Fréttablaðið - 19.11.2008, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Nýleg ferð mín til Nepal er besta
ferð sem ég hef á ævinni farið í
og hef ég þó f ð
fjöllin til Pokhara e þfl
Enn þá alveg í skýjunum
Gerður Jensdóttir fór í sína bestu ferð á dögunum en þá gekk hún á milli afskekktra þorpa í Nepal innan
um snævi þakta tinda. Hana hafði lengi dreymt um að fara til Nepal og varð ekki fyrir vonbrigðum
Gerður segir landslagið í Nepal óviðjafnanlegt.
MYND/ÚR EINKASAFNI
LEIKLISTARNÁMSKEIÐ fyrir unglinga undir yfir-
skriftinni Að segja sögu á sviði verður haldið fljótlega á
vegum Leikfélag Kópavogs. Námskeiðið hefst þriðjudag-
inn 28. október og verður kennt tvisvar í viku, á þriðju-
dögum og fimmtudögum, frá klukkan 16.30 til 18.30.
s
ng Mjódd
6
6
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 19. nóvember 2008 – 48. tölublað – 4. árgangur
2
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Vistvænaprentsmiðjan!
Selt í Köben | Sjæslö Grupp-en, sem eignarhaldsfélagið Sam-son á stóran hlut í, hefur selt eign í Valby, einu úthverfa Kaup-mannahafnar, fyrir 137 milljón-ir danskra króna, eða 2,7 millj-arða íslenskra. Í eigninni, sem er í Valby Have við Gammel Köge Landevej í Valby, eru 63 leigu-íbúðir.
Uppnám hjá Sterling | Samn-ingar um söluna á þrotabúi nor-ræna flugfélagsins Sterling eru komnir í uppnám eftir að við-ræður við verkalýðsfélög flug-manna og flugliða sigldu í strand í gær. Danska dagblaðið Jótlands-pósturinn segir verkalýðsfélög-in hafa verið mjög óánægð með þá samninga sem félagsmönnum stóð til boða.
Japanir lána IMF | Yfirvöld í Japan eru reiðubúin til að lána Alþjóðagjaldeyrissjóðnum alltað 100 millj ð
Fjallað var um Ísland og um-hverfisstefnu átöppunarfyrir-tækisins Icelandic Water Hold-ings í beinni útsendingu í sjón-varpsþættinum The Today Show á mánudag. Þátturinn er einn vinsælasti morgunsjón-varpsþátturinn sem sýndur er í Bandaríkjunum. Átöppunarfyrirtækið fram-leiðir vatn á flöskum undir merkjum Icelandic Glacial á Hlíðarenda í Ölfusinu og selur víða um heim, svo sem í Banda-ríkjunum. Bandaríski drykkja-vöruframleiðandinn AnhB h
VATN SETT Á FLÖSKUR Fjallað var um vatnsfyrirtæki Jón Ólafssonar, sonar
hans og fleiri í beinni útsendingu í Bandaríkjunum í fyrradag.
MARKAÐURINN/ANTON
Íslenskt vatn í amerísku
sjónvarpi
Ingimar Karl Helgason og Björn Ingi Hrafnssonskrifa
„Eðlilega er mikið deilt um leiðir í stöðunni og því er
mikilvægt að seðlabankastjóri skýri þær leiðir sem
kveðið er á um í viljayfirlýsingunni. Með því að út-
skýra hvers vegna þær voru valdar og hvaða kosti
þær hafi fram yfir aðrar leiðir, getur seðlabanka-
stjóri aflað þeim fylgis og aukið áhrifamátt þeirra.
Það er mikilvægt fyrir krónuna, atvinnulífið og
heimilin,“ segir Edda Rós Karlsdóttir hagfræðing-
ur. Hún saknar umfjöllunar um frekari framvindu
efnahagsmála og samstarfið við Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn í ræðu Davíð Oddssonar, formanns banka-
stjórnar Seðlabankans, hjá Viðskiptaráði í gær.
Davíð ræddi þar um hverjum væri um að kenna
að bankarnir féllu. Sakaði fólk og fjölmiðla um
galdrafár og benti á bankamenn, ríkisstjórn, fjár-
málaeftirlit og fjölmiðla sem sökudólga í banka-
hruninu. Seðlabankinn hefði staðið vaktina en k
tæki til að bregðast við H
„sýnist verða að túlka sem ákæru á hendur rík-isstjórninni um aðgerð-arleysi þrátt fyrir við-varanir bankans. Svo virðist sem bankastjórn-in geri ekki ráð fyrir að báðir aðilar haldi áfram störfum að óbreyttu.“Jón Steinsson, hag-fræðingur við Columbia-háskóla í Bandaríkjun-um. segir lítilmannlegt að Davíð reyni að hvít-þvo sig og Seðlabank-
ann. „Ummæli Davíðs bera vott um alvarlegan skort
á skilningi á starfi seðlabankastjóra. Getur verið
að Davíð hafi ekki áttað sig á því að bi di k
lausafjárreglur
Ákæra Seðlabanka á hendur ríkisstjórnSkortur á skilningi, ákæra á hendur ríkisstjórn, lítilmannleg-ur hvítþvottur. Þetta er meðal þess sem sagt er um ræðu Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra hjá Viðskiptaráði í gær.
DAVÍÐ ODDSSON
Orðskýringin
Hvað er varin staða?
Alfesca
Skoðar brottför úr Kauphöllinni
Þóra HelgadóttirHagvöxtur og hamingja
33,4%
70,7%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Fréttablaðið er með 112%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft... ... alla daga
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í ágúst - október 2008.
Sími: 512 5000
MIÐVIKUDAGUR
19. nóvember 2008 — 317. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
GERÐUR JENSDÓTTIR
Hafði lengi langað
að ferðast til Nepal
• á ferðinni • nám • jólin koma
Í MIÐJU BLAÐSINS
BÓKMENNTIR Random House, hið
virta bókaforlag, hefur gert
samning við rithöfundinn Auði
Jónsdóttur um útgáfu nýútkominn-
ar bókar hennar
Vetrarsólar í
Þýskalandi,
Austurríki og
Sviss. Að sögn
Atla Bollasonar
hjá Forlaginu var
slegist um bókina
á bókakaupstefn-
unni í Frankfurt í
síðasta mánuði
sem hafði í för
með sér að þetta er einn besti
útgáfusamningur sem Forlagið
hefur gert. Upplagið verður stórt
en bókin verður bæði gefin út
innbundin og í kilju. Samningurinn
er trúnaðarmál en hleypur á
milljónum að sögn Atla. „Þetta er
rosalega gaman fyrir blankan
rithöfund sem er gengisflóttamað-
ur á Íslandi,“ segir Auður sjálf og
hlær. - jbg / sjá síðu 22
Auður Jónsdóttir rithöfundur:
Gerir milljóna
samning við
Random House
AUÐUR
JÓNSDÓTTIR
Endurhljóðblönd-
uð Hafdís Huld
Ný útgáfa af Tomoko
kemur út á mánudag-
inn.
FÓLK 18
ÓLAFUR HELGI ÞORKELSSON
Tvö þúsund pókerspil-
arar í Reykjavík
Póker upp á yfirborðið um helgina
FÓLK 22
Hraust og létt á fæti
Herdís Albertsdóttir fagnar
100 ára afmæli í dag og
finnst árin hafa liðið
furðu fljótt.
TÍMAMÓT 14
KÓLANDI VEÐUR Í fyrstu verður
stíf vestan átt, 8-15 m/s, hvassast
syðst. Norðlægari síðdegis. Bjart
austan til og sumstaðar vestan-
lands, annars úrkomulítið. Vaxandi
él norðan til síðdegis eða í kvöld.
VEÐUR 4
4 3
2
6
6
MARKAÐURINN
Ákæra Seðlabanka
á hendur ríkisstjórn
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Undir þann græna hlíða
„Komu nú upp á yfirborðið sögur
um þrautreyndar blaðakonur sem
höfðu margsinnis komist í hann
krappan á löngum ferli“, skrifar
Einar Már Jónsson.
Í DAG 12
Ísland í dauðariðlinum
Sigurður Ragnar Eyjólfsson segir
það mikla áskorun fyrir stelpurn-
ar okkar að mæta
Þjóðverjum,
Frökkum
og Norð-
mönnum
á EM.
ÍÞRÓTTIR 17
EFNAHAGSMÁL Erindi Íslands um
fjárhagslega fyrirgreiðslu frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verður
tekið fyrir á
fundi stjórnar
sjóðsins í
höfuðstöðvum
hans í Washing-
ton í dag.
Eftir því sem
næst verður
komist hefst
fundurinn
klukkan þrjú að
staðartíma, sem er átta í kvöld að
íslenskum tíma.
Svíinn Jens Henriksson, fulltrúi
Norðurlandanna og Eystrasalts-
ríkjanna í stjórninni, mun flytja
yfirlýsingu íslenskra stjórnvalda
og Seðlabankans og tala máli
Íslands. Engir Íslendingar sitja
fundinn. - bþs
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn:
Erindi Íslands
tekið fyrir í dag
JENS HENRIKSSON
EFNAHAGSMÁL Verðbréfaskráning
hefur neitað Pétri Blöndal, for-
manni efnahags- og skattanefnd-
ar, um upplýsingar um hve marg-
ir hefðu tapað fé á
hlutabréfakaupum, með vísan í
skort á lagaheimildum. Þá hefur
hann beðið eftir svörum frá skila-
nefndum gömlu bankanna og
stjórnum þeirra nýju í um tvær
vikur.
Pétur spurði bankana að því hve
mörg fyrirtæki væru að öllu eða
mestu leyti komin í ríkiseigu á síð-
ustu vikum og hverjir væru
stærstu kröfuhafarnir í gömlu
bankana. Við því hefur hann ekki
fengið svör. Þá spurði hann Verð-
bréfaskráningu að því hvað
almenningur hefði tapað miklu á
hlutabréfakaupum og hve margir
hefðu tapað ákveðnum upphæð-
um, innan við milljón, einni til
þremur milljónum og svo fram-
vegis.
Pétur segir þetta mikilvægar
upplýsingar. „Það er nú þó nokkuð
liðið síðan ég bað um þessar upp-
lýsingar og ég fer að ítreka þær
beiðnir sem eru ósvaraðar. Tap
almennings skiptir miklu máli og
ekki síður hvaða fyrirtæki íslenska
þjóðin hefur eignast.“ - kóp
Verðbréfaskráning gefur ekki upp tap almennings á hlutabréfakaupum:
Þingnefnd neitað um svör
MÉR FINNST RIGNINGIN GÓÐ Þessir kátu krakkar í Ísaksskóla létu sig ekki muna um að vaða drullu upp í hné til að stilla sér upp
fyrir ljósmyndara Fréttablaðsins í gær, enda vel klædd og við öllu búin í votviðrinu. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
STJÓRNMÁL Ríkisstjórnarflokkarn-
ir ræða nú að sameina Fjármála-
eftirlitið við Seðlabankann með
lögum frá Alþingi. Geir Haarde
forsætisráðherra segir ekki liggja
fyrir hvort það þýði að skipt verði
um bankastjórn.
Eftirlitsskylda með viðskipta-
bönkunum var tekin af Seðlabank-
anum árið 1998. Davíð Oddsson
seðlabankastjóri sagði í ræðu í
gær að aðskilnaður Seðlabanka og
fjármálaeftirlits hafi hugsanlega
verið mistök.
„Mér finnst, eins og kom fram í
ræðu seðlabankastjóra, að fyrir-
komulagið hafi ekki gefist nógu
vel og því er sjálfsagt að breyta
því. Í þessu felst ekki ásökun á
störf Fjármálaeftirlitsins,“ segir
Geir í samtali við Fréttablaðið.
Í sama streng tekur Lúðvík
Bergvinsson, þingflokksformaður
Samfylkingarinnar.
„Mér finnst það koma vel til
álita ef niðurstaðan af þeirri sam-
einingu verður sú að við fáum
betra kerfi,“ segir Lúðvík sem
kveður viðspyrnu í íslensku efna-
hagslífi ekki nást nema traust sé á
Seðlabankanum. „Til þess að svo
verði þá verða stjórnvöld og Seðla-
bankinn að ganga í takt.“
Lúðvík tekur fram að þessi mál
verði að vera frágengin áður en
íslensku krónunni verður ýtt á flot
á ný í kjölfar lánveitinga frá
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum og
erlendum ríkjum.
Forsætisráðherra segist hins
vegar telja óraunhæft að af breyt-
ingunni verði áður en krónan verði
sett á flot eins og Samfylkingar-
fólk telur nauðsynlegt. „Stýringin
á gjaldeyrismarkaðnum verður í
höndum sérfræðinga bankans.
Það er fagfólkið sem sér um þau
mál og utanaðkomandi sérfræð-
ingar,“ segir Geir Haarde.
Heimildarmaður innan Sam-
fylkingarinnar segir að með sam-
einingunni sé verið að „taka Davíð
á orðinu“. Legið hefur fyrir að
flokkurinn styður Davíð ekki sem
seðlabankastjóra.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir,
formaður Samfylkingarinnar,
segir vanda Davíðs vera þátttöku
hans í stjórnmálum undanfarin
sautján ár. Ekki sé verið að saka
hann um neinar misgjörðir.
„Vandamálið er trúverðugleiki.“
- gar, bþs
Fjármálaeftirlitið og
Seðlabanki sameinist
Stjórnarflokkarnir ræða nú sameiningu Fjármálaeftirlitsins og Seðlabankans.
Samfylkingin vill nýja skipan mála áður en krónan fer á flot en forsætisráð-
herra segir óvíst að það náist. Sérfræðingar bankans annist gjaldeyrisviðskipti.