Fréttablaðið - 14.10.2008, Blaðsíða 38
26 14. október 2008 ÞRIÐJUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
BESTI BITINN Í BÆNUM
LÁRÉTT
2. kirkjuleiðtogi, 6. óreiða, 8. verslun,
9. heyskaparamboð, 11. mun, 12.
sljóvga, 14. einkennis, 16. tvíhljóði,
17. gagn, 18. suss, 20. hljóta, 21.
faðmlag.
LÓÐRÉTT
1. gleðimerki, 3. í röð, 4. flokkur
sýklalyfja, 5. svelg, 7. niðurstaða, 10.
fálæti, 13. of lítið, 15. málmur, 16. í
viðbót, 19. gylta.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. páfi, 6. rú, 8. búð, 9. orf,
11. ku, 12. slæva, 14. aðals, 16. au,
17. nyt, 18. uss, 20. fá, 21. knús.
LÓÐRÉTT: 1. bros, 3. áb, 4. fúkalyf, 5.
iðu, 7. úrlausn, 10. fæð, 13. van, 15.
stál, 16. auk, 19. sú.
„Ég bý á Seyðisfirði og þar er
allt farið í vetrardvala nema
sjoppan. Þeir eru með ham-
borgara sem mikil alúð er lögð
í. Þetta eru tvímælalaust bestu
landsbyggðar-hamborgararnir.“
Svavar Pétur Eysteinsson í hljómsveitinni
Skakkamanage.
„Leigusalinn minn hefur ekki stað-
ið í skilum við hið opinbera og fyrir
klukkutíma komu hér menn frá
fógetanum og báru mig út,“ segir
leikkonan Halla Vilhjálmsdóttir.
Leikkonan góðkunna hefur verið
búsett í London um skeið en í gær
lenti hún í óvæntri uppákomu
þegar hún var borin saklaus út úr
íbúð sinni. Halla er því heimilis-
laus á götum London. Hún kemst
ekki einu sinni inn í íbúðina því
fulltrúar fógetans skiptu um lása á
henni. „Það er því bara eitthvert
ókunnugt fólk í íbúðinni minni í
kringum dótið mitt.“ Leikkonan
viðurkennir að þetta sé undarleg
tilfinning, hún sé í raun að upplifa
á eigin skinni smækkaða útgáfu af
raunasögu Íslands; einhver standi
ekki í skilum og það bitni á henni.
Tímasetningin á þessum „ham-
förum“ Höllu gætu varla verið
óheppilegri. Hún var nýkomin
heim eftir erfiðar tökur á kvik-
mynd þar sem hún var nánast í
fangelsi í heilan mánuð. Og hafði
hlakkað mikið til að eiga rólega og
notalega stund í íbúðinni sinni.
Ofan á þetta bætast síðan milli-
ríkjadeilur Íslendinga og Breta.
„Ég veit ekki hvort leigusalinn hafi
átt eitthvað í Icesave og sé að
hefna sín á mér,“ segir Halla og
reynir að sjá spaugilegu hliðina á
þessu öllu.
Leikkonan hefur þó í húsaskjól
að venda hjá vinum sínum í Bret-
landi. Og þeir voru ekki lengi að
hringja í þarlenda lögfræðinga
enda hyggst Halla leita réttar síns
fyrir breskum dómstólum. „Þetta
er náttúrlega klárt brot á mínum
mannréttindum,“ segir Halla.
Aðspurð svo hvernig það sé að
vera Íslendingur í Bretlandi um
þessar mundir segir Halla að hún
fái reglulega fræðslu frá ókunn-
ugu fólki um Ísland og fjármála-
kreppuna þar. „Fyrir rúmri viku
voru allir mjög upprifnir yfir því
að maður væri frá Íslandi. Í dag er
manni eiginlega bara vorkennt.“
freyrgigja@frettabladid.is
HALLA VILHJÁLMSDÓTTIR: UNDIRBÝR LÖGSÓKN EFTIR ÚTBURÐ FÓGETA
Halla Vilhjálmsdóttir borin
út úr íbúð sinni í London
HEIMILISLAUS HALLA Leikkonan bar sig vel og sagðist eiga í önnur hús að venda.
Hún ætlar að höfða mál á hendur leigusalanum og er komin með lögfræðinga í
málið. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
„Þessi viðskipti byggjast að miklu leyti upp á
trausti en ekki peningum,“ segir Kristinn
Ólafsson, framkvæmdastjóri slysavarnafé-
lagsins Landsbjargar. Þrátt fyrir gjaldeyris-
skort íslensku þjóðarinnar hefur flugeldainn-
flutningi verið bjargað fyrir horn. „Við
höfðum miklar áhyggjur af flugeldaskorti en
erum búnir að tryggja viðskiptin og fá
flugeldana.“
Kristinn segir að kínverski innflytjandinn
hafi staðið þétt við bakið á íslensku björgun-
arsveitunum og sýnt erfiðleikum íslensku
þjóðarinnar mikinn skilning. Ljóst er að ef
hoggið yrði skarð í flugeldasöluna myndu
björgunarsveitir landsins bera af því mikinn
fjárhagslegan skaða enda hefur flugeldasal-
an verið einn öflugasti þátturinn í fjáröflun-
arstarfi þeirra. „Kínverjar líta svo á að
þessir erfiðleikar muni ganga yfir og vilja
halda viðskiptum sínum við okkur áfram,“
segir Kristinn.
Kristinn tekur fram að þeir í Landsbjörg
hafi komið mjög hreint fram en Kínverjarnir
hafi sýnt því skilning. Hann bjóst þó við að
sprengjuglaða þjóðin í norðri ætti eftir að
finna fyrir breytingum á framboði.
„Við aðlögum okkur auðvitað aðstæðum og
það verður eflaust ekki jafn mikið um að
menn kaupi dýrar og stórar sprengjur heldur
verði meira um fjölskyldupakka,“ útskýrir
Kristinn sem óttast ekki hrun í flugeldasölu.
„Baráttan við náttúruöflin á ekkert eftir að
breytast og við höldum úti sjálfboðaliðum um
land allt. Menn verða auðvitað að stíga
varlega til jarðar og endurmeta sínar
áætlanir en að sjálfsögðu þarf að reka hér
áfram björgunarsveitir.“
- fgg
Skilningsríkir Kínverjar bjarga áramótum Íslendinga
FLUGELDUNUM BJARGAÐ FYRIR HORN Með góðum
stuðningi frá Kínverjum og miklu trausti tókst að
tryggja að flugeldasala Landsbjargar verður með eins
eðlilegu móti og hugsast getur. Kristinn Ólafsson er
framkvæmdastjóri Landsbjargar.
„Mig hefur langað til að prófa að
vera söngvari síðan ég var sextán
ára, en aldrei haft drifkraftinn til
að láta það verða að veruleika,“
segir Skjöldur Eyfjörð hár-
greiðslumeistari sem hefur endur-
gert lag Bubba Morthens, Fjöllin
hafa vakað. Lagið kom á Egó-plöt-
unni Í mynd árið 1982. Spurður um
lagavalið segir Skjöldur það hafa
komið til fyrir hálfgerða slysni.
„Ég var í söngtímum í fyrra þar
sem við áttum meðal annars að
taka íslenskt lag með nýrri nálgun.
Við píanóleikarinn vorum að fíflast
eitthvað og prófuðum þetta lag.
Það kom svo vel út að ég varð alveg
ástfanginn af því og fékk leyfi hjá
Bubba til að taka lagið og breyta
því. Ég fékk Hara-systur til liðs
við mig í bakröddum, en ég og
Örlygur Smári, lagahöfundur og
útsetjari, erum búnir að taka nýja
nálgun á lagið svo Fjöllin hafa
vakað er orðið að ballöðu. Það er
mjög dreymið svo ég vildi bíða
með það fram á haustið því það er
svo kósí tími,“ bætir hann við.
Skjöldur hefur mörgum hnöpp-
um að hneppa því hann á og rekur
Hár og tískuhúsið 101 Skjöldur.
Aðspurður útilokar hann ekki að
gefa út plötu upp á eigin spýtur ef
lagið leggst vel í landann. Skjöldur
lauk nýverið við gerð myndbands
við lagið. „Myndbandið er gert af
David Terrazas og er tekið upp á
„green screen“ svo allt verður
tölvuteiknað á bak við. Það fjallar
svolítið um baráttu góðs og ills, því
við höfum öll þessa innri baráttu,
svo er bara spurning hvora leiðina
maður fer,“ segir Skjöldur, en lagið
og myndbandið er væntanlegt í
spilun eftir tvær vikur. - ag
Skjöldur endurgerir Bubba-lag
LEGGUR SÖNGINN FYRIR SIG Skjöldur
Eyfjörð hefur breytt laginu Fjöllin hafa
vakað í ballöðu. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Stefán Karl Stefánsson, leikarinn
góðkunni, er mættur til New York
þar sem hann undirbýr sig fyrir
söngleikinn um Grinch, eða Trölla.
Stefán er því staddur í háborg
verslana og viðskipta og ætti því
að vera upplýstur um hvernig
gangi hjá hans gömlu þjóð. Eins
og Fréttablaðið
hefur greint frá
er Stefán hættur
hjá Latabæ og
er væntanlega
ánægður með
það enda yrði
það væntanlega
erfitt að semja
við leikara um
laun í íslensk-
um krónum
sem býr í
dollara-landinu.
Einar Bárðarson hefur fundið
rétta manninn í framkvæmdastjóra-
stöðu Concert, umboðsskrifstofu
stjarnanna, eins og það er orðað
í fréttatilkynningu. Sá ætti ekki að
vera á flæðiskeri staddur þegar
kemur að gleði og glaum
því framkvæmdastjórinn er
Atli Rúnar Hermanns-
son, oftast nefndur Atli
skemmtanalögga. Þeir
Atli og Einar hafa
komið sér fyrir í
Reykjanesbæ
þar sem Conc-
ert verða með
skrifstofu og velta
menn því nú fyrir sér
hvort Einar sé að hefja innrás frá
Keflavík í stað útrásar frá Íslandi.
Það vakti nokkurn leiða hjá mörg-
um þegar Ipoddarnir í Gljúfra-
steini, sem eiga að leiða gesti um
heimili Nóbelsskáldsins Halldórs
Laxness, voru merktir í bak og fyrir
með lógói Glitnis. Svo fór þetta í
taugarnar á hópi áhugafólks um
íslenska menningu að hann keypti
nýja Glitnis-lausa Ipodda
og gaf safninu. Á heimasíðu
Gljúfrasteins má nú lesa
þessa tilvitnun í Sölku
Völku: „...þegar öllu er
á botninn hvolft þá
er lífið þó umfram
alt saltfiskur en ekki
draumaríngl?”
- fgg, drg
Veljum íslenskt
VEISTU SVARIÐ
Svör við spurningum á síðu 8
1 Björgvin G. Sigurðsson.
2 Klaufar.
3 Auðun Helgason úr Fram.
FRÉTTIR AF FÓLKI