Fréttablaðið - 13.10.2008, Blaðsíða 10
10 13. október 2008 MÁNUDAGUR
DANMÖRK Fjórða stærsta líkams-
ræktarkeðja Danmerkur, Equinox
sem er í eigu World Class, er talin
brjóta danskar neytendareglur
með því að gera 36 mánaða
bindandi samninga við viðskipta-
vini sína. Aðeins er hægt að segja
samningunum upp með skrifleg-
um hætti hálfu ári fyrirfram.
Þetta er í trássi við dönsk lög,
að sögn danska blaðsins Politiken,
og er málið til skoðunar hjá
umboðsmanni neytenda. Sam-
kvæmt dönsku lögunum má
líkamsræktarstöð aðeins gera
bindandi samning í tólf mánuði og
uppsagnarfresturinn verður að
vera þrír mánuðir. - ghs
Dönsk neytendalög:
Íslensk keðja til
skoðunar
DÓMSMÁL Ákvörðun héraðsdóms,
um að vísa máli landeiganda við
Þjórsá frá, hefur verið kærð til
Hæstaréttar. Landeigandinn,
Daniela Schmitz, hafði farið fram á
að vatnsréttindi ríkisins á jörð
hennar, Skálmholtshrauni, féllu úr
gildi.
Samningarnir voru gerðir um
miðja síðustu öld, þegar ríkið yfir-
tók samninga Fossafélagsins Titan.
Hið sama gildir um meirihluta
jarða á svæðinu og með svipuðum
hætti eignaðist ríkið yfir níu tíundu
hluta vatnsréttinda í ánni. Daniela
stefndi ríkinu og Landsvirkjun
vegna vatnsréttindanna, en Lands-
virkjun hyggst nýta þau fyrir virkj-
anir í Þjórsá. Christiane L. Bahner,
lögmaður Danielu, hefur fært rök
fyrir því að réttur ríkisins til vatns-
réttinda jarðarinnar ætti að teljast
niður fallinn. Ekki hafi verið lýst
kröfu í réttindin árið 1952, þegar
þau voru tekin yfir, og eigandi jarð-
arinnar fengið að nýta réttindin svo
lengi að hefð hafi skapast.
Christiane segir málið vera í
flýtimeðferð og niðurstöðu því að
vænta á næstunni. „Héraðsdómur
tekur nú saman öll gögn og færir
Hæstarétti. Þetta á ekki að taka of
langan tíma.“
Verði krafa landeigandans sam-
þykkt verða virkjanaáform í Þjórsá
í uppnámi. Til þess þarf þó Hæsti-
réttur að snúa frávísun héraðsdóms
við svo málið fái efnislega meðferð.
- kóp
Frávísun í máli landeiganda við Þjórsá um vatnsréttindi kærð:
Frávísun héraðsdóms kærð
CHRISTIANE L. BAHNER Lögmaður
landeiganda segist búast við niðurstöðu
frá Hæstarétti á næstunni. Málið er í
flýtimeðferð. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SVEITASTJÓRNARMÁL „Við erum að
lýsa því yfir að það er verið að
treysta velferðarþjónustuna,“
segir Halldór Halldórsson for-
maður Sambands íslenskra
sveitarfélaga. Sambandið og sam-
gönguráðherra sendu frá sér
yfirlýsingu á föstudag um að
tryggja verði að grunnþjónusta
hins opinbera skerðist ekki þrátt
fyrir tekjusamdrátt og kostnaðar-
hækkanir.
Halldór segir að sveitarfélög
hafi gert ráð fyrir nokkuð miklum
framkvæmdum á þessu ári, sem
hafa af hluta verið fjármagnaðar
með erlendum lánum. Staðan nú
sé hins vegar sú að ekki sé hægt
að fá erlend lán. Því sé litið til
þess að efla Lánasjóð sveitarfé-
laga til að tryggja
að sveitarfélögin
verði fjármögnuð
og velferðarþjón-
ustan skerðist
ekki.
Til að efla Lána-
sjóðinn verða
gefin út veðhæf
skuldabréf, sam-
þykki Seðlabank-
inn aðgerðina.
Vonir standa til að
lífeyrissjóðir
muni kaupa skuldabréfin og hefur
það verið kynnt fyrir landssam-
bandi lífeyrissjóða.
Samband íslenskra sveitarfé-
laga og samgönguráðherra hvetja
sveitarfélög til að endurskoða
fjárhagsáætlanir sínar, í ljósi
efnahagsvandans og forgangsraði
verkefni þannig að stoðir grunn-
þjónustunnar verði styrktar.
Einnig verður leitað til félags-
málaráðuneytis, menntamálaráðu-
neytis og heilbrigðisráðuneytis
um aukið samsstarf.
„Við erum ekki að tala um bein-
harða peninga,“ segir Halldór.
„Heldur að tryggja allt mögulegt
samstarf, samhæfingu upplýs-
ingagjafar og að tryggja almanna-
heillaþjónustu.“
Tryggja á að sveitarfélög geti
lokið umsömdum framkvæmdum,
en síðar verði litið til nýrra fram-
kvæmda. „Hlutverk hins opinbera
er að geta knúið efnahagslífið
þegar það er í lægð.“ segir Hall-
dór. „En þessa dagana erum við að
bíða af okkur storminn sem geisar
og leggja áherslu á velferðarþjón-
ustuna. Þegar storminn linnir
getum við skoðað við hvað við
ráðum til að örva efnahagslífið.“
Aðspurður segir Halldór að það
kæmi sér ekki á óvart ef efnahags-
ástandi nú myndi hafa áhrif á sam-
einingu sveitarfélaga. „Þetta
hefur þau áhrif að reksturinn er
miklu dýrari. Það er ekki hægt að
líta fram hjá því að slíkar aðstæð-
ur geta ýtt á sameiningu í stærri
einingar.“ svanborg@frettabladid.is
Sveitarfélög búa sig
undir harðara árferði
Samband íslenskra sveitarfélag leggur áherslu á að grunn- og velferðarþjónusta
skerðist ekki. Auka á samráð við ríkisstjórn og ráðuneyti velferðarmála. Efla á
Lánasjóð sveitarfélaga með útgáfu skuldabréfa fyrir innanlandsmarkað.
NÝBYGGINGUM FÆKKAR Eitt af því sem hefur valdið sveitarfélögunum á höfuðborg-
arsvæðinu vandræðum er fjöldi byggingarlóða sem hefur verið skilað. Bæjarstjóri
Garðabæjar segir um 500 auðar íbúðir í sveitarfélaginu. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
HALLDÓR HALL-
DÓRSSON
LÖGREGLUMÁL Mikill erill var hjá
lögreglunni í Borgarnesi aðfara-
nótt sunnudagsins. Þrír ökumenn
voru stöðvaðir grunaðir um
ölvunarakstur og þrír til viðbótar
voru grunaðir um að aka undir
áhrifum fíkniefna.
Einn þeirra reyndist vera með
fíkniefni á sér og gerð var húsleit
hjá öðrum þar sem fundust
loftbyssur og lítið magn fíkni-
efna. - þo
Erill í Borgarnesi
Fundu loftbyss-
ur við húsleit
TÉKKLAND Kreppan er áminning til
okkar um að við eigum ekki að
kasta frá okkur grunngildunum í
lífsgæðakapp-
hlaupinu, segir
Vaclav Havel,
fyrrum forseti
Tékklands.
Frelsi og
lýðræði snýst
ekki um óhefta
efnishyggju,
segir hann og
hvetur fólk til
að muna eftir
þeim sem ekki fjárfesta; venju-
lega fólkinu.
Efnahagshrunið sé viðvörun til
hagfræðinga, „sem halda að þeir
skilji allt og að þeir hafi kortlagt
heiminn á vísindalegan hátt,“
segir hann.
Havel kennir græðgi og
hagnaðarfíkn um hvernig ástatt
er í fjármálaheiminum. - kóþ
Fyrrum forseti Tékklands:
Hugsum um
venjulegt fólk
Auglýsingasími
– Mest lesið
EFNAHAGSMÁL „Margt fólk á í
vanda þessa dagana. Til dæmis er
erfitt að vera óbreyttur banka-
maður í dag og finna bylgju
andúðar og ergelsis dynja á sér á
hverjum degi. Hið sama gildir um
verslunarmenn og fleiri,“ segir
séra Hjálmar Jónsson Dóm-
kirkjuprestur. Tugir fólks hafa
komið á bænastundir í Dómkirkj-
unni síðustu daga.
Séra Hjálmar segir mikilvægt
að þjóðin sem heild horfi fram úr
erfiðleikunum. „Dómkirkjan
hefur staðið í 212 ár og ekki hefur
alltaf verið bjart yfir. Nú er verið
að vinna í því að við getum haldið
áfram. Þetta eru engin endalok,“
segir séra Hjálmar. - kg
Séra Hjálmar Jónsson:
Bylgja andúðar
og ergelsis
BÆNASTUND Margir leita hugarróar í
kirkjum landsins þessa dagana.
FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
FÓLK „Það verslar svo mikið af frægu fólki hérna að
maður er hættur að kippa sér mikið upp við þetta, en
okkur fannst sniðugt að skrá niður þekktustu
nöfnin,“ segir Böðvar Schram, Kvennaskólanemi og
starfsmaður hinnar fornfrægu verslunar Pétursbúð-
ar við Ránargötu í gamla Vesturbænum.
Böðvar og samstarfsmaður hans í búðinni, Hannes
Þór Arason, hafa upp á síðkastið skráð niður á lista
nöfn þekktra einstaklinga í þjóðfélaginu sem eiga
erindi í Pétursbúð. Viðskiptavinir geta svo dundað
sér við að skoða listann meðan beðið er eftir
afgreiðslu.
Spurður hver sé þekktasti einstaklingurinn á
listanum góða stendur ekki á svari hjá Böðvari. „Það
er án efa forsætisráðherrann okkar, Geir H. Haarde.
En annars er nóg af nöfnum á listanum, eins og til
dæmis Guðrún Helgadóttir, Gunnar Þórðarson,
Megas, Ragnheiður Steinunn, Ragnhildur Gísladótt-
ir, Benedikt Erlingsson og Dóri DNA. En Dóri DNA
kemur nú samt ekki jafn oft hingað og hinir,“ segir
Böðvar.
Í Bandaríkjunum tíðkast víða að hengja upp
myndir af frægum viðskiptavinum verslana. Böðvar
segir þá hugmynd hafa komið upp, en horfið hafi
verið frá henni snemma. „Það kemur mikið af fólki
úr tónlistar-, sjónvarps- og kvikmyndabransanum
hingað og þetta er allt mjög almennilegt fólk. Við
erum ekkert „starstruck“ hér,“ segir Böðvar og
hlær. - kg
Starfsmenn Pétursbúðar á Ránargötu halda skrá yfir þekkta viðskiptavini:
Geir Haarde sá frægasti
FRÆGÐ OG FRAMI Hannes Þór Arason og Böðvar Schram bíða
spenntir komu næsta fræga viðskiptavinar að búðarborðinu í
Pétursbúð. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
SKOTIÐ Á LOFT Rússneska geimskipinu
Soyuz var skotið á loft í Kasakstan í
gærdag. Um borð er meðal annarra
auðjöfurinn Richard Garriott, sem er
sjötti milljónamæringurinn sem ferð-
ast út í geim frá árinu 2001.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
VERSLUN Flugfélagið Iceland
Express hefur hafið markaðssetn-
ingu á verslunarferðum til
Íslands. Félagið segir í tilkynn-
ingu að aldrei hafi verið mikil-
vægara að fá ferðamenn með
erlendan gjaldeyri til landins.
Félagið auglýsir nú þriggja
daga ferðir til Reykjavíkur frá
Berlín, Kaupmannahöfn og
London. Væntanlegum ferða-
mönnum er bent á að vegna lágs
gengis íslensku krónunnar sé nú
mjög hagstætt að versla í
Reykjavík. Þá ætlar fyrirtækið
einnig að bjóða upp á tískuráð-
gjöf fyrir ferðamenn í samstarfi
við fimm tískuráðgjafa. - þeb
Iceland Express:
Auglýsa Reykja-
vík sem versl-
unarborg
VACLAV HAVEL