Fréttablaðið - 22.10.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Allt sem þú þarft... ...alla daga
Fréttablaðið er með 116%
meiri lestur en Morgunblaðið.
33,47%
72,34%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í maí–júlí 2008.
Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
22. október 2008 — 289. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
SVEINBJÖRG ÞÓRHALLSDÓTTR
Naut lífsins með sínum
nánustu í Frakklandi
• ferðir • heimili • bílar
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
Sveinbjörg Þórhallsdóttir, dans-
ari og danshöfundur hjá Panic
Productions, naut lífsins með fjöl-
skyldu og vinum í Suður Flandi í
húsaþyrpingar, skoðuðum gaml-
an kastala og örkuðum um þröngar götur þ
mat og drykk og gb
Fríin gerast varla betri
Sveinbjörg Þórhallsdóttir dvaldi í Mougins í Suður-Frakklandi í sumar. Hún heimsótti Cannes, Nice og St.
Paul de Vence og átti góðar stundir í faðmi fjölskyldu og vina.
Sveinbjörg naut lífsins með fjölskyldu og vinum í Suður-Frakklandi.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
BARNALEIKFÖNG eru oft á víð og dreif um stofuna og önnur
rými heimilisins þar sem lítil kríli búa. Sniðugt er að koma upp barna-
krók í stofunni, jafnvel með skilrúmum svo hann verði svolítið eins og
dúkkuhús og þar geta börnin verið með leikföngin sín vilji
þau njóta nálægðar foreldra sinna á meðan þau leika sér.
Ofsi kemur út
Saga Einars Kárasonar sem
kemur út í dag fjallar um
aðdraganda Flugumýr-
arbrennunnar, sem
átti sér stað aðfaranótt
22. október árið
1253.
TÍMAMÓT 14
JÓLAHLAÐBORÐ
Gómsætar veitingar,
skemmtanir og böll
Sérblað um jólahlaðborð
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
jólahlaðborðMIÐVIKUDAGUR 22. OKTÓBER 2008 Soho Catering býður upp á tapasveislu í heimahús og fyrirtæki.SÍÐA 2
BJÖRN JÖRUNDUR FRIÐBJÖRNSSON
Ný dönsk í fangelsi
Fengu hjálp fanga í kvennafangelsinu
FÓLK 22
Gáfu lag í auglýsingu
Jónsi og félagar í Sigur
Rós gáfu lag sitt í
auglýsingu
þar sem
hvatt er til
samstöðu
þjóðarinnar.
FÓLK 22
FÓLK „Ég samdi ljóðið í desember í
fyrra. Þá var þetta slæmt en mig
grunaði aldrei að þetta gæti orðið
svona vont,“ segir
Halldóra Ársæls-
dóttir menntaskóla-
nemi. Halldóra
sigraði í ljóða-
slammkeppni í
Borgarbókasafninu
í vor með ljóðinu
Verðbréfadrengur-
inn. Það fjallar um
verðbréfasala sem
fer illa út úr
fjármálakreppu, missir vinnuna og
Hummer-bíl sinn svo fátt eitt sé
nefnt. Halldóra var fimmtán ára
þegar hún samdi ljóðið. Ungskáld-
ið segir þó að allt krepputalið hafi
lítil áhrif á sig og skólaafélagana í
MR. „Það er kannski helst að
maður geti ekki keypt sér nýjar
buxur.“ - fgg / sjá síðu 18
Halldóra Ársælsdóttir:
Ungskáld sá
hrunið fyrir
HALLDÓRA
ÁRSÆLSDÓTTIR
DÝRAHALD „Ég man ekki eftir öðrum eins
kattaáhuga eins og þetta haustið, það er
greinilegt að fólk sækir í að fá sér dýr,“
segir Sigríður Heiðberg, formaður Katta-
vinafélags Íslands og forstöðumaður í Katt-
holti.
Í síðustu viku fengu þrettán Kattholts-
kettir ný heimili. Það er óvenjumikill fjöldi
nýrra heimila á einni viku. Kettirnir ætt-
leiddu voru á öllum aldri, allt frá kettling-
um til stálpaðra fresskatta.
Sigríður segir að alltaf sé mikið að gera í
kattabransanum á haustin. Hins vegar slái
þetta haust öll met. „Nú þegar fólki líður
illa finnur það hvað er gott að hafa dýrin hjá
sér. Dýrin gefa okkur svo mikið. Við þurfum á
þeim að halda, rétt eins og þau á okkur. “
Sigríður finnur ekki fyrir nokkrum sam-
drætti í starfsemi Kattholts. Lífið gangi sinn
vanagang meðal heimilisdýranna sem aldrei
eru undir áttatíu talsins. Þeirra á meðal eru
nokkrir kettir sem staldrað hafa lengi við í
Kattholti. „Ég reyni eftir besta móti að komast
hjá því að svæfa kettina, enda er ég alveg á
móti svæfingum. Við eigum frekar að stemma
stigu við offjölgun dýranna heldur en að lóga
þeim. Við eigum að taka ábyrgð á dýrunum
okkar.“ holmfridur@frettabladid.is
Forstöðumaður í Kattholti man ekki annan eins kattaáhuga og í haust:
Kettirnir rjúka út úr Kattholti
SKÚRIR EÐA ÉL Í dag verða suð-
austan og austan 5-10 m/s hvassast
á Vestfjörðum. Rigning eða slydda
sunnan til og vestan, skúrir eða él á
Vestfjörðum og sumstaðar nyrðra.
Hiti 1-5 stig en vægt frost NA-til.
VEÐUR 4
1 -2
-1
13
EFNAHAGSMÁL Bankar og fjármála-
fyrirtæki, sem Seðlabanki krafði í
gær um tryggari veð fyrir endur-
hverfum viðskiptum upp á tugi
milljarða króna, hafa fengið viku-
frest til að útvega veðin eða losa
um eignir. Þetta var ákveðið eftir
stíf fundahöld forsvarsmanna
bankanna, ráðherra í ríkisstjórn og
Seðlabankans í gær.
Icebank, eða Sparisjóðabankinn,
þarf að útvega tryggingar fyrir um
60 milljörðum. Saga Capital og
Straumur hafa þegar lagt fram við-
bótarveð, en veðkall Seðlabankans
kemur mjög mismunandi við fjár-
málafyrirtækin.
„Ef Seðlabankinn væri venju-
legt fyrirtæki eða banki stæði hann
nú hugsanlega frammi fyrir tækni-
legu gjaldþroti. Komi til umtals-
verðs eignatjóns bankans kemur í
hlut ríkissjóðs að leggja honum til
nýtt fé svo að hann verði starf-
hæfur,“ segir Ólafur Ísleifsson,
lektor í hagfræði, en Seðlabankinn
sér nú fram á mögulegt útlánatap
upp á 300 til 350 milljarða króna
vegna hruns íslenskra fjármála-
stofnana. Seðlabankinn segir í yfir-
lýsingu að hann hafi eins og aðrir
slíkir bankar leitast, með fyrir-
greiðslu sinni, við að auðvelda
starfsemi innlendra fjármálafyrir-
tækja í fjármálakreppunni. „Seðla-
bankinn fylgdi í því efni fordæmi
annarra seðlabanka og jók fyrir-
greiðslu sína og þar með áhættu.
Hann gekk þó ekki jafn langt og
þeir seðlabankar sem lengst
gengu,“ segir í yfirlýsingunni.
Seðlabankinn segir ekki enn ljóst
hvert endanlegt tjón verður. Ólaf-
ur Ísleifsson bendir á að í þjóðnýt-
ingu Glitnis hafi Seðlabankinn talið
rétt að hafna viðurkenndum veðum
langt umfram lánsfjárhæð. „Hið
gagnstæða hefur nú gerst þegar
teknar hafa verið ófullnægjandi
bankatryggingar sem veð fyrir
lánum til bankastofnana fremur en
tryggingar í eignum bankanna,“
segir hann og bætir við að mjög
brýnt sé að koma skikki á málin
með atbeina Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins. - bih / sjá Markaðinn
Sjö dagar til að útvega veð
Fjármálafyrirtæki fengu vikufrest í gær til að láta Seðlabanka í té frekari tryggingar fyrir endurhverfum
viðskiptum. Ríkissjóður þarf hugsanlega að leggja Seðlabanka til nýtt fé svo hann verði starfhæfur.
MENNING Gunnar Theodór
Eggertsson hlaut í gær Íslensku
barnabókaverðlaunin fyrir sögu
sína Steindýrin. Gunnar Theodór
er bókmenntafræðingur og
kvikmyndafræðingur að mennt.
Steindýrin eru hans fyrsta bók
en hugmyndin kviknaði þegar
hann vann við að segja börnum
sögur og ævintýri í frístunda-
heimilinu Hlíðaskjóli í Reykja-
vík en verðlaunaafhendingin fór
einmitt fram í Hlíðaskóla.
Í umsögn dómnefndar segir að
Steindýrin sé „hörkuspennandi
og frumleg ævintýrasaga sem
sæki efnivið sinn í þjóðsögur og
ævintýri en er þó engu lík“.
Gunnar Theodór hlýtur að
launum 400 þúsund krónur og
viðurkenningarskjal en Vaka-
Helgafell gefur bókina út. - bs
Íslensku barnabókaverðlaunin:
Nýliði hreppti
hnossið í ár
HÖFUNDURINN MEÐ LESENDUM
SÍNUM Verðlaunin voru afhent í Hlíða-
skóla í gær en hugmyndin að bókinni
kviknaði þegar Gunnar Theodór samdi
sögur fyrir krakkana í frístundaheimil-
inu Hlíðaskjóli. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SIGRÍÐUR HEIÐBERG
Markaveisla
Það voru skoruð
36 mörk í 8 leikj-
um í Meistara-
deildinni í gær.
Ensku liðin unnu
góða sigra.
ÍÞRÓTTIR 17