Fréttablaðið - 08.11.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
8. nóvember 2008 — 306. tölublað — 8. árgangur
FJÖLMIÐLAR Dagbók Þráins
Bertelssonar rithöfundar birtist í
síðasta sinn í Fréttablaðinu í dag.
Þráinn hefur glatt lesendur með
myndskreyttum dagbókarfærsl-
um í rúmlega
þrjú ár, þar sem
hann rýnir í
þjóðarsálina eins
og honum einum
er lagið. Þráinn
hverfur einnig
úr hópi Bak-
þankahöfunda
blaðsins.
Þráinn hefur
fylgt Fréttablað-
inu frá upphafi. Hann skrifaði
Bakþanka í fyrsta tölublaðið, 23.
apríl 2001, og hefur verið einn
vinsælasti pistlahöfundur
landsins allar götur síðan.
Fréttablaðið þakkar Þráni
kærlega fyrir samstarfið og
samfylgdina í gegnum árin og
óskar honum velfarnaðar á nýjum
vettvangi. - bs / Sjá síðu 18.
Kæra dagbók í síðasta sinn:
Þráinn kveður
Fréttablaðið
ÞRÁINN
BERTELSSON
Ætlar aldrei að segja
kreppa eða krútt aftur
Sindri Már Sigfússon í Seabear
34
FÓLK Seðlabanki Íslands hefur
frestað árshátíð sinni sem átti að
fara fram með pomp og prakt á
Hótel Nordica í kvöld. Davíð
Oddsson og annað starfsfólk
bankans fær því ekki tækifæri til
að sletta úr klaufunum í þetta
sinn, enda kannski lítil ástæða til
miðað við erfiðleikana hér á landi.
Hljómsveitin Buff hafði verið
bókuð á árshátíðina en fyrir
nokkrum vikum var ákveðið að
fresta henni fram í janúar og
þurfti Buff því að bóka sig í
Sjallann á Akureyri í staðinn.
„Það var búið að bóka þetta en
eins og þjóðfélagsástandið er þá
eru mörg fyrirtæki sem sjá sér
ekki fært að halda einhverja
stórfenglega mannfagnaði,“ segir
Páll Eyjólfsson hjá umboðsskrif-
stofunni Prime sem hefur Buff á
sínum snærum. -fb / sjá síðu 62
Aðgerðir í Seðlabanka Íslands:
Árshátíð frestað
fram í janúar
WWW.HEKLANOTADIRBILAR.IS
www.europris.is
DIET COKE- 33 CL
49
ÓDÝRT FYRIR ALLA!
Laugardag
Opið í dag
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Hannaðu heimilið
með Tengi
Opið 10–18
Afsláttar
dagar
ÞURRT NYRÐRA Í dag verða hæg-
ar austlægar áttir. Rigning eða skúrir
á víð og dreif en þó yfirleitt þurrt á
landinu norðanverðu. Hiti 5-10 stig.
VEÐUR 4
6
5
6
77
GRASRÓTIN Í TÓGÓ
Alda Lóa Leifsdóttir segir frá
Tógó, ættleiðingu og Afríku-
félagi í viðtali.
VIÐTAL 22
heimili&hönnunLAUGARDAGUR 8. NÓVEMBER 2008
● INNLITUngir menn á Garði
● HÖNNUNNý lína frá Reyni Sýrussyni
● SPARNAÐARRÁÐ Breyta í stað þess að neyta
VEÐRIÐ Í DAG
FYLGIR Í DAG
EFNAHAGSMÁL Hægt væri að taka
upp aðra mynt, með einhliða
aðgerð og með mun minni gjald-
eyrisforða en þarf til að verja
krónuna, þegar hún verður sett
aftur á flot. Þetta segja Heiðar
Már Guðjónsson og Ársæll Val-
fells í aðsendri grein í Fréttablað-
inu í dag.
„Sá forði sem nú er í Seðlabank-
anum er um það bil tveir milljarð-
ar evra ... Sá forði ætti að duga vel
fyrir skiptunum,“ segja Heiðar
Már og Ársæll.
Þeir benda á að mikil áhætta sé í
því falin að taka sex milljarða doll-
ara lán til að stórefla gjaldeyris-
forðann. „Í núverandi árferði er
mikilvægt að búa til festu. Hún
fæst ekki með óbreyttu gengis-
fyrirkomulagi,“ segir í greinnni.
Þá segja Heiðar Már og Ársæll
að einhliða upptaka annars gjald-
miðils brjóti ekki í bága við EES-
samninginn, en betra sé þó að hafa
IMF og viðeigandi seðlabanka með
í ráðum. - ss/ sjá síðu 16
Ársæll Valfells og Heiðar Már Guðjónsson leggja til að krónan verði lögð niður:
Einhliða upptaka á mynt er ódýrari
BJÖRGUNARSUND Í KÓPAVOGI Það er ekki aðeins í efnahagslífinu sem björgunaraðgerða er þörf. Það vita þau Sara Marteinsdóttir
og Guðmundur Pétursson, starfsmenn Sundlaugar Kópavogs, sem æfðu björgunarsund af kappi í sundlauginni Versölum í gær.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
EFNAHAGSMÁL Margir bændur eiga í
stórkostlegum rekstrarerfiðleikum
þar sem lán þeirra í erlendum gjald-
miðlum hafa hækkað mikið að und-
anförnu. Er nú svo komið að tekjur
vegna afurðasölu og beingreiðslur
frá ríkinu standa ekki undir afborg-
unum af lánum sumra.
Vandinn er mestur meðal kúa-
bænda og einkum þeirra sem hafa
reist fjós eða ráðist í annars konar
fjárfestingar á síðustu misserum og
árum.
Sem dæmi má nefna að mánaðar-
legar afborganir af lánum tiltekins
kúabús á Suðvesturlandi hafa
hækkað um 700 þúsund krónur.
Verðhækkanir á erlendum aðföng-
um á borð við olíu, kjarnfóður og
áburð hlaupa svo á tugum prósenta.
Haraldur Benediktsson, formað-
ur Bændasamtaka Íslands, segir
ástandið mjög alvarlegt en óttast
ekki fjöldagjaldþrot meðal bænda. Í
bönkunum ríki skilningur á erfiðri
stöðu. „Þeir segjast ekki ætla að
ganga að neinum,“ segir Haraldur
sem ræddi á dögunum við banka-
stjóra Kaupþings og Landsbankans.
„Hins vegar er ljóst að þá skortir
heimildir og vitneskju. Eigandinn
hefur ekki sagt þeim hvað þeir megi
og því ekki annað að gera en að setja
allt í bið.“
Haraldur segir nauðsynlegt að
verst stöddu bændurnir fái lán svo
rekstur þeirra stöðvist ekki. Í fram-
haldinu þurfi að vinna í endurfjár-
mögnun og, eftir atvikum, afskrift-
um skulda. Því ríði á að ríkið – sem
eigandi bankanna – móti stefnuna.
Um sjö hundruð kúabú eru í land-
inu og telur Haraldur þau hlaupa á
tugum sem standa verulega illa.
Hann áætlar að um helmingur allra
lána sé í erlendri mynt.
Bændur hafa reynt að hagræða í
rekstrinum hjá sér en úrræðin eru
fá. Fyrir ári höfðu margir mögu-
leika á að selja parta úr jörðum
sínum eða hluta mjólkurkvóta en
hvorugt er söluvara nú. Enginn er
til að kaupa. Þess í stað reyna
nágrannar að samreka bú sín með
einum vélakosti og selja til útlanda
þau tæki sem ekki þarf að nota.
- bþs
Tekjur bænda standa
ekki undir lánunum
Rekstrarforsendur margra búa eru brostnar. Dæmi er um að afborganir hafi
aukist um 700 þúsund á mánuði. Formaður Bændasamtakanna telur ekki líkur
á fjöldagjaldþrotum. Bankastjórar sýna skilning en skortir heimildir til aðgerða.