Fréttablaðið - 22.11.2008, Qupperneq 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
22. nóvember 2008 — 320. tölublað — 8. árgangur
VAMPÍRUR OG VÆTTIR
tískuhönnuðir sækja innblástur
í gotneskar hryllingssögur
48
Þolir ekki Atla Bollason
SNORRI HELGASON Í SPRENGJU-
HÖLLINNI YFIRHEYRÐUR
36
LÖGREGLUMÁL Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglu-
stjóra rannsakar meint tugmilljóna króna peninga-
þvætti. Tveir menn voru handteknir vegna málsins
í gær, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins.
Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst fóru menn
úr efnahagsbrotadeildinni í húsleit í verðbréfafyrir-
tækið Virðingu hf. í gær eftir að upp hafði komið
grunur um ofangreint athæfi starfsmanns sem gegn-
ir stjórnunarstöðu þar. Virðing hf. er verðbréfafyrir-
tæki sem leggur áherslu á að þjónusta fag- og stofn-
anafjárfesta. Fyrirtækið á engan hlut að máli.
Umræddur starfsmaður hafði ekki verið hand-
tekinn í gær, en í fyrirtækinu lögðu efnahagsbrota-
deildarmenn hald á ýmis gögn til frekari rannsókn-
ar á málinu. Grunur leikur á að um auðgunarbrot sé
að ræða og síðan peningaþvætti.
Tveir menn voru svo handteknir og yfirheyrðir í
gær. Þeir eru ekki starfsmenn verðbréfafyrirtækis-
ins, en eru grunaðir um að vera vitorðsmenn í hinu
meinta auðgunarbroti og peningaþvætti. - jss
Efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra handtók tvo menn í gærdag:
Grunur um milljóna peningaþvætti
VÍÐA FROSTLAUST Í dag verður
suðlæg átt. Hvöss með morgninum
vestan til og á hálendinu annars
hægari. Lægir í dag. Rigning á vest-
urhluta landsins annars slydda eða
snjókoma. Úrkomulítið í kvöld.
VEÐUR 4
4
2
-2
2
5
Opið 10 -18
FÓLK „Ætli maður fylgi ekki bara
Big Mac í framtíðinni,“ segir
leikarinn Gísli Örn Garðarsson.
Til stendur að
framleiða leikföng
í kringum stór-
myndina Prince of
Persia: Sand of
Time sem hann
leikur í um þessar
mundir. Ef allt
gengur að óskum
verður Gísli því
væntanlegur í líki
illmennisins The
Vizier í allar betri leikfangabúðir
þegar kvikmyndin hefur verið
frumsýnd sumarið 2010.
Meðal mótleikara Gísla í
myndinni er sir Ben Kingsley.
Gísli segist hafa verið smeykur
við atriðin með honum. „Ég hafði
heyrt alls kyns tröllasögur af
honum, að hann væri erfiður í
umgengni. Þetta gekk hins vegar
stóráfallalaust fyrir sig.“
-fgg/sjá síðu 62
Gísli Örn í stórmynd:
Verður til sölu í
leikfangabúðum
Ellefu marka tap Fram
Róbert Gunnars-
son skoraði átta
mörk í 38-27 sigri
Gummersbach gegn
Fram.
ÍÞRÓTTIR 56
Keith Richards
íslenskra rithöfunda
Ólafur Gunnarsson gefur
út skáldsögu sem gerist á
hippaárunum FÓLK 32
heimili&hönnunLAUGARDAGUR 22. NÓVEMBER 2008
● HEIMILIÐ
Gefi n fyrir gamla muni● INNLIT
Litadýrðin ræður ríkjum● HÖNNUN
Markaður í miðjum skógi
Ge ð
Á ils.is getur þú:
VEÐRIÐ Í DAG
FY
LG
IR
Í
D
A
G
GRÆNLENSK SVEIFLA Það var líf og fjör í Norræna húsinu í gær þegar hátíðin suður-grænlenskir dagar var opnuð. Emil Guð-
mundsson og Edda Lyberth svifu um gólfið en Jeremias Saninluniak fylgdist með, kátur á svip. Kristján L. Möller samgönguráð-
herra setti hátíðina. Frekari kynning á Suður-Grænlandi verður í dag og hún hefst klukkan eitt. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
GÍSLI ÖRN
GARÐARSSON
Segja breytingar eftirlauna
ekki ganga nægilega langt
Þingmaður Vinstri grænna og varaþingmaður Samfylkingar segja breytt eftirlaunafrumvarp vera kattar-
þvott. Í sama streng tekur forseti ASÍ. Formaður Samfylkingar segir breytingarnar taka helstu agnúa af.
STJÓRNMÁL „Það kemur mér sann-
ast sagna á óvart að þau skuli hafa
þá ósvífni til að bera að voga sér að
setja þetta fram – og það meira að
segja í þjóðmenningarhúsinu,“
segir Ögmundur Jónasson, þing-
maður Vinstri grænna og formað-
ur BSRB, um breytingarnar á
eftirlaunafrumvarpinu sem for-
menn stjórnarflokkanna kynntu í
gær.
Samkvæmt þeim er aldurslág-
mark þingmanna, ráðherra og
hæstaréttardómara til eftirlauna
hækkað úr 55 árum í 60 ár. Girt
verður fyrir að þessir hópar njóti
samtímis eftirlauna og launa frá
ríkinu. Ennfremur er réttinda-
ávinnsla þingmanna og ráðherra
skert samkvæmt breytingunum.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir for-
maður Samfylkingarinnar, segir að
breytingarnar taki helstu agnúa af
hinu umdeilda eftirlaunafrum-
varpi.
„Þau eru búin að liggja yfir því í
tuttugu mánuði að reyna að finna
út hvað þau komist upp með að
skerða eigin sérréttindi lítið,“ segir
Ögmundur. „Og þetta er niðurstað-
an. Það liggur fyrir frumvarp í
þinginu og hefur lengi legið, fyrst
frá Valgerði Bjarnadóttur og nú
frá þingflokki VG, um afnám þess-
ara réttinda alveg. Að farið verði
með þingmenn, ráðherra og svo-
kalla æðstu embættismenn inn í
almennt lífeyriskerfi starfsmanna
ríkisins. Ég skil ekki hvers vegna í
ósköpunum það er ekki gert.“
„Þetta er náttúrulega ekkert
annað en kattarþvottur,“ segir Val-
gerður Bjarnadóttir, varaþingmað-
ur Samfylkingar sem lagði fram
breytingar á eftirlaunafrumvarp-
inu á síðasta þingi.
Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ,
lýsti yfir vonbrigðum í kvöldfrétt-
um Sjónvarpsins yfir því að ekki
hafi verið gengið lengra þannig að
þingmenn og ráðherrar væru með
sambærileg réttindi og aðrir opin-
berir starfsmenn.
„Fólk telur réttlætismál að þetta
verði skoðað og nú hefur það verið
gert svo ég vona að nú sé deilum
um þetta mál lokið,“ segir Sigurður
Kári Kristjánsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokks. „Ég er síðan
alltaf tilbúinn að ræða það hvort
færa eigi lífeyrisréttindi opinberra
starfsmanna nær því sem gerist á
almennum markaði.“
- jse/- hhs sjá síðu 4.