Fréttablaðið - 19.11.2008, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 19.11.2008, Blaðsíða 27
H A U S MARKAÐURINN 7MIÐVIKUDAGUR 19. NÓVEMBER 2008 S K O Ð U N Undanfarið hefur borið á umræðu um sprotafyrirtæki og mikilvægi þess að styrkja atvinnulífið. Í þeim efnum er vert að koma á framfæri nokkrum þáttum um hugbúnaðar- iðnaðinn. Hugbúnaðariðnaðurinn hefur vaxið hratt undanfarin ár og hefur án efa ekki fengið þá athygli sem hann á skilið. Samtök upplýsinga- tæknifyrirtækja afhentu á Iðn- þingi í mars 2005 stjórnvöldum til- boð sem þeir kölluðu þriðju stoðina og átti að skapa hér 2.000 ný störf. Áhugaleysi stjórnvalda vakti hins vegar furðu. Hefði tilboðinu verið tekið hefði ávinningur stjórnvalda verið verulegur. Vert er hins vegar að skoða hvernig til hefur tekist þrátt fyrir skort á stuðningi. HUGBÚNAÐARIÐNAÐURINN Þegar iðnaðurinn er skoðaður nánar kemur í ljós að hann hefur vaxið töluvert á undanförnum árum. Veltan hefur vaxið verulega eða frá 7,4 milljörðum árið 1998 upp í 33,6 milljarða árið 2006. Fleiri fyrirtæki eru nú í þessum iðnaði og munar þar mikið um að nokk- ur fyrirtæki eru orðin mjög stór og stöndug. Ef við greinum þessa veltuaukningu nánar þá hefur hún tuttugufaldast að raungildi síðast- liðin 16 ár. Til samanburðar þá tvöfaldaðist velta annarra atvinnu- greina að raungildi. En útflutningur hefur líka vaxið á sama tímabili úr 31 milljón árið 1990 upp í 6,2 milljarða árið 2006. Í viðtali við Hilmar Veigar Pét- ursson forstjóra CCP í Markaðnum í fyrra, nefndi hann að stjórnvöld ættu að geta komið til móts við hugbúnaðarfyrirtæki alveg eins og kvikmyndaiðnaðinn. Nefndi hann þá lægri skatta og endurgreiðslu sem kvikmyndaleikstjórinn Clint Eastwood fékk þegar hann var hér á landi með tökulið sitt. CCP er eitt af mörgum fyrirtækj- um í þessum iðnaði sem hafa vaxið og styrkst. Árið 2004 var CCP með 15 prósent af heildarútflutningi hugbúnaðar en árið 2006 var hlut- fallið 29 prósent. Hjá þessu eina fyrirtæki hefur starfsmannafjöldi farið úr 30 í 283 á fáum árum. Þá hefur nokkrum fyrirtækj- um tekist að taka það sem þau hafa verið að vinna fyrir ákveðn- ar iðngreinar og heimfært það yfir á stærri markaði með góðum ár- angri. SAMKEPPNIN Samkeppnisumhverfið á Íslandi er ágætt fyrir þessi fyrirtæki. En það eru helst ákveðnir skattalegir þætt- ir sem þarf að breyta og auka rann- sóknarfjármagn. Almennur stuðn- ingur við atvinnugreinina er lít- ill sem enginn í dag. Þó hafa verið þættir sem hafa gagnast iðnaðin- um að mati viðmælenda sem ég ræddi við sem tengjast iðnaðinum. Þeir nefna til dæmis útboðstefnu ríkisins. Hún hafi verið ágæt fyrir stærri fyrirtæki en skiptir minna máli fyrir smærri fyrirtæki. Samtök iðnaðarins hafa unnið gott starf fyrir iðnaðinn og svo skilaði hlutur Rannís í átaki fyrir nokkrum árum sér vel. Almennt er velvild í garð iðnaðarins en það vantar að bæta umhverfið eins og lagt var til í þriðju stoðinni. Mikið vantar upp á að íslenskur hugbún- aðariðnaður nái Danmörku, Sví- þjóð og Finnlandi hvað varðar sam- keppnishæfni, hvort sem litið er til hlutfalls af heildarútflutningi eða af vergri þjóðarframleiðslu. Ef vægi hátækni í útflutningi er skoðað, þá kemur fram að Ísland er með í kringum 7,0 prósent á móti yfir 20 prósentum hjá bæði Sví- þjóð og Finnlandi (Iðntæknistofn- un, 2006). Þá kom fram í skýrslu Rannís árið 2005 að hátækniiðnað- ur fær mun meiri styrki og fyrir- greiðslur frá stjórnvöldum þessara landa. Enda hafa stjórnmálamenn í þessum löndum séð það fyrir löngu að þeim fjármunum er vel varið, því vöxtur iðnaðarins undanfarin ár í þessum löndum hefur skilað sér margfalt til baka. HLUTVERK STJÓRNVALDA Ríkisstjórnin þarf að jafna að- stöðu og þá þætti sem snúa að þessum rekstri upplýsingatækni. Vinnumarkaðurinn hér á landi er frekar grunnur og það þarf meira af menntuðu fólki í þessum fræð- um. Erfitt er að sjá hér í framtíð- inni fyrirtæki með tvö til þrjú þús- und manns í vinnu. Slíkur vöxtur þarf að fara fram utan Íslands miðað við núverandi aðstæður. Skattamál og aukning á rann- sóknarstyrkjum og líka hvernig fyrirtæki geta fært rannsóknar- kostnað, til dæmis með lækkun á tekjuskatti á móti þeirri rann- sóknarvinnu, eru nokkur af þeim atriðum sem þarf að vinna betur að. Hér er verið tala um skatta- lega þætti, sem snúa að endur- greiðslu og frádrætti á rannsókn- arstyrkjum. Slíkar breytingar á skattumhverfinu er nauðsynleg- ur liður í að jafna aðstöðu upp- lýsingatæknifyrirtækja hér og í nágrannalöndunum. Það sem stjórnvöld þurfa að gera er að styðja við þær iðn- greinar sem geta skapað þjóðar- búinu auknar tekjur í framtíðinni. Það eru eflaust aðrar iðngreinar sem hafa mikla möguleika eins og hugbúnaðariðnaðurinn, sem enn á eftir að fjalla um. En þetta snýst um stefnubreytingu og að hugsa hlutina ekki eingöngu út frá því hvað er að gefa þjóðar- búinu miklar tekjur í dag, heldur hvað iðngreinar geta gefið þjóð- arbúinu auknar tekjur í framtíð- inni. Nú þurfa stjórnvöld að hugsa lengra ein eitt kjörtímabil fram í tímann. Nýleg meistararitgerð greinarhöf- undar fjallar um samkeppnishæfni og markaðshneigð íslenskra hug- búnaðarfyrirtækja. O R Ð Í B E L G Hinrik Fjeldsted viðskiptafræðingur og Msc í stjórnun og stefnumótun. Þriðju stoðinni slegið upp á ný

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.