Fréttablaðið - 16.10.2008, Blaðsíða 47
FIMMTUDAGUR 16. október 2008 27
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 16. október 2008
➜ Tónleikar
20.00 Fimmtudagsforleikur
Hljómsveitirnar Hvar er Mjallhvít,
Happy Funeral, Óskar Axel og Coral
koma fram ásamt danshópnum
Ice on fire. Aðgangur ókeypis. Hitt
Húsið, Pósthússtræti 3-5.
➜ Opnanir
16.30 Sauðskinn, saffían og
shirtingur Opnun sýningar í tilefni
af aldarafmæli bókbandsstofu í
Þjóðarbókhlöðunni, Arngrímsgötu 3.
➜ Sýningar
Þjóðin, landið og lýðveldið Sýning
á ljósmyndum og kvikmyndum
Vigfúsar Sigurgeirssonar frá 1936-
1960 í myndasal Þjóðminjasafnsins,
Suðurgötu 41. Opið alla daga nema
mánudaga kl. 11-17.
➜ Tónlist
22.00 Bít Box kvöld Reggae/
Dub hljómsveitin Ojba Rasta
spilar reggae-húsganga í bland við
frumsamið efni. Aðgangur ókeypis.
Glaumbar, Tryggvagötu 20.
12.15 Hádegistónleikar Haukur
Gröndal og Kjartan Valdemarsson
leika frumsamda tónlist í Vonarsal
SÁÁ, Efstaleiti 7.
21.00 Jazzkvintettinn Draumar
og hljómsveitin Spilispil verða
með tónleika á Kaffi Rósenberg,
Klapparstíg 25.
➜ Uppákomur
Listahátíðin Sequences stendur nú
yfir. Nánari upplýsingar á www.
sequences.is
19.00 Klive heldur tónleika í
tengslum við Airwaves í Kling &
Bang, Hverfisgötu 42.
22.00 FM Belfast & Reykjavík!
verða með tónleika í
The Lost Horse Gallery,
Skólastræti 1.
➜ Leiklist
20.00
Þjóðleikhúsið
verður með
sýningu á
leikritinu Sá ljóti
í Sláturhúsinu,
menningarsetri á
Egilsstöðum.
➜ Myndlist
Sólveig Eggertz sýnir akrýlmyndir á
Hrafnistu, menningarsal á 1. hæð.
Sýningin er opin alla daga og stend-
ur til 10. nóv.
Pleinairism i8 gallery er
með sýningu á verkum 38
myndlistarmanna frá ýmsum
löndum. i8 gallery,Klapparstíg 33.
Opið þri.- fös. 11.00-17.00 og lau.
13-17.00. Upplýsingar um viðburði
sendist á hvar@frettabladid.is
Annað kvöld frumsýnir
Þjóð leikhúsið Hart í bak
eftir Jökul Jakobsson á
Stóra sviðinu í leikstjórn
Þórhalls Sigurðssonar. Er
þetta í þriðja sinn sem verk-
ið er sett á svið í Reykjavík
en það var frumsýnt 1962 í
Iðnó.
Hart í bak hefur löngum verið
sagt tímamótaverk, naut gríðar-
legra vinsælda þegar Leikfélag
Reykjavíkur var að breytast í
atvinnuleikhús. Það átti sér þó
fyrir rennara í vinsældasýningum
íslenskum, meira að segja á sviði
Iðnó, eins og Kjarnorku og kven-
hylli eftir Agnar Þórðarson og
Deleríum Búbónis eftir þá Múla-
bræður, Jónas og Jón. Sá nýi tónn
sem sleginn var í verkinu, en áður
hafði Jökull komið á svið verkinu
Pókók, var sumpart sóttur til
Tennessee Williams, en Gísli Hall-
dórsson, leikari og leikstjóri, réði
miklu um hvernig Hart í bak varð
til og hafði fáum árum fyrr leikið í
Glerdýrum Tennessee. Hart í bak
hóf hinn skamma en afkastamikla
feril Jökuls sem leikskálds. Jökull
hefði orðið 75 ára nú í haust. Þjóð-
leikhúsið minnist höfundarins
með uppsetningu sinni, en Jökull
átti mest af sínum ferli framan af
í Iðnó í skjóli Sveins Einarssonar
en síðari hlutann í Þjóðleikhúsinu.
Í Hart í bak kynnumst við sögu
reykvískrar fjölskyldu sem má
muna sinn fífil fegurri. Jónatan
skipstjóra var eitt sinn trúað fyrir
óskafleyi þjóðarinnar, en hann
sigldi skipinu í strand. Nú situr
hann fyrir utan húskofa fjölskyld-
unnar, gamall og blindur, og ríður
net. Dóttir hans, Áróra, sem eitt
sinn þótti besti kvenkostur bæjar-
ins, sér fyrir fjölskyldunni með
spákonuvinnu og þiggur fé fyrir
næturgreiða. Í Láka syni hennar
logar eldur, en hann sér hvergi
leið til að láta draumana rætast.
Í sviðsetningu Þórhalls Sigurðs-
sonar leikur Gunnar Eyjólfsson
Jónatan og Áróru leikur Elva Ósk
Ólafsdóttir. Þórir Sæmundsson
leikur Láka og ungu stúlkuna leik-
ur Þóra Karítas Árnadóttir. Pálmi
Gestsson leikur Finnbjörn skran-
sala en aðrir leikendur eru Esther
Talía Casey, Hjalti Rögnvaldsson,
Kjartan Guðjónsson, Friðrik Frið-
riksson og Þórunn Lárusdóttir.
Baldur Trausti Hreinsson tekur
við hlutverki Friðriks á fyrstu
sýningunum.
Sigurjón Jóhannsson hannar
leikmynd sýningarinnar og gerir
búninga ásamt Margréti Sigurðar-
dóttur. Um tónlist og hljóðmynd
sér Jóhann G. Jóhannsson en
Jóhann Bjarni Pálmason hannar
lýsingu. pbb@frettabladid.is
Hart í bak aftur á svið
LEIKLIST Þórir Sæmundsson sem Láki, strákurinn sem vill komast burt úr þorpinu.
MYND ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ/EDDI
STOFUTÓNLEIKAR
Á LISTAHÁTÍÐ 2009
Auglýsingasími
– Mest lesið