Fréttablaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 25.10.2008, Blaðsíða 64
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Gerðar Kristnýjar Tölvupósturinn sem erlendir vinir mínir hafa sent mér að undanförnu ber það með sér að þeir hafi áhyggjur af mér. Í stað þess að hvolfa yfir mig skemmti- legum tíðindum úr lífi sínu spyrja þeir mig varfærnislega hvernig mér líði. Samkvæmt fjölmiðlum úti í heimi er íslenska fjármála- kerfið lítið skárra en vanþróaðra Afríkuríkja. Ekki að furða þótt útlenskum vinum finnist ég hljóta að hafa það skítt og það er ef til ágætt orðaval þegar litið er til þess sem íslensk listakona lét út úr sér við norsku pressuna eftir að hafa hætt við sýningu hér á landi. HÚN sagði ekki hægt að selja list í landi þar sem fólk hefði áhyggj- ur af að geta ekki keypt bleiur! Af öllum nauðsynjum kaus hún að nefna einmitt þær en kannski er það viðeigandi, enda eflaust marg- ir með í maganum núna. Þjóðin sem klippti á net Breta í þorska- stríðinu verður nú fyrir því að kortin hennar eru klippt í Kaup- mannahöfn. ÉG SEGI erlendum vinum mínum samt ekkert frá því, heldur útskýri fyrir þeim að hér í storminum miðjum gangi lífið sinn vanagang. Fólk vakni við vetrarsól, haldi til vinnu – eða fari að leita sér að einni slíkri – og sofni undir norður- ljósabreiðum. Mörgum líði ágæt- lega þrátt fyrir allt. Svo hafa gár- ungarnir tekið upp á því að gera grín að öllu saman. Þeir segja að ýmislegt bendi til þess að 8. ára- tugurinn sé runninn upp á nýjan leik. Hér ríki gjaldeyrishöft, óða- verðbólga sé í augsýn, Bretar séu ekki lengur vinir okkar, Abba og Vilhjálmur Vilhjálmsson hafi aldrei verið vinsælli og svo höfum við forsætisráðherra sem heiti Geir. AUÐVITAÐ er algjörlega út í hött að líkja Íslandi saman við einhver vanþróuð Afríkuríki en samt má margt af þeim læra og því hef ég nú útbúið bréf sem ég ætla að senda í tölvupósti um víða veröld og hafa í anda gömlu góðu Nígeríu- bréfanna: Kæri viðtakandi! Ég er prinsessa á fjarlægri eyju úti í Atlantshafi. Sparifé fjölskyldunn- ar minnar var rænt. Til að ná því aftur væri indælt ef þú legðir fullt af evrum, dollurum, cefum eða bara hvaða gjaldmiðil sem er inn á reikninginn minn. Ég lofa að greiða upphæðina margfalt til baka þegar ég hef komist aftur yfir spariféð ... eða að minnsta kosti reyna. Þín Gerður. Prinsessan á bauninni Í dag er laugardagurinn 25. október, 299. dagur ársins. © In te r I KE A Sy ste m s B .V . 2 00 8 www.IKEA.is 8.50 13.12 17.32 8.42 12.56 17.09
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.