Fréttablaðið - 16.10.2008, Blaðsíða 23
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Söng- og kvikmyndagerðarkonan
Vera Sölvadóttir á myndarlegt
lopapeysusafn en móðir hennar og
amma hafa um árin séð til þess að
henni verði ekki kalt. Hún segist
eiga heilan lager af lopapeysum og
vera mjög hrifin af stórum og
hlýjum yfirhöfnum.
„Ein af mínum uppáhaldspeysum
er risastór svört lopapeysa af vini
mínum og nágranna Jósep Marzolla.
Við höfum sameiginlegt fatahengi
en hann býr á hæðinni fyrir ofan
mig. Hann fór að taka eftir því að
ég var alltaf að laumast í peysuna
hans og það endaði með því að hann
gaf mér hana,“ segir Vera sem býr
að eigin sögn í franskri kommúnu í
miðbænum. Hún lærði
kvikmyndagerð í Frakklandi en
Jósep er kvikmyndagerðar- og
tónlistarmaður. Þá eru tveir aðrir
íbúar hússins með tengsl við
Frakkland.
Vera segist annars hafa nokkuð
einfaldan fatasmekk og þó að hún
eigi fullt af fötum gengur hún mest
í nokkrum útvöldum flíkum sem
hafa hitt í mark. Þá er hún nýfarin
að ganga aftur í kjólum eftir að
hafa lengst af hallast að
gallabuxum.
Fyrsta breiðskífa Veru og
hljómsveitar hennar BB&Blake er
væntanleg fyrir jól en í vikunni
kemur önnur smáskífa sveitarinnar
út. Hún ber nafnið Spy.
Hljómsveitin, sem er skipuð Veru
og Magnúsi Jónssyni, mun spila á
Iceland Airwaves en hún opnar
tónleikana í Tunglinu annað kvöld.
vera@frettabladid.is
Ásældist peysu grannans
Vera Sölvadóttir á lager af lopapeysum sem mamma hennar og amma hafa séð henni fyrir. Hún er það
hrifin af lopanum að hún gat ekki séð peysu nágrannans í friði og komst hún að lokum í hennar hendur.
Vera er hrifin af stórum og hlýjum yfirhöfnum en peysuna fann hún í fatahengi nágrannans. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
ÓLYMPÍSKAR LYFTINGAR, fimleikaæfingar og
leikfimisæfingar eru á meðal þess sem blandað er saman í
crossfit í World Class á Seltjarnarnesi. Gengið er út frá því
að alhliða hreyfing skili sem mestum árangri og því hlaupa
þátttakendur, hjóla, róa og synda. Næsta námskeið hefst
29. október.
VERÐHRUN
landsins mesta úrval af sófasettum - yfir 200 tegundir
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Patti lagersala
verð áður 186.900
kr.99.900,-
aðeins
Bjóðum
10 horn
sófa
4 mism
unandi
áklæði