Fréttablaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
25. október 2008 — 292. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
DAGAR BJÓRLÍKIS OG RÓSA
Hvernig var Ísland árið 1983?
Hvað um foreldrana?
Eygló Guðmundsdóttir sálfræðingur vill
að aðstandendum krabbameinssjúkra
barna sé boðið upp á áfallahjálp.28 22
ALLIR BÍLAR Á EINUM
STAÐ - Á KLETTHÁLSISmiðjuvegi 76 • Kópavogi
Baldursnesi 6 • Akureyri
Mikið úrval af
upphengdum salernum
Opið virka daga frá 8 -18
laugardaga frá10 -15
tengi.is
STREKKINGUR NYRÐRA Í dag
verða norðan 8-13 m/s. Snjókoma
á Vestfjörðum í dag en Norðan-
lands fram á nótt. Bjart með köflum
syðra og úrkomulítið. Frost 1-4 stig
nyrðra, hiti annars víða 0-4 stig.
VEÐUR 4
1
-1
-1
1
2
EFNAHAGSMÁL „Þetta þýðir að ráð-
stöfunartekjur gætu rýrnað um
tuttugu prósent að meðaltali. Rýrn-
unin verður vegna aukins atvinnu-
leysis, fólksflótta og minni vinnu-
tíma. Verðbólgan étur upp
kaupmáttinn og sumar stéttir taka á
sig mikla launalækkun,“ segir Edda
Rós Karlsdóttir, hagfræðingur hjá
Landsbankanum. Alþjóðagjaldeyr-
issjóðurinn (IMF) spáir því að inn-
anlandsframleiðsla dragist saman
um tíu prósent. IMF leggur íslenska
ríkinu til 240 milljarða króna sem
er þriðjungur af áætlaðri fjárþörf
ríkisins vegna efnahagsvandans.
Ríkisstjórnin hefur formlega
óskað eftir samstarfi við IMF um að
koma á efnahagslegum stöðugleika
á Íslandi. Unnin hefur verið ítarleg
efnahagsáætlun í samráði við full-
trúa sjóðsins. Í því felst fjárhagsað-
stoð og ráðgjöf frá sjóðnum til
næstu tveggja ára hið minnsta. Skil-
málar lánsins eru ekki gefnir upp
en fullyrt er að þeir séu ásættanleg-
ir.
Geir H. Haarde forsætisráðherra
og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra vonast til að lánið
marki upphafið að endurreisn
íslenska efnahagskerfisins. Geir
sagði þjóðina hægt og bítandi vera
að vinna sig út úr orrahríðinni. Fólk
mætti ekki missa kjarkinn. „Lánið
mun blása lífi í efnahagsstarfsem-
ina sem núna kólnar mjög hratt,“
sagði forsætisráðherra. Hann dró
upp dökka mynd af fallandi þjóðar-
framleiðslu, auknum halla á ríkis-
búskapnum, meira atvinnuleysi og
óvissu um verðbólguna.
„Útborganir úr sjóðnum munu
ráðast af framvindu þessarar efna-
hagsáætlunar. Það þýðir að hag-
stjórnin verður samstarfsverkefni
íslenskra stjórnvalda og IMF út
kjörtímabilið,“ segir Ólafur Ísleifs-
son, lektor við Háskólann í Reykja-
vík.
Poul Thomsen, yfirmaður
Evrópudeildar IMF, segir IMF gera
ráð fyrir tíu prósenta samdrætti í
innanlandsframleiðslu sem þýðir
að þjóðin er að ganga í gegnum
„áfall án fordæmis,“ eins og
Thomsen orðaði það. „Ísland er að
fara frá því að vera nær skuldlaust
ríki í að verða mjög skuldsett.“
- shá, hhs, ss, gar / sjá síður 4, 6 og 8
Ráðstöfunartekjur
rýrna um 20 prósent
Ríkisstjórnin hefur óskað eftir samstarfi við IMF. Sjóðurinn leggur til 240
milljarða efnahagsaðstoð. Það er þriðjungur af áætlaðri fjárþörf til að koma á
stöðugleika. Ráðstöfunartekjur heimilanna taldar rýrna um tuttugu prósent.
ÞJÓÐARÞROT Í
ÁTJÁN LIÐUM
Hallgrímur Helga-
son fer yfir at-
burðarás undan-
farinna vikna.
HELGARGREIN 24
Á ils.is getur þú:
heimili&hönnunLAUGARDAGUR 25. OKTÓBER 2008
● HÖNNUN
Íslensk hönnun í Ráðhúsinu● RAGNHEIÐUR ÖSP SIGURÐARDÓTTIRSýnir á 100% design tokyo● KRAKK ER NÝ HÖNNUNARVERSLUNÁhersla á endurhönnun
FYLGIR Í DAG
EFNAHAGSMÁL Stórhuga áætlun
Íslands um efnahagsumbætur,
stuðning við krónuna og endur-
reisn fjármálakerfis landsins
réttlætir
aðgengi
þjóðarinnar að
sjóðum
Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins
(IMF), segir í
tilkynningu
Dominiques
Strauss-Kahn,
fram kvæmda-
stjóra sjóðsins.
Strauss-Kahn segir um bótaáætl-
un ríkisins jafnframt verðskulda
stuðning alþjóðasamfélagsins. „Í
áætlun stjórnvalda er lögð áhersla
á fyrstu aðgerðir sem þarf til að
vekja traust og stöðug leika, bæði í
hagkerfi og fjármálalífi landsins.
Markmiðið er svo að styðja
viðleitni Íslands til að laga sig að
efnahagsvandanum á skipulegri
máta og sársaukaminni,“ segir
hann. - óká
Framkvæmdastjóri IMF:
Áætlunin rétt-
lætir aðgengið
STRAUSS-KAHN
BERMÚDA, AP Breski auðkýfingur-
inn Richard Branson varð í gær að
hætta við tilraun sína til að setja
met í að sigla á seglskútu yfir
Atlantshaf eftir að brotsjór reif
aðalsegl bátsins, „Virgin Money“, í
Bermúda-þríhyrningnum. Branson
lenti í brotsjónum tveimur
sólarhringum eftir að hann lagði
upp frá New York-höfn. Börnin
hans tvö voru með í för, Sam, 23
ára og Holly, 26 ára.
Í viðtali við CNN-sjónvarpsstöð-
ina sagði Branson að tólf metra
„risaalda“ hefði brotið á bátnum
aftan frá. „Sem betur fer voru allir
festir og engan sakaði,“ sagði hann.
Markmið Bransons var að setja
nýtt met í að sigla einbytnu frá
New York að Lizard Point á
suðvesturströnd Englands á innan
við sex dögum og tæplega átján
tímum. - aa
Richard Branson:
Skipbrot við
Bermúda
FRÁ RÁÐHERRABÚSTAÐNUM Geir H. Haarde forsætisráðherra og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra sögðu frá því í gær
að ríkisstjórnin hefði formlega óskað eftir samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn um að koma á efnahagslegum stöðugleika á
Íslandi. Samstarfið leggur grunninn að fjölþjóðlegri aðstoð vegna efnahagsvanda þjóðarinnar. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA