Fréttablaðið - 08.11.2008, Blaðsíða 38
HEIMILISHALD
RAGNHEIÐUR TRYGGVADÓTTIR
● Forsíðumynd: Valgarður Gíslason tók mynd á heimili
Emils Harðarsonar og Jóns Arnar Árnasonar Útgáfufélag:
365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, s. 512 5000
Ritstjórar: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is, Emilía
Örlygsdóttir emilia@frettabladid.is og Hrefna Sigurjónsdóttir
Auglýsingar: Hlynur Þór Steingrímsson s. 512 5439 Útlits-
hönnuður: Kristín Agnarsdóttir kristina@frettabladid.is.
● HEITAR NÚÐLUR Þetta bráðsniðuga eldhúsáhald hefur tvöfalda
virkni. Það heitir Noooodle SL 16 og er hannað af Konstantin Slawinski,
en o-in fjögur í nafninu vísa til skemmtilegs notagildis þar sem í fjórum
hringjum áhaldsins felast núðlu- og spagettímælar sem mæla ýmist
einn, tvo, þrjá eða fjóra hæfilega skammta í pottinn. Gripurinn nýtist
einnig sem hitaplatti. Fæst í Búsáhöldum, Kringlunni og kostar 2.995 krónur.
● heimili&hönnun
Listamaðurinn Erling Þ. V. Kling-
enberg hjá Kling & Bang sækir
innblástur í fjölnotaherbergi á
heimili sínu. Þar er hann með tölv-
una og ýmsar myndir og minjar.
Má þar nefna leðurklæddan hjálm
með göddum, sem hann keypti í
Kassel í Þýskalandi.
„Hjálmurinn sendir frá sér já-
kvæða strauma en lokar fyrir
þá neikvæðu,“ segir Erling, sem
keypti hjálminn af götulistamanni
í Kassel. Hjálminn notar hann með
góðum árangri þegar hann vantar
innblástur.
Á veggjunum vaka svo hinar
ýmsu ljósmyndir af ættingjum og
vinum yfir Erlingi ásamt minni-
smiðum og ýmsu tilfallandi. Má
þar nefna mynd af konunni hans á
Harley Davidson-mótorhjóli.
Það sem einkennir heimili Er-
lings að öðru leyti eru lista-
verk uppi um alla veggi. Þau eru
bæði eftir vini og samstarfsfé-
laga og ægir saman verkum eftir
íslenska, þýska, kanadíska og
bandaríska listamenn. „Við reyn-
um svo að nýta hluti sem mest og
höfum ekki tekið myntkörfulán
fyrir nýrri eldhúsinnréttingu. Sú
gamla, ásamt Rafha-ofninum, fær
að duga. Við höfum þó lagt parket
og leyfðum okkur að kaupa svefn-
sófa þar sem við tökum ósjaldan
við gestum að utan.“
Erling á einmitt von á gestum
um helgina. Listamenn frá Berl-
ín, sextán talsins, taka þátt í sýn-
ingunni Kling & Bang vs. Tor-
strasse 111 í Kling & Bang gallerí
að Hverfisgötu 42, og verður sýn-
ingin opnuð klukkan 17 í dag. Þar
sýna erlendu listamennirnir ásamt
níu íslenskum listamönnum sem
reka Kling & Bang gallerí. Sýning-
in er eins konar framhald sýning-
ar sem var sett upp í Berlín haust-
ið 2007 en þá sýndu þar listamenn
á vegum Kling & Bang ásamt lista-
mönnum Torstrasse 111. -ve
Hugmyndir fæðast
● Hugmyndir Erlings Þ. V. Klingenberg kvikna oftar en ekki í fjölnotaherberginu hans svokallaða.
Leðurhjálmur með göddum sendir frá sér jákvæða strauma og veitir honum innblástur.
Hjálmurinn, sem Erling keypti af götulistamanni í Þýskalandi, sendir frá sér jákvæða strauma sem listamaðurinn nýtir við störf sín.
FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
R
úmar sex vikur eru enn til jóla og ég er farin að hlakka til. Ég
á erfitt með að halda aftur af lönguninni til að hengja upp jóla-
skrautið og dreymir um piparkökur og jólaöl á kvöldin. Það
hefur hver sína hefðina á því hvenær jólaskrautið fer upp.
Margir byrja að skreyta 1. desember meðan aðrir bíða lengur. Sumir
skreyta ekki fyrr en á Þorláksmessu en svo eru þeir sem byrja að
skreyta í nóvember. Enn er ég þó ekki farin að sjá seríur í gluggum í
hverfinu en langar sjálfa mikið að setja þær upp.
Ég held að jólin verði með öðru sniði þetta árið hjá mér og fleirum.
Jólagjafirnar verða í ódýrari kantinum og jafnvel eitthvað færri en í
fyrra. Margir kvíða alltaf jólunum og sennilega verða þeir fleiri núna
en áður. En ég held að þá sé einmitt ástæða til þess að hengja ljósin út í
glugga sem fyrst. Okkur veitir ekki af birtunni í svartasta skammdeg-
inu og í því lítt uppörvandi fréttaumhverfi sem við búum við núna. Við
getum sent hvert öðru uppörvandi kveðjur með
jólaljósunum en það er alltaf hlýlegt að sjá ljós
í gluggum sem fólk bindur í hin ýmsu mynstur.
Ósjálfrátt fer maður að raula eitthvað með Villa
og Ellý Vilhjálms í huganum og áhyggjur hvers-
dagsins gleymast um stund. Jólin í ár ættu að vera
enn meira tilhlökkunarefni en áður og í raun kær-
komið tækifæri til að hugsa um eitthvað annað
en gengi krónunnar, verðhækkanir og stýrivexti í
nokkra daga.
Í dag er 8. nóvember og ég stóð mig að því
að kíkja ofan í kassa í gær og athuga hvort ekki
kviknaði á seríunum sem fara venjulega í stofugluggana. Jú, það kom
ljós á allar perur og ég fékk fiðring í magann. Kunni samt ekki við að
smella þeim upp á föstudegi, fannst ég þurfa að bíða helgarinnar. Þær
verða því sennilega settar upp í kvöld eða á morgun. Það fer aðeins eftir
því hvort ég kem því í verk í dag að strjúka úr gluggunum. Annað skraut
læt ég bíða aðeins lengur.
Ég er ein af þeim sem láta ljósin loga langt fram yfir jól þótt jólatréð,
kúlurnar og pappírsskrautið fari ofan í kassa á þrettándanum. Skamm-
degið teygir sig langt fram í febrúar og mér finnst algjör óþarfi að öll
ljós hverfi úr gluggum meðan enn er svo dimmt. En þegar fyrstu runn-
arnir fara að springa út í gegnum jólaseríurnar ætti að vera tími til kom-
inn að taka þær inn. Mér finnst að við ættum að taka okkur saman um að
hengja upp seríurnar snemma þetta árið. Það þarf bara einn að byrja og
þá tínast þær upp ein af annarri um alla borg. Ég set mínar upp í kvöld.
Jólaljósakveðjur
„Margir kvíða alltaf
jólunum og
sennilega verða
þeir fleiri núna en
áður. En ég held að
þá sé einmitt
ástæða til þess að
hengja ljósin út í
glugga sem fyrst.“
8. NÓVEMBER 2008 LAUGARDAGUR2