Fréttablaðið - 17.11.2008, Side 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
MÁNUDAGUR
17. nóvember 2008 — 315. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
MARGRÉT ERLA MAACK
Lætur fara vel um sig í
rauða leikhússtólnum
• heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
JÓLASTJARNA er viðkvæmt blóm og mikilvægt að vernda
hana fyrir kulda og trekki. Jólastjörnu má þó heldur ekki verða
of heitt en henni líður best í talsverðri birtu. Jólastjörnu er
best að vökva með volgu vatni.
„Það var fyrir nokkru að hluti stóla
í Þjóðleikhúsinu var endurnýjaður
og fáeinir stakir stólar seldir, en
mamma fékk einn lúinn að launum
fyrir vinnu við grillveislu utan við
leikhúsið. Stólinn færði hún svo
nördinum mér og mér þykir ein-
staklega vænt um hann,“ segir
útvarpskonan, plötusnúðurinn ogmagadanskennari
Margrét Erla Guðmundsdóttir,
kenndi mér síðar að sækja frum-
sýningar og sagði mikilvægast að
mæta alltaf hálftíma fyrr svo maður
gæti heilsað þeim sem maður vildi
heilsa,“ segir Margrét Erla og hlær
dillandi hlátri, en glaðværð hennar
og hispursleysi í Poppla dih f
ingu. Við förum því í leikhúsleiki í
stólnum þegar hún heimsækir mig,“
segir Margrét, sem tyllir sér helst á
virðulegan leikhússtól af efri svöl-
unum þegar hún kíkir á Facebook.„Ég sanka að mér ýmsu en að llega er
Hlegið og grátið í rauðu
Rauðir, með hvítofnum grímum þeirra systra Gleði og Sorgar, hafa stólarnir í Þjóðleikhúsinu hvílt leikhús-
þyrst bein landsmanna í hartnær sextíu ár. Sumir hafa slitnað, verið skipt út og þá eignast ný heimkynni.
Þær láta fara vel um sig, Margrét Erla Maack og tveggja ára frænka hennar, Ragnheiður Eyja Ólafsdóttir, Egilssonar. Sú litla þykist
eiga heilmikið í leikhússtólnum líka, enda upprennandi leikhúsmær og þegar búin að standa tvisvar á sviði. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
A
T
A
R
N
A
STIGARAllar mögulegar gerðir og stærðirsmíðað eftir óskum hvers og eins
Beygjanlegir Handlistar & GólflistarLoftastigar, Innihurðir, GereftiGólflistar, Franskir gluggar í hurðirSmíðum Harmonikkuhurðir eftir máliBílkerrur úr Áli frá Anssems í HollandiMex - byggingavörurSími 567 1300 og 848 3215www.byggingavorur.com
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
50%
AFSLÁTTUR
90 x 200 cm
120 x 200 cm
150 x 200 cm
180 x 200 cm
Verð frá kr. 44.450,- Verð frá Kr. 55.950,-
Verð frá Kr. 67.450,-
Verð frá Kr. 80.950,-
Verðdæmi með afslætti:
af öllum rúmum
út nóvember
VERÐHRUN
Patti lagersala
Blöndunartæki
MORA INXX
Baldursnesi 6
Akureyri
Sími 414 1050
Smiðjuvegi 76
Kópavogi
Sími 414 1000
Opið virka daga frá 8 -18
laugardaga frá10 -15
FASTEIGNIR
Glermósaík og
granít í eldhúsinu
sérblað um fasteignir
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
fasteignir 17. NÓVEMBER 2008
Fasteignasalan Eignamiðlun hefur til sölu 97,2 fermetra endaraðhús á einni hæð í grónu hverfi við Krókabyggð í Mosfellsbæ.
H úsið stendur á vel gróinni 383,2 fermetra eignarlóð og aðkoma er að vestan-verðu. Gott bílaplan er fyrir fram-an húsið og gróinn og afgirtur garður til suðurs og vesturs.Komið er inn í forstofu með for-stofuskáp. Inn úr forstofu er geið in í
er á milli efri skápa og borðplötu með glermósaík. Í innréttingu er blástursofn ásamt keramik hellu-borði. Öll eldhústæki eru frá Gor-enje. Í eldhúsi er borðkrókur við V-laga glugga sem gefur mikla birtu.
Borðstofan og stofan eru rúm-góðar með mikilli lofthæð. Úr stofu er góður gluggi út í garð til suðvesturs. Alrými, stofur og eldhús, ásamt baðherbergi, eru flísalögð með ljósum flísum. Bað-herbergið var endu ýj
einnig er handklæðaofn og upp-hengt Starck-salerni og blöndunar-tæki.
Innst á gangi eru tvö góð svefn-herbergi sem eru parketlögð með sérvöldum fjalla-hlyni frá Agli Árnasyni. Barnaherbergið er vinstra megin með glugga í aust-ur og úr því er samanbrotinn stigi upp á efra loft með góðu geymslu-plássi. Þar við hlið er gott hjóna-herbergi með fataskáp og úr þvíer gengið út á
Verönd í suður og austur
Krókabyggð er í grónu hverfi í Mosfellsbæ.
Grunnur að góðu lífi Fasteignasala :: Lágmúla 7 :: 108 Reykjavík :: sími 535_1000 Þorlákur Ó. Einarsson lögg. fasteignasali Þórhildur Sandholt lögfr. og lögg. fasteignasali
Hafðu samband og kynntu þér málið!
™
Hefurðu kynnt þérkaup á búseturétti?
Með kaupum á búseturétti færðu það sem máli skiptir;heimili
Öryggi til framtíðar, frelsi þegar þér hentar
Upphafið að
einhverju nýju
Kristín Jóhannesdóttir
leikstjóri fagnar
sextugsafmælinu
í París.
TÍMAMÓT 16
Latibær á leikjatölvum
Magnús Scheving vinnur að því
að Latabæjar-tölvuleikir verði
framleiddir.
FÓLK 19
ÉL FYRIR NORÐAN Í dag verða
vestan 5-13 m/s, stífastur A-til en
lægir með deginum. Él eða slyddu-
él N-til en annars yfirleitt úrkomu-
laust. Hiti 0-7 stig í fyrstu en vægt
frost N- og A-lands síðdegis.
VEÐUR 4
6
0 0
1
4
BANDARÍKIN, AP Þúsundir manna
sitja nú um bandaríska þing-
menn að biðja um miða á
innsetningarat-
höfn Baracks
Obama, sem
tekur við
forsetaembætt-
inu 20. janúar
næstkomandi.
Hver
þingmaður fær
200 til 500
miða til að
deila út, en
eftirspurnin er svo mikil að
sumir þeirra eru hættir að taka
við óskum.
Búist er við að meira en
milljón manns mæti til að
fylgjast með þegar fyrsti
þeldökki maðurinn tekur við for-
setaembættinu. Jafnvel er búist
við að metið frá 1965 falli, en þá
mættu 1.200 þúsund manns til að
fylgjast með þegar Lyndon B.
Johnson varð forseti. - gb
Innsetningarathöfn Obamas:
Búist við yfir
milljón manns
BARACK OBAMA
EFNAHAGSMÁL Fjörutíu dögum eftir
að milliríkjadeila skall á við Breta
vegna Icesave-reikninga Lands-
bankans hillir undir lausn í málinu.
Samkomulag náðist í gær á milli
íslenskra stjórnvalda og Evrópu-
sambandsins um innistæðutrygg-
ingar vegna íslenskra bankaútibúa
á Evrópska efnahagssvæðinu. Nið-
urstaðan markar þáttaskil, segir
utanríkisráðherra, og fjárhagsleg
aðstoð frá Alþjóðagjaldeyrissjóðn-
um og Norðurlöndunum verður
afgreidd í vikunni.
Niðurstaða þrotlausra samninga-
umleitana undanfarinna vikna er
að stjórnvöld viðurkenna að þeim
beri að tryggja innistæður í sam-
ræmi við lög um tryggingasjóð inn-
stæðureikninga. Hver sú upphæð
verður er háð sölu á eignum Lands-
bankans. Í versta falli nemur hún
um 640 milljörðum íslenskra króna.
Sala á eignum hefst líklega ekki
fyrr en eftir eitt til þrjú ár og niður-
stöðu deilunnar í heild er ekki að
vænta um langt árabil.
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra segir að Ísland hafi með
samkomulaginu fengið ríkari við-
urkenningu á sérstöðu sinni „og
það verði ekki gengið þannig til
verks við uppgjör þessara reikn-
inga að þjóðin standi ekki undir
því. Það verður tekið ríkt tillit til
þeirrar stöðu sem komin er upp
hér.“
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
utanríkisráðherra segir að þau
skilaboð hafi komið frá löndum
Evrópusambandsins að vonlaust
væri að fá lánafyrirgreiðslu nema
samkomulag um Icesave-reikning-
ana væri í höfn. Hún telur sam-
komulagið marka þáttaskil í við-
reisn íslensks efnahagslífs og
samfélagsins í heild. Hún viður-
kennir þó að ljón geti enn verið á
veginum enda sé deilan sú erfiðasta
sem þjóðin hafi þurft að glíma við.
Umsamin viðmið í framhaldsvið-
ræðum gera ráð fyrir að sérstakt
tillit verður tekið til stöðu Íslands
„og knýjandi nauðsynjar þess að
ákveða ráðstafanir sem gera Íslandi
kleift að endurreisa fjármála- og
efnahagskerfi sitt,“ eins og segir í
tilkynningu ríkisstjórnarinnar um
málið. Rætt hefur verið um það við
Breta og Hollendinga að lána
Íslendingum fyrir greiðslu til
reikningseigenda og endurgreiðsla
þeirra lána hefjist ekki fyrr en eftir
nokkur ár. - shá / sjá síðu 4
Samkomulag um að Ísland
borgi innistæður Icesave
Mikilvægt skref hefur verið tekið til að leysa milliríkjadeilu Íslendinga vegna Icesave-reikninganna. Ísland
ábyrgist lágmarkstryggingu til innistæðueigenda erlendis. Fjárhagslegri aðstoð til Íslands verður hraðað.
Frestarinn
Ráðamenn hafa gert íslenska þjóð
að viðundri með ósæmilegu flaðri
upp um Rússa,“ segir Guðmundur
Andri Thorsson.
Í DAG 14
Stólarnir í
þriðja sætinu
Svavar Birgis-
son tryggði
Tindastóli sigur
á Þór Akureyri
í baráttunni um
Norðrið.
ÍÞRÓTTIR 22
MENNING „Þetta er frábært, báðar
þessar myndir fengu fullt af
verðlaunum,“ sagði Baltasar
Kormákur í gærkvöld, sem var
tvímælalaust sigurvegari kvölds-
ins á Edduverðlaunahátíðinni í
gær.
Kvikmynd hans Brúðguminn
hlaut sjö Edduverðlaun og
Reykjavík-Rotterdam, kvik-
mynd Óskars Jónassonar þar
sem Baltasar fór með aðalhlut-
verkið, fékk fimm verðlaun.
„Að sjálfsögðu,“ segir Baltas-
ar þegar spurt er hvort stefnan
sé ekki næst tekin á Óskarinn, en
Brúðguminn er framlag Íslands
til Óskarsverðlaunanna í vor.
Brúðguminn var kvikmynd
ársins, en leikstjóri ársins var
Óskar Jónasson, sem leikstýrði
Reykjavík-Rotterdam. Leikkona
ársins í aðalhlutverki var Sól-
veig Arnarsdóttir í sjónvarps-
myndaflokknum Svartir Englar,
en leikari ársins í aðalhlutverki
var Hilmir Snær Guðnason í
Brúðgumanum.
„Mér þykir óskaplega vænt
um þetta,“ segir Egill Helgason,
sem var valinn sjónvarpsmaður
ársins, auk þess sem Silfur Egils
var kosinn besti frétta- eða við-
talsþáttur ársins og Kiljan besti
menningar- eða lífsstílsþáttur
ársins. „Það er voða gaman að fá
viðurkenningu fyrir þessa tvo
þætti sem eru dálítið ólíkir,“
segir Egill Helgason.“ - gb
Baltasar Kormákur og Egill Helgason sigurvegarar kvöldsins á Edduhátíðinni:
Brúðguminn fékk sjö Eddur
SIGURVEGARINN BALTASAR KORMÁKUR Agnes Johansen, meðframleiðandi Brúðgumans, fylgist með Baltasar Kormáki á svið-
inu í Háskólabíói. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON