Fréttablaðið - 13.10.2008, Blaðsíða 40
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Tveggja manna herbergi
á kr. 5.000 nóttin
Svefnpokapláss
kr. 1.500 nóttin
Gesthús Dúna
Gesthús Dúna - Suðurhlíð 35 - 105 Reykjavík
Pantanir: 588-2100 / duna@islandia.is
Björgunarsveitir frá Alþjóð-legu aurasálinni, Evrópusam-
bandinu, Rússlandi, Alþjóðabank-
anum, Sameinuðu þjóðunum eru
nú á leið til Íslands til að bjarga
íslensku þjóðinni upp úr þeirri
ísköldu fjárhagslegu jökulsprungu
sem hún hefur komið sér í undir
fararstjórn 20 til 30 manna. Einnig
stefna hingað bresku freigáturnar
„Hefnd“ og „Makleg málagjöld“
úr sjóher hennar hátignar Breta-
drottningar undir stjórn flota-
málaráðherranna Gordons Brúns
og Alastair Krútts, þeim er ætlað
að tína saman óskemmdan farang-
ur leiðangursmanna, gera hann
upptækan og skila honum í hendur
réttra eigenda í Bretlandi.
ALÞJÓÐLEGIR fjölmiðlar hafa
sótt mjög hingað til lands að und-
anförnu til að fylgjast með yfir-
lýsingum íslenskra ráðamanna á
gjárbarminum. Þeir standa á því
fastar en fótunum að a) það sé
engum að kenna nema alþjóðleg-
um segulmisvísunum að fólkið
lenti í jökulsprungunni; b) að það
séu ekki til betri menn til að
stjórna hjálparstarfinu en einmitt
þeir sem slysinu ollu með stráks-
legum glannaskap; c) sérstaklega
að þeir treysti sér vel í hjálpar-
starfið einkum í samstarfi við þá
aðila Seðlaferða sem tryggðu þetta
ferðalag og báru ábyrgð á að
öryggismál væru í lagi.
EKKI er víst að framboð Íslands í
öryggisráð Sameinaða Alpa-
klúbbsins bíði hnekki við þetta.
Samt þykir mörgum blaðamönn-
um undarlegt hvernig fjalla-
mennska er stunduð á Íslandi.
Fólk fer í fjallaferðir á risajepp-
um en tekur ekki með sér öryggis-
útbúnað eins og kaðla, hlífðarföt
og ísaxir.
ÁSTANDIÐ á slysstað er nú
þannig að ofan í sprungunni er nú
öll íslenska þjóðin nema eigendur
ferðaskrifstofanna sem skipu-
lögðu ferðina, en þeir flugu í áríð-
andi erindagerðum til sólarlanda á
einkaþotum. Algjör samstaða mun
ríkja meðal íslenskra ferðamanna
sem á gjárbarminum standa og
halda blaðamannafundi að ekki
komi til greina að leyfa alþjóða-
stofnunum eða Evrópusamband-
inu að draga þjóðina upp úr
sprungunni. Þá yrðum við að und-
irgangast ferðareglur þessara
aðila, segja ráðamenn. Enda hafa
útlendingar ekki vit á íslenskum
aðstæðum, svo að það er best fyrir
okkur að ráða þessu sjálf.
Björgunar-
aðgerðir
Í dag er mánudagurinn
13. október, 286. dagur ársins.
8.13 13.14 18.13
8.02 13.59 17.54