Fréttablaðið - 24.10.2008, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 24.10.2008, Blaðsíða 54
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Þórgunnar Oddsdóttur Iðnaðarveldið Akureyri mátti muna sinn fífil fegurri þegar ég var að alast þar upp. Ég er því ekki ein þeirra sem geta kallað fram bragðið af Valash-drykknum víð- fræga með því einu að loka augun- um og aldrei var ég svo heppin að eiga Duffys-buxur frá Gefjun. Hins vegar rámar mig í að hafa fengið Act-spariskó frá Iðunni tvenn jól í röð og á gelgjunni dró ég fram gamla mokkajakkann hennar mömmu, akureyrska fram- leiðslu frá gullaldarárum verk- smiðjanna, sem var aftur kominn í tísku. ÞAÐ er hálfgerð synd að núna, þegar fjármálaheimurinn er hrun- inn og atvinnuöryggi þjóðarinnar virðist felast í framleiðslustörfum á borð við sjávarútveg og land- búnað, skuli nýbúið að valta yfir öll verksmiðjuhúsin á Gleráreyr- unum til að byggja þar kuldalega verslunarmiðstöð. Nú væri lag að upphefja íslenskan iðnað á ný enda verða þjóðir að vera sjálf- bærar í framleiðslu sinni þegar gjaldeyrishöft vofa yfir og erlend- ar þjóðir vilja ekki leika við okkur lengur. Miðað við svartsýnisrausið er aðeins tímaspursmál hvenær innflutningi á erlendum merkja- fatnaði og heimilistækjum verður beinlínis hætt og hvað ætlum við þá að gera? BEST væri að koma Sambands- verksmiðjunum í gang hið snar- asta og auðvitað þarf Rafha að hefja framleiðslu á hafnfirskum eldavélum og bökunarofnum á ný. Þegar við erum fær um að sjá okkur fyrir mat, græjum og fatn- aði getum við síðan farið í almenni- lega fýlu við stjórþjóðirnar sem voru svo vondar við okkur. Þær geta bara átt sig! Við þurfum ekk- ert á þeim að halda svo lengi sem við höfum Álafossúlpur, slátur og Freyjurís. NÚ verður gaman að lifa. Innlend dagskrárgerð mun blómstra og þættir á borð við Innlit-útlit fá algjörlega nýjan tilgang. Í stað þess að sýna okkur stílhrein heim- ili ríka (eða skuldsetta) fólksins, sem fór og keypti allt í einni ferð í fínustu húsgagnaverslun bæjar- ins, verður boðið upp á fræðandi efni um það hvernig búa megi til borðstofuborð úr áburðarbrettum og hvernig plássið nýtist best þegar fimm þurfa að deila her- bergi. EF við erum heppin má horfa á þessa dásemd með Lindubuff í annarri og ískalt Valash í hinni. Íslenskt, já takk! Í dag er föstudagurinn 24. október, 298. dagur ársins. 8.46 13.12 17.36 8.39 12.57 17.13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.