Fréttablaðið - 18.10.2008, Blaðsíða 23
LAUGARDAGUR 18. október 2008 3
Ýmissa grasa hefur kennt á tísku-
vikunni í Úkraínu sem stendur í
raun yfir í tvær vikur nú í lok
október, en þó hafa töffaraleg og
allt að því karlmannleg kvenföt
verið nokkuð áberandi. Skýrasta
dæmið um þetta var vetrarlína
fatahönnuðarins Victoriu
Gres, en hún virðist hafa
leitað eftir hugmynd-
um í heimi sígildra
glæpa- og hasar-
mynda. Stemmn-
ingin á svo
sannarlega
við um þess-
ar mundir
þar sem
styttist í að
frumsýnd
verði ný mynd
um ofurnjósnarann
James Bond, en í heimi
hans er töffaraskapur-
inn allsráðandi eins og
alkunna er. Í það
minnsta er ljóst að úkr-
aínskar dömur þurfa
nú að setja upp hatt og
bindi, vilji þær tolla í
tískunni.
Tískuvikan í Úkra-
ínu stendur út mánuð-
inn og má vænta þess
að þarlendir hönnuðir
sendi frá sér fleiri
spennandi útspil áður
en yfir lýkur.
Hasar í heimi tískunnar
Fatahönnuðurinn Victoria Gres sótti innblástur sinn fyrir nýju kvenfatalínuna sína til hasarmyndahetja á
borð við James Bond. Afraksturinn mátti sjá á tískuvikunni í Úkraínu sem nú stendur yfir.
Stuttur jakki og skærbleikt bindi gefa annars
herralegum klæðnaði skvísulegt yfirbragð.
Þessar dömur áttu greinilega
von á árás og gættu þess að láta
ekki koma aftan að sér.
Bolir með
áletrunum
eru greini-
lega enn á
uppleið í
Úkraínu.
Háskaleg fatasam-
setning sem þó
hittir beint í mark.
NÝTT BINDI getur lífgað verulega upp á gömlu jakkafötin og þarf
ekki endilega að kosta mikið. Ódýrir fylgihlutir geta nefnilega gert
heilmikið fyrir útlitið.
kr. 5.000,-
Allir frakkar
A l l t þ a r f a ð s e l j a s t f y r i r þ a n n t í m a
kr. 5.900,-
Jakkaföt frá Allar íþróttatreyjur
kr. 3.000,-
Allar skyrtur
kr. 1.000,-
Gallabuxur frá
kr. 990,-
Opið til kl. 18.00 laugardag
P
IP
A
R
• S
ÍA
HERRA HAFNARFJÖRÐUR
Á ÞRIÐJUDAG VEGNA BREYTINGA