Fréttablaðið - 16.10.2008, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 16. október 2008 3
T
ískuvikunni sem lauk í
París á dögunum verður
minnst fyrir það
einkennilega andrúms-
loft sem ríkti meðan á tískusýn-
ingunum stóð vegna fjármála-
kreppunnar. Ekki auðvelt að
gleyma sér í lúxus og kampavíni
meðan bankar heims riða til
falls.
Tískuvikan var þó ekki
átakalaus með öllu því strax að
lokinni sýningu tískuhúss
Valentino var tilkynnt um
brotthvarf hönnuðarins Aless-
öndru Faccinetti. Hún tók við af
meistaranum gamla, Valentino
Caravani, fyrir aðeins ellefu
mánuðum en hann dró sig í hlé á
árinu eftir fjörutíu og fimm ára
starf. Þetta var hennar þriðja
tískusýning, sú fyrsta var í mars,
hátískan í júlí og svo þessi.
Svo virðist sem ráðning
Alessöndru Faccinetti hafi verið
mikil mistök þrátt fyrir að hún
hafi reynt að gera nokkra
andlitslyftingu á stíl Valentinos.
Hún ætlaði sér að bjóða upp á
meiri breidd í fatnaði svo sem í
dagklæðnaði en Valentino var
einna þekktastur fyrir glæsilega
kvöldkjóla. Á sama tíma virðast
kvöldkjólarnir hafa gleymst og
eldri konur sem kannski höfðu
einmitt ríflegri efnahagslega
getu til að versla hjá tískuhúsinu
og ganga í Valentino-kjólum
hurfu á braut. Því tapaði
tískuhúsið fleiri viðskiptavinum
en áttu að vinnast með nýja
stílum. Einnig segja heimildir
innanhúss hjá Valentino að
Alessandra Faccinetti hafi átt í
miklum erfiðleikum með að
vinna með samstarfsfólki sínu.
Það eru Maria Grazia Chiuri
og Pier Paolo Piccioli sem taka
nú við hönnuninni en þau hafa í
tíu ár starfað hjá Valentino í
fylgihlutahönnun svo sem
töskum, skóm og fleiru. Fylgi-
hlutir hafa einmitt verið í mikilli
sókn hjá Valentino sem skiptir
gríðalegu máli í dag í tískunni
því mörg tískuhús byggja hagnað
sinn á fylgihlutum. Fyrir vikið
var tískupressan ekki mjög
vingjarnleg í umfjöllun sinni um
sýningu Valentino en lofaði
mikið hönnun Alber Elbaz hjá
Lanvin. Verslunareigendur og
innkaupastjórar segja reyndar á
bak við tjöldin að fatnaður
Lanvins sem sýndur var sé
ónothæfur þrátt fyrir að
tískublaðamenn tali um næstum
fullkomna sýningu í blöðunum.
En svona virkar tískuheimur-
inn, annað hvort ertu „in“ eða
„out“ sem ekki er alltaf í
samræmi við listræna sköpun
eða hæfileika. Þannig dettur ekki
nokkrum manni í hug að
gagnrýna Karl Lagerfeld og
segja að hann hjakki í sama
farinu hjá Chanel og að það sé
langt síðan hann hafi gert
nokkuð annað en endurvinna
gamlar lummur Coco. Flestir
tískublaðamenn eru sömuleiðis
með afslátt í tískuhúsunum ef
þeir eru ekki hreinlega hlaðnir
gjöfum. Þannig tryggja rótgróin
tískuhús sér góða umfjöllun.
bergb75@free.fr
Tár og tregi á tískusýningu
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Nucleo hefur opnað sérverslun á
Íslandi, í sama húsnæði og kven-
fataverslunin Basler í Skipholti 29
b.
Nucleo er ítalskt merki sem
selur barnafatnað ætlaðan börn-
um á aldrinum 0 til 14 ára. Er þetta
í fyrsta sinn sem verslun undir
merkjum Nucleo er opnuð utan
Ítalíu.
Fötin þykja falleg, vönduð og
endingargóð.
Þess má geta að í Basler er hægt
að fá Olang-kuldskó í öllum stærð-
um, bæði á börn og fullorðna, sem
þegar hafa náð ágætum vinsæld-
um á Íslandi.
- aóv
Vandað og
endingargott
Á Íslandi hefur nú fyrsta Nucleo-
verslunin verið opnuð utan Ítalíu.
Kjóll og samfella á 9.500 krónur.
Úlpa á 10.500 krónur
og stígvél á 8.500
krónur.
! "#
$%&
'
'
(
)(
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki