Fréttablaðið - 19.11.2008, Blaðsíða 13
66
Sögurnar... tölurnar... fólkið...
Miðvikudagur 19. nóvember 2008 – 48. tölublað – 4. árgangur
2
Veffang: visir.is – Sími: 512 5000
H E L S T Í Ú T L Ö N D U M
Vistvæna
prentsmiðjan!
Í 25 ár hefur VALITOR (áður VISA Ísland) verið í forystu í færsluhirðingu á Íslandi!
Selt í Köben | Sjæslö Grupp-
en, sem eignarhaldsfélagið Sam-
son á stóran hlut í, hefur selt
eign í Valby, einu úthverfa Kaup-
mannahafnar, fyrir 137 milljón-
ir danskra króna, eða 2,7 millj-
arða íslenskra. Í eigninni, sem er
í Valby Have við Gammel Köge
Landevej í Valby, eru 63 leigu-
íbúðir.
Uppnám hjá Sterling | Samn-
ingar um söluna á þrotabúi nor-
ræna flugfélagsins Sterling eru
komnir í uppnám eftir að við-
ræður við verkalýðsfélög flug-
manna og flugliða sigldu í strand
í gær. Danska dagblaðið Jótlands-
pósturinn segir verkalýðsfélög-
in hafa verið mjög óánægð með
þá samninga sem félagsmönnum
stóð til boða.
Japanir lána IMF | Yfirvöld
í Japan eru reiðubúin til að lána
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum allt
að 100 milljarða Bandaríkjadala
til þess að styrkja stuðningsað-
gerðir sjóðsins við lönd sem eru
í vanda vegna alþjóðlegu fjár-
málakreppunnar.
Ræddu ástandið | Þjóðarleið-
togar stærstu iðnríkja heims
samþykktu á fundi í Washington
í gær að vinna saman að lausn al-
heims fjármálakreppunar. Gagn-
sæi verði aukið og fyrirtækjum
á mörkuðum gert að upplýsa enn
frekar um starfsemi sína og fjár-
hagsstöðu.
Fjallað var um Ísland og um-
hverfisstefnu átöppunarfyrir-
tækisins Icelandic Water Hold-
ings í beinni útsendingu í sjón-
varpsþættinum The Today
Show á mánudag. Þátturinn er
einn vinsælasti morgunsjón-
varpsþátturinn sem sýndur er
í Bandaríkjunum.
Átöppunarfyrirtækið fram-
leiðir vatn á flöskum undir
merkjum Icelandic Glacial á
Hlíðarenda í Ölfusinu og selur
víða um heim, svo sem í Banda-
ríkjunum. Bandaríski drykkja-
vöruframleiðandinn Anheuser
Busch, sem framleiðir Bud-
weiser-bjórinn, á fimmtungs-
hlut í fyrirtækinu. Vatnið er
markaðssett vestanhafs sem
hrein náttúruafurð og hefur
fyrirtækið fengið verðlaun
fyrir umhverfisstefnu sína.
Það var þáttastjórnandinn Al
Roker sem fjallaði um landið en
sýndar voru myndir af íslensku
fallvatni og framleiðslu í verk-
smiðjunni fyrir austan fjall.
- jab
VATN SETT Á FLÖSKUR Fjallað var
um vatnsfyrirtæki Jón Ólafssonar, sonar
hans og fleiri í beinni útsendingu í
Bandaríkjunum í fyrradag.
MARKAÐURINN/ANTON
Íslenskt vatn
í amerísku
sjónvarpi
Ingimar Karl Helgason og Björn Ingi Hrafnsson
skrifa
„Eðlilega er mikið deilt um leiðir í stöðunni og því er
mikilvægt að seðlabankastjóri skýri þær leiðir sem
kveðið er á um í viljayfirlýsingunni. Með því að út-
skýra hvers vegna þær voru valdar og hvaða kosti
þær hafi fram yfir aðrar leiðir, getur seðlabanka-
stjóri aflað þeim fylgis og aukið áhrifamátt þeirra.
Það er mikilvægt fyrir krónuna, atvinnulífið og
heimilin,“ segir Edda Rós Karlsdóttir hagfræðing-
ur. Hún saknar umfjöllunar um frekari framvindu
efnahagsmála og samstarfið við Alþjóðagjaldeyris-
sjóðinn í ræðu Davíð Oddssonar, formanns banka-
stjórnar Seðlabankans, hjá Viðskiptaráði í gær.
Davíð ræddi þar um hverjum væri um að kenna
að bankarnir féllu. Sakaði fólk og fjölmiðla um
galdrafár og benti á bankamenn, ríkisstjórn, fjár-
málaeftirlit og fjölmiðla sem sökudólga í banka-
hruninu. Seðlabankinn hefði staðið vaktina en skort
tæki til að bregðast við. Hann hefði varað við stöð-
unni en ekki hefði verið hlustað.
Edda Rós bendir á ýmis úrræði Seðlabankans og
segir bankann ekki aðeins vera eftirlits- eða um-
sagnaraðila. Hann sé stjórnvald og geti til að mynda
beitt bindiskyldu til að hamla vexti útlána. „Þessi
mikilvægu verkfæri lágu svo til óhreyfð í verkfæra-
kistu Seðlabankans, þrátt fyrir mjög óvenjulegar
aðstæður á fjármálamörkuðum,“ segir Edda Rós.
Þar vísar hún til lágra vaxta í útlöndum undanfarin
ár, einkavæðingu bankanna og hratt vaxandi eigin
fé þeirra. „Allir þessir þættir kyntu undir vöxt, en
Seðlabankinn horfði einungis til stýrivaxtanna og
beitti úrtölum, eins og formaðurinn lýsti ágætlega
í ræðu sinni.“
Ólafur Ísleifsson, kennari við Háskólann í Reykja-
vík, segir að ummæli bankastjórnar Seðlabankans
„sýnist verða að túlka
sem ákæru á hendur rík-
isstjórninni um aðgerð-
arleysi þrátt fyrir við-
varanir bankans. Svo
virðist sem bankastjórn-
in geri ekki ráð fyrir að
báðir aðilar haldi áfram
störfum að óbreyttu.“
Jón Steinsson, hag-
fræðingur við Columbia-
háskóla í Bandaríkjun-
um. segir lítilmannlegt
að Davíð reyni að hvít-
þvo sig og Seðlabank-
ann. „Ummæli Davíðs bera vott um alvarlegan skort
á skilningi á starfi seðlabankastjóra. Getur verið
að Davíð hafi ekki áttað sig á því að bindiskylda og
lausafjárreglur eru einmitt stjórntækin sem þurfti
til að bregðast við hættunni sem myndaðist við
gríðarlegan vöxt bankanna?“
Lilja Mósesdóttir, hagfræðingur við Háskóla Ís-
lands, segir ræðu Davíðs hafa minnst verið um
lausnir í sjónmáli og þess hafi hún saknað. „Allur
almenningur hrópar eftir upplýsingum og útskýr-
ingum um það sem fram undan er,“ segir Lilja. Hún
bætir því við að þarna hafi verið á ferðinni varnar-
ræða manns sem hafi engan trúverðugleika lengur,
síst hjá erlendum fagaðilum. Það sé raunar rétt að
bankahrunið hafi lengi blasað við, enda hafi banka-
menn ekki farið vel að ráði sínu. Hins vegar hafi
seðlabankastjórnin ekki farið að ráðum góðra hag-
fræðinga og fagmanna í Seðlabankanum. „Seðla-
bankastjórnin á að segja af sér. Ekki síst Davíð
Oddsson sjálfur, sem hannaði það umhverfi sem
hann nú kennir um fallið, í tíð sinni sem forsætis-
ráðherra.“ Sjá miðopnu
Ákæra Seðlabanka
á hendur ríkisstjórn
Skortur á skilningi, ákæra á hendur ríkisstjórn, lítilmannleg-
ur hvítþvottur. Þetta er meðal þess sem sagt er um ræðu
Davíðs Oddssonar seðlabankastjóra hjá Viðskiptaráði í gær.
DAVÍÐ ODDSSON
Orðskýringin
Hvað er varin
staða?
Alfesca
Skoðar brottför
úr Kauphöllinni
Þóra Helgadóttir
Hagvöxtur og
hamingja