sigmundur Sigurgeirsson.
Eins og áður segir hefur ekki verið gengið
formlega frá því að nýja félagið taki yfir þann hluta
Glitnis sem ætlunin er að verði áfram í rekstri.
Skilanefnd á vegum fjármálaeftirlitsins er því enn að
störfum við Glitni. Hið sama gildir um skilanefnd
fyrir Kaupþing. Að sögn Írisar Bjarkar Hreins dóttur,
talsmanns Fjármálaeftirlitsins, hefur sambærilegt
nýtt félag ekki verið stofnað fyrir Kaupþing.
Fastlega er búist við að mörg hundruð starfsmenn
hjá Glitni missi vinnuna. Sama mun gilda um
Kaupþing. Svava Halldóra Friðgeirsdóttir, formaður
Starfsmannafélags Kaupþings, sagði að tölvuskeyti
hefði borist starfsmönnum þar sem skilanefnd
bankans þakkar þeim fyrir metnað í starfi á undan-
förnum dögum.
Anna Karen Hauksdóttir, formaður Starfsmanna-
félags Glitnis, segist ekkert hafa heyrt af fyrirætlun-
um Fjármálaeftirlitsins með bankann. „Þessi óvissa
er vond fyrir alla.“ segir Anna Karen.
- gar
Fjármálaeftirlitið hefur stofnað nýtt félag fyrir Glitni og ráðið nýjan bankastjóra:
Stjórn skipuð fyrir Nýja Glitni
FINNA TIL MEÐ
ÍSLENDINGUM
Trúðarnir í danska sjón-
varpsþættinum Klovn
ræða um áhyggjur sínar af
íslensku efnahagslífi í viðtali
við Fréttablaðið.
SÍÐA 10
Veruleikans kalda ró
ÖLD ER LIÐIN FRÁ FÆÐINGU STEINS STEINARRS.
VELT ER UPP SPURNINGUNNI UM HVER SÉ
NÚ STAÐA ÞESSA SKÁLDJÖFURS Í VITUND
ÞJÓÐARINNAR. SJÁ MENNINGU
VIÐSKIPTI Gunnar Sigurðsson, for-
stjóri Baugs, segir stöðuna sem
upp er komin í Bretlandi eftir
gjaldþrot íslensku bankanna vera
súrrealíska. „Aðstæðurnar sem
hafa skapast fyrir Baug og fyrir-
tæki félagsins eru mjög sérstakar.
En þetta er eitthvað sem við erum
að reyna að vinna úr,“ segir
Gunnar.
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnar-
formaður Baugs, tekur í sama
streng. „Það er hart sótt að okkur í
Bretlandi og það virðist ekki ætla
að verða létt verk fyrir íslensk fyr-
irtæki að lifa þetta af,“ segir Jón
Ásgeir.
Sir Philip Green, einn umsvifa-
mesti kaupsýslumaður Bretlands-
eyja, hefur verið orðaður við hugsan-
leg kaup á starfsemi Baugs í
Bretlandi.
„Green er ekki búinn að kaupa
félagið, það er alveg ljóst. En vissu-
lega hefur hann áhuga á einhverj-
um þessara eigna. Þetta eru góðar
eignir,“ segir Jón Ásgeir.
Breska viðskiptablaðið Financial
Times greinir frá því að Sir Philip,
sem er eigandi verslana á borð við
BHS og Topshop, hafi í hyggju að
leggja allt að tvo milljarða punda,
jafnvirði um 77 milljarða króna, inn
í Baug. Eins og fram kom í Frétta-
blaðinu í gær funduðu Baugsmenn
með Green og Björgvin G. Sigurðs-
syni viðskiptaráðherra á föstudag.
Í frétt sinni hefur Financial
Times eftir Green að viðræðurnar
hafi snúist um kaup hans á öllum
skuldum Baugs í hinum gjaldþrota
íslensku bönkum. „Allar eigurnar
hafa verið frystar. En ég vil ekki að
þessi fyrirtæki fari á hausinn og
það vilja Jón og Gunnar ekki held-
ur,“ hefur blaðið eftir Green. Enn
fremur segir í frétt blaðsins að for-
svarsmenn Baugs hafi tjáð Green
að ekki væru allar eigur fyrirtækis-
ins til sölu. Takist samningar um
yfirtöku skuldanna verði Green í
sterkri stöðu til að semja um frek-
ari eignarhlut í fyrirtækinu, að mati
blaðsins.
Hvorki Jón Ásgeir né Gunnar
vilja tjá sig nánar um hugsanlega
aðkomu Greens að fyrirtækinu. - kg
FÓTBOLTI Íslenska karlalandsliðið
tapaði 0-2 fyrir Hollandi í
undankeppni HM í Rotterdam í
gær. Hollenska liðið komst yfir
strax á 14. mínútu en náði aðeins
að bæta einu marki við á meðan
íslenska liðið náði að skapa sér
nokkur ágæt færi.
„Það er náttúrulega alltaf
svekkjandi að tapa en það er líka
spurning hvernig menn tapa. Það
verður að taka það líka með í
reikninginn. Við vorum að spila
við eina af sterkari þjóðum heims
og við getum alveg borið höfuðið
hátt eftir leikinn,“ sagði Ólafur
Jóhannesson landsliðsþjálfari
eftir leikinn. - óój, -óþ, Sjá Íþróttir bls 28
Undankeppni HM í fótbolta:
Tap í Hollandi
Staðan í Bretlandi
orðin súrrealísk
Forstjóri Baugs segir erfiða stöðu komna upp í bresku viðskiptalífi. Stjórnarfor-
maður félagsins segir útlit fyrir lífróður íslenskra fyrirtækja ytra. Hann segir
breska auðkýfinginn Sir Philip Green hafa áhuga á eignum fyrirtækisins.