Fréttablaðið - 20.11.2008, Page 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI
33,4%
70,7%
Fr
ét
ta
bl
að
ið
M
or
gu
nb
la
ði
ð
Fréttablaðið er með 112%
meiri lestur en Morgunblaðið
Allt sem þú þarft... ... alla daga
Meðallestur á tölublað m.v. höfuðborgarsvæðið
18–49 ára. Könnun Capacent í ágúst - október 2008.
Sími: 512 5000
FIMMTUDAGUR
20. nóvember 2008 — 318. tölublað — 8. árgangur
VEÐRIÐ Í DAG
ÞÓRUNN SÍMONARDÓTTIR
Býr til húfur, grifflur,
trefla og hatta úr ull
• tíska • heimili
Í MIÐJU BLAÐSINS
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
„Ég vinn aðallega úr soðinni ull
og ég geri nokkrar týpur af svona
jökkum eins og ég er í. Síðan geri
ég húfur, grifflur, trefla, hatta og
ýmislegt úr ull,“ segir ÞóruSímonardó
hnýti körfur, vinn úr gleri og hitt
og þetta.“
Þórunn er að stórum hlutasjálfmenntuð e hú
augum. Þórunn vann auk þess í
Virku í tólf ár og er mikilm
Hlýr og fallegur fatnaður
Þórunn Símonardóttir hefur stundað handavinnu nánast frá því að hún man eftir sér en hún rekur Textíl
Gallerý í Skipholti þar sem hún framleiðir og selur ullarflíkur undir merkinu Hjá Tótu.
Þórunn hannar ullarfatnað og gerir einnig bútasaumsteppi og púða.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
SPILADÓS er skemmtilegt skraut sem skapar notalega
stemningu á heimilinu. Spiladósir sem minna á jólin og spila
jafnvel þekkt jólalög geta komið öllum í hátíðaskap.
veljum íslensktFIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 2008
STJÓRNMÁL Davíð Oddsson gerði
athugasemdir við hjónavígslu
Ólafs Ragnars Grímssonar og
Dorritar Moussiaeff sumarið 2003
og lét í ljós efasemdir um að ráða-
hagurinn væri löglegur. Þetta
kemur fram í nýrri bók Guðjóns
Friðrikssonar sagnfræðings, Saga
af forseta, sem fjallar um forseta-
tíð Ólafs Ragnars.
Ólafur Ragnar og Dorrit gengu í
hjónaband á Bessastöðum í maí
2003. Guðmundur Sophusson,
sýslumaður í Hafnarfirði, gaf þau
saman. Í bókinni segir að Guð-
mundur hafi fullvissað forsetann
um að hann hefði undir höndum
öll nauðsynleg gögn til að geta
framkvæmt hjónavígsluna. Nokkr-
um vikum eftir brúðkaupið hafði
Guðmundur sýslumaður samband
við Sigurð G. Guðjónsson, lög-
mann Ólafs Ragnars, og spurði
hvaða pappíra væri hægt að fá til
að ganga úr skugga um að hjóna-
bandi Dorritar og fyrri manns
hennar væri lokið. Sigurður gekk í
málið en skýrði fyrir Guðmundi
að það gæti tekið nokkrar vikur að
fá 25 ára gamalt skilnaðarvottorð
Dorritar frá Bretlandi. Í kjölfarið
tilkynnti Hagstofan Sigurði að
ekki væri hægt að skrá hjónaband-
ið vegna fyrrgreindra hnökra. Því
væri ekki hægt að skrá Dorrit til
heimilis að Bessastöðum og hún
yrði að sækja um dvalarleyfi á
Íslandi.
Í lok júlí barst forsetanum bréf
frá Davíð Oddssyni, þáverandi
forsætisráðherra, þar sem fram
kom að sýslumaður „hafi gert mis-
tök að verða við óskum forsetans
um framkvæmd hjónavígslu“.
Krafðist hann að úr „öllum ágöll-
um“ yrði bætt án tafar, „enda er
þetta mál allt hið vandræðalegasta
og óheppilegt hvernig til þess var
stofnað“. Í bókinni segir að forset-
inn hafi hringt í Davíð vegna
bréfsins og féll málið niður í fram-
haldinu.
Guðjón Friðriksson segir bréfið
vera aðför að Ólafi Ragnari og
heiðri forsetafrúarinnar. Sigurður
G. Guðjónsson segir að Davíð hafi
farið langt út fyrir valdsvið sitt í
þeim tilgangi að koma höggi á for-
setann.
- bs / Sjá síðu 12.
Davíð sagði ágalla á
hjónabandi forsetans
Davíð Oddsson sendi forseta Íslands bréf sumarið 2003 og gerði athugasemdir við
hjónavígslu forsetahjónanna. Davíð taldi mistök af hálfu sýslumanns að gefa þau
saman. Dorrit var synjað um lögheimili að Bessastöðum, að því er segir í nýrri bók.
-4 -4
-5
0
2
ÉL NYRÐRA Í dag verður yfirleitt
norðan 3-10 m/s, hvassast vestan
til. Él norðanlands og austan en
bjart veður sunnan og vestan til.
Frost 0-8 stig en þó frostlaust að
deginum syðra.
VEÐUR 4
DIDDA JÓNSDÓTTIR
Fór í ævintýraferð
til Argentínu
Rakst óvænt á Tommy Lee Jones
FÓLK 50
Indælt starf að
vera leikari
Hinn ungi og efnilegi
Michael Cera ræðir
lífið og tilveruna
við Fréttablaðið.
KVIKMYNDIR 36
FÓLK „Palli fermetri öðlaðist nýtt
viðurnefni á mótinu. Tonnatak,“
segir Ingvar „Ríngó“ Jóel. Hópur
kraftlyftingamanna er nýkominn
heim en þeir gerðu góða ferð á
HM í kraftlyftingum sem haldið
var í Austurríki. Liðið kom heim
með sjö gullverðlaun, tvö silfur og
tvö brons. Heimsmetin fuku og
íslenskir heimsmeistarar fædd-
ust. Að öðrum ólöstuðum hlýtur
stjarna mótsins að teljast Páll
Logason, sem enginn þekkir undir
öðru nafni en Palli fermetri.
„Góðan daginn. Hann stal senunni
þessi krakki. Tuttugu og tveggja
ára gamall. Heimsmeistari
unglinga. Lyfti samanlagt einu
tonni!“ segir Ingvar Jóel og leiðist
ekki að segja af afrekum félaga
sinna í kraftlyftingafélaginu
Metall. - jbg / sjá síðu 50
Sjö gullverðlaun Íslendinga:
Palli fermetri
lyftir tonni
PALLI FERMETER Stal senunni á kraft-
lyftingamóti í Austurríki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
VELJUM ÍSLENSKT
Hönnun og nýsköpun
lykill að endurreisn
Sérblaðið Veljum íslenskt
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
Hefur sannað
gildi sitt
Ráðgjafarþjónusta
Krabbameinsfélags
Íslands var stofnuð
fyrir ári.
TÍMAMÓT 26
Opið til 21
Rök fyrir utanþingsstjórn
„Utanþingsstjórn nú yrði líkt og
fyrr litin hornauga á Alþingi. Sex
ráðuneyti myndu duga“, skrifar
Þorvaldur Gylfason.
Í DAG 18
SEX Í SVEIT Meðlimir óeirðasveitar lögreglunnar í Lima, höfuðborg Perú, eru við öllu búnir hjá hóteli sem hýsir George W. Bush
Bandaríkjaforseta næstu daga. Bush er í Lima til að taka þátt í leiðtogafundi Efnahagsbandalags Kyrrahafsríkja, APEC.
Meistararnir
vaknaðir
Íslands-
meistarar Hauka
skelltu toppliði Akur-
eyrar fyrir norðan í
gær.
ÍÞRÓTTIR 46
VIÐSKIPTI „Verðmæti þessara verka
er að minnsta kosti milljarður
króna, það hlýtur að vera. Sum
verkanna eru einfaldlega ómetan-
leg,“ segir Tryggvi Páll Friðriks-
son listmunasali og uppboðshald-
ari. Í listaverkasöfnum
viðskiptabankanna, sem komust í
eigu ríkisins þegar bankarnir voru
yfirteknir, eru um það bil 4.080
listaverk.
Það er mat Tryggva að um fjórð-
ungur safnanna sé mjög góð verk
sem ættu heima á söfnum.
Sigurður Tómas Magnússon, sér-
fræðingur við lagadeild Háskólans
í Reykjavík, segir ekkert athuga-
vert við að listaverk í eigu við-
skiptabankanna hafi fylgt með
fasteignum og öðrum eignum bank-
anna í nýju félögin sem stofnuð
voru um rekstur þeirra.
Hann segir kröfuhafa í væntan-
leg þrotabú bankanna ekki tapa á
þeim gjörningi, frekar en þeir tapi
á því að fasteignir, húsbúnaður og
aðrar eignir hafi færst í nýju fyrir-
tækin. Ekkert af þessu verði fært í
nýju fyrirtækin án endurgjalds,
sem verði metið þegar uppgjör
bankanna fari fram.
Í listaverkasafni Landsbankans
eru um 1.800 verk, þar af mörg
eftir Jóhannes Kjarval. Um 1.080
verk eru í safni Glitnis og um 1.200
í safni Kaupþings. - bj, kg / sjá síðu 4
Viðskiptabankarnir eiga þúsundir listaverka eftir marga virtustu listamenn landsins:
Milljarður í listaverkum banka
EFNAHAGSMÁL Stjórn Alþjóðagjald-
eyrissjóðsins ræddi tveggja
milljarða dala lán til Íslands á
fundi í Washington í Bandaríkjun-
um í gær.
Stjórnarfundurinn hófst
klukkan átta í gærkvöldi að
íslenskum tíma. Fundinum var
ólokið þegar Fréttablaðið fór í
prentun en fastlega var gert ráð
fyrir að stjórnin myndi sam-
þykkja lánið á grundvelli skilmála
sem Íslendingar gengu frá við
sendinefnd sjóðsins 24. október
síðastliðinn. Búist er við að um tíu
dagar líði áður en fyrstu greiðslur
úr láninu skila sér til Íslands. - gar
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn:
Ræddu lán til
Íslands í gær
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
A
FP