Fréttablaðið - 20.11.2008, Side 4
4 20. nóvember 2008 FIMMTUDAGUR
VEÐURSPÁ
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
Alicante
Amsterdam
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
New York
Orlando
Osló
París
Róm
Stokkhólmur
19°
12°
7°
9°
8°
7°
11°
8°
9°
8°
21°
14°
4°
21°
1°
12°
17°
1°
-4
-4
-4
-3
-5
1
0
3
2
0
-8
5
3
1
3
3
3
5
8
6
8
5
-3 -5
-5
-6Á MORGUN
8-13 m/s allra austast
annars mun hægari
LAUGARDAGUR
8-15 m/s V-og NV-til
annars hægari
1
5 3
-2
39
HLÝNAR Á
LAUGARDAG
Kalt verður í veðri í
dag og á morgun en
á laugardag kemur
lægð með hlýindum
og vætu upp að
landinu. Úrkomulítið
verður framan af
degi austast en síðan
má búast við slyddu-
kenndri úrkomu und-
ir kvöld. Á sunnudag
hallar hann sér á ný í
norðanátt með snjó-
eða slydduéljum
nyrðra.
Sigurður Þ.
Ragnarsson
veður-
fræðingur
VIÐSKIPTI Listaverkasöfn viðskipta-
bankanna komust í eigu ríkisins
þegar bankarnir voru yfirteknir. Í
söfnunum eru um það bil 4.080
listaverk. Lögmaður segir að meta
verði verkin og gera upp við þrota-
bú bankanna.
„Verðmæti þessara verka er að
minnsta kosti milljarður króna, það
hlýtur að vera,“ segir Tryggvi Páll
Friðriksson, listmunasali og upp-
boðshaldari. „Sum verkanna eru
einfaldlega ómetanleg.“
Það er mat Tryggva að um fjórð-
ungur sé mjög góð verk sem ættu
heima í söfnum. Fjórðungur til við-
bótar sé sæmileg verk, en ekki jafn
merkileg. Helmingur sé svo minna
merkilegur.
Sigurður Tómas Magnússon, sér-
fræðingur við lagadeild Háskólans
í Reykjavík, segir ekkert athuga-
vert við að listaverk í eigu við-
skiptabankanna hafi fylgt með fast-
eignum og öðrum eignum bankanna
í nýju félögin sem stofnuð voru um
rekstur þeirra.
Hann segir kröfuhafa í væntan-
leg þrotabú bankanna ekki tapa á
þeim gjörningi, frekar en þeir tapi
á því að fasteignir, húsbúnaður og
aðrar eignir hafi færst í nýju fyrir-
tækin. Ekkert af þessu verði fært í
nýju fyrirtækin án endurgjalds,
sem verði metið þegar uppgjör
bankanna fari fram.
Allir viðskiptabankarnir eiga
gott safn málverka og annarra lista-
verka eftir íslenska höfunda. Sýnu
veglegast er safn Landsbankans. Í
því eru um 1.800 verk, segir Hauk-
ur Þór Hallsson, framkvæmda-
stjóri eignadeildar hjá bankanum.
Bankinn á mikið af verkum eftir
Jóhannes Kjarval, þar á meðal er
verkið Hvítasunnudagur. Það verk
keypti bankinn fyrir metverð á
uppboði í Kaupmannahöfn í febrú-
ar 2007. Verkið var slegið á 1,3
milljónir danskra króna, sem voru
um 15,3 milljónir á gengi þess tíma.
Með kostnaði uppboðshaldara
komst upphæðin í um 19,3 milljónir
króna. Þá átti eftir að flytja verkið
til Íslands og greiða virðisauka-
skatt.
Um 1.080 myndir eru í listaverka-
safni Glitnis, sem færðist með
öðrum eignum yfir í nýja bankann,
segir Már Másson, forstöðumaður
kynningarmála hjá bankanum.
Hann segir verkin að meginstofni
komin frá forverum Glitnis,
Útvegsbankanum, Verzlunarbank-
anum, Iðnaðarbankanum og
Alþýðubankanum.
Kaupþing á um 1.200 listaverk,
segir Klara Stephensen, sem vann
að skráningu verkanna fyrir bank-
ann. Klara segir afar erfitt að áætla
verðmæti safnsins í krónum talið,
en menningarverðmætin séu aug-
ljóst.
Í safni Kaupþings eru verk eftir
alla helstu listamenn þjóðarinnar,
en á undanförnum árum hefur
áhersla verið lögð á samtímalist.
brjann@frettabladid.is
Listaverk bankanna
metin á yfir milljarð
Viðskiptabankarnir þrír eiga rúmlega 4.000 listaverk, þar á meðal fjölda verka
eftir virtustu listamenn þjóðarinnar. Uppboðshaldari segir augljóst að verkin
séu virði í það minnsta eins milljarðs króna. Sum séu hreinlega ómetanleg.
DÝRAST Málverkið
Hvítasunnudagur
er trúlega dýrasta
einstaka verk íslensku
viðskiptabankanna.
Landsbankinn keypti
verkið fyrir 15,3 millj-
ónir króna í febrúar
2007.
TRYGGVI PÁLL FRIÐRIKSSONSIGURÐUR TÓMAS MAGNÚSSON
EFNAHAGSMÁL „Fjármálaráðherra
hefur upplýst mig um að hann hafi
ekki vitað um hlutabréfaeign Bald-
urs [Guðlaugssonar, ráðuneytis-
stjóra fjármálaráðuneytisins],“
segir Helgi Hjörvar, þingmaður
Samfylkingarinnar. Helgi hefur
kallað eftir svörum um viðskipti
Baldurs með hlutabréf í Lands-
bankanum og hvatt hann til að end-
urskoða söluna.
Baldur seldi hlutabréf sem hann
átti í Landsbankanum skömmu
áður en Fjármálaeftirlitið yfirtók
rekstur bankans. Hann hélt því svo
í fyrstu fram að hann hefði ekki
haft neinar upplýsingar um stöðu
bankans sem ekki lægju fyrir á
markaði. Síðar kom í ljós að tveir
breskir sérfræðingar höfðu gefið
út skýrslu um laka stöðu Lands-
bankans og kynnt snemma á þessu
ári. En þar fyrir utan er vitað að í
byrjun september sat Baldur fund
ásamt Björgvini G. Sigurðssyni
viðskiptaráðherra og Alistair Dar-
ling, fjármálaráðherra Bretlands,
þar sem farið var yfir Icesave-inn-
lánsreikninga Landsbankans.
Helgi segist hafa rætt við Baldur
að undanförnu um þessa sölu,
minnt hann á eftirlitshlutverk
Alþingis með framkvæmdavaldinu
og hvatt hann til að endurskoða
afstöðu sína. Spurningarnar sem
hann vill fá svör við eru hvaða dag
salan á bréfunum fór fram, hve
umfangsmikil viðskiptin voru og
hvort þau voru á vegum félags.
Spurningunum neitar Baldur að
gefa svör við að sögn Helga.
Ekki fengust svör frá Fjármála-
eftirlitinu um hvort málið væri þar
til rannsóknar. Forstjóri Kauphall-
arinnar vildi ekki tjá sig um hvort
hann teldi að þarna hefði verið um
innherjaviðskipti að ræða og Bald-
ur sjálfur sagðist ekki þurfa að
bæta neinu við það sem hann hefur
áður haldið fram í fjölmiðlum.
Helgi segir að allt þetta veki
spurningar um hæfi. Um óvenju-
lega gróft dæmi sé að ræða og
óhjákvæmilegt sé að ræða málið
áfram. Ráðuneytisstjóri í fjármála-
ráðuneyti þurfi umfram aðra að
sýna grandvarleika þar sem hann
er gæslumaður yfir fjármálum rík-
isins.
- kdk
Stjórnarþingmaður hvetur ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytisins til að svara fyrir hlutabréfasölu sína:
Árni kveðst ekki hafa vitað um hlutabréf Baldurs
HELGI
HJÖRVAR
BALDUR
GUÐLAUGSSON
NOREGUR Norska sementsflutn-
ingaskipið Creta Cement, sem er
skráð á Bahamaeyjum, sigldi í
strand í Óslóarfirði við Noreg og
sökk til hálfs í gærmorgun.
Um borð í skipinu eru 5.000
tonn af sementi, en einnig eru í
skipinu 115 tonn af þungolíu auk
14 tonna af dísilolíu. Óttast var að
þungolían gæti lekið út, en mikill
viðbúnaður var á staðnum til að
bregðast við því.
Skipið sigldi fyrst í strand við
eyjuna Aspond og urðu skemmdir
töluverðar, en þá var reynt að
sigla því í höfn skammt frá, sem
þó tókst ekki. Lekinn var það
mikill að áhöfnin varð að yfirgefa
skipið.
Skipstjórinn er rússneskur og
áhöfnin frá Króatíu, Litháen,
Póllandi og Indónesíu. Lögregla
ræddi við áhöfn skipsins í gær, til
að fá útskýringar á því sem
úrskeiðis fór. - gb
Strand í Óslóarfirði:
Flutningaskip
sökk við Noreg
FÓLK Sonur séra Péturs Þórarins-
sonar heitins í Laufási hefur
fengið endurnýjaðan frest til að
fara burt með hús sem hann setti
niður á jörðinni á meðan faðir
hans lifði. Þórarinn Pétursson og
fjölskylda hans hafa rekið 600
kinda bú í Laufási og ekki viljað
fara. Nærri allir íbúar Grýtu-
bakkahrepps sendu biskupi á
sínum tíma ákall um að fjölskyld-
an fengi að vera áfram. Af hálfu
prestssetrasjóðs kemur það ekki
til greina. Lokafrestur Þórarins
til að fara með húsið rann út 15.
nóvember síðastliðinn. Fresturinn
er nú framlengdur til 1. mars á
næsta ári. Fjölskyldan má að auki
stunda búskap á jörðinni í fjögur
ár. - gar
Fjölskyldan í Laufási:
Húsið fær að
vera fram á vor
Í LAUFÁSI Prestssetrasjóður vill endur-
heimta jörðina.
SAMGÖNGUR Vestmannaeyingar
eru afar vonsviknir með þá
ákvörðun samgönguráðuneytisins
að ganga ekki að þýsku tilboði um
smíði nýrrar Vestmannaeyja-
ferju. Bæjarráð Vestmannaeyja
minnir á að ríkið hafi sagst
mundu standa vörð um grunn-
þjónustu og til hennar teljist
samgöngur. Bilanir í Vestmanna-
eyjaferjunni Herjólfi valdi bæði
töfum og óþægindum. Þess utan
hafi flug á Bakka lagst af.
Bæjarráð hvetur til að smíði
skipsins verði boðin út aftur. Í
ljósi efnahagsástandsins verði
leitað allra leiða til að auðvelda
íslenskum fyrirtækjum að bjóða í
nýsmíðina. Þá verði einnig að
halda áfram með framkvæmdir í
Landeyjahöfn. - gar
Frestun á ferjusmíði:
Eyjamenn eru
afar vonsviknir
Enginn makrílkvóti
Í blaðinu í gær var ranghermt að
Íslendingar hefðu veitt umfram kvóta
af makríl. Hið rétta er að enginn kvóti
er á makríl í íslenskri lögsögu.
LEIÐRÉTTING
Skipt um fulltrúa í nefndum
Friðrik Dagur Arnarsson tekur sæti
Þorleifs Gunnlaugssonar í umhverfis-
og samgönguráði Reykjavíkur fyrir
hönd Vinstri grænna. Þorleifur tekur
sæti áheyrnarfulltrúa í forsætisnefnd
af Svandísi Svavarsdóttur.
NÝR FULLTRÚI VG
GENGIÐ 19.11.2008
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
236,1288
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
139,03 139,69
209,19 210,21
175,51 176,49
23,559 23,697
19,686 19,802
17,268 17,37
1,4347 1,4431
205,03 206,25
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR