Fréttablaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 23
JÓLAHLAÐBORÐ
Í IÐUSÖLUM
Jólahlaðborð fyrirtækja.
Bókið sem fyrst.
Nánari upplýsingar
á idusalir.is
Iðusalir | Lækjargata 2 a - Iðuhúsinu | s: 517 5020 - idusalir@idusalir.is
w w w . i d u s a l i r . i s
VERÐHRUN
landsins mesta úrval af sófasettum - yfir 200 tegundir
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Patti lagersala
kr.49.900,-
verð frá
Takmarkað magn
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Það er varla hægt að fá mýkri bíl
í akstri enda voru þessir bílar
framleiddir fyrir eggjabændur í
Frakklandi svo þeir gætu komist
yfir akrana með eggin óbrotin á
markaðinn. Svo er hann gríðarlega
sparneytinn, eyðir ekki nema
þremur á hundraðið. Ég helli á
hann úr sláttuvélabrúsanum öðru
hvoru,“ segir Guðrún Brynja bros-
andi þegar hún er spurð um kosti
bílsins síns, Citroën CV 2 sem er af
árgerð 1987.
„Svona bíll var draumur minn
frá því að ég var fimmtán ára. Mér
fannst hann svo sætur,“ heldur
Guðrún Brynja áfram. „Reyndar
vildi ég helst hafa hann vínrauðan
og svartan með grind að aftan fyrir
ferðatöskur. En þegar ég sá auglýs-
ingu í gömlu Fréttablaði í desem-
ber 2006 var ég ekki sein á mér að
hafa samband við eigandann og
kaupin fóru fram á þriðja í jólum.“
Guðrún Brynja stýrir blóma-
skreytinganámsbraut Land-
búnaðarháskóla Íslands en rak
eigin blómaverslun í Þorlákshöfn
þegar hún keypti Citroëninn.
„Ég notaði bílinn mest til að fara
með blómasendingar í hús þegar
ég átti búðina en síðan ég skipti um
starfsvettvang hef ég minni not
fyrir hann. Börnin mín elska hann
og eru ekki sátt við að ég sé að spá
í að setja hann á sölu. Nú er ég
reyndar að fara með hann í geymslu
því hann hentar ekki í vetrar-
akstri.“
Ekki kveðst Guðrún Brynja hafa
rekist á marga bræður braggabíls-
ins hennar. „Það eru klúbbar
erlendis kringum svona bíla og
einn slíkur klúbbur kom hingað til
lands í sumar. Fór hringinn held
ég. Ég sá þetta bara í sjónvarpinu
og var voða spæld að vera ekki
boðið með.“ gun@frettabladid.is
Fann draumabílinn sinn
á síðum Fréttablaðsins
Þegar Guðrún Brynja Bárðardóttir sá Citroën-bragga auglýstan í Fréttablaðinu um jólaleytið 2006 festi
hún umsvifalaust á honum kaup enda vantaði hana þægilegan og sparneytinn blómabíl.
„Þessi bíll var notaður eitthvað í sjónvarpsauglýsingar svo hann er dálítið frægur,“ segir Guðrún Brynja ánægð með Citroëninn
sinn sem er rúmlega tvítugur að aldri. MYND/RÚNAR ÁSBERGSSON
VIÐEY er góður áfangastaður fyrir dagsferð með fjöl-
skyldunni. Skemmtilegt getur verið að ganga um eyjuna,
fylgjast með þegar kviknar á friðarsúlunni og fá sér svo
kakó og kleinur í Viðeyjarstofu áður en haldið er aftur í
land. Mikilvægt er þó að vera vel búinn ef kalt er úti.