Fréttablaðið - 26.11.2008, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 26. nóvember 2008
„Ég er skírð eftir langömmu minni sem var
ættuð úr Dölunum og hún var sú fyrsta til að
bera nafnið í ættinni,“ segir Dýrfinna Torfa-
dóttir skartgripahönnuður. Hún segist nú
ekki alveg klár á hvað nafnið þýðir en ein-
hvern tíma fékk hún þó fremur sérstaka skýr-
ingu á því frá vænum presti. „Hann sagði
við mig að nafnið þýddi ágæt finnsk hefðar-
frú en ég hef nú ekki heyrt það annars stað-
ar en mér fannst þetta nú ekki passa við mig
sem kem vestan af fjörðum. Hins vegar sagði
móðir mín mér að nafnið þýddi dýrmæt og
ágæt, það besta sem til væri,“ segir Dýrfinna
brosandi og bætir við að flestir haldi að hún
sé skírð eftir Dýrafirðinum. „Ég er fædd og
uppalin á Ísafirði og því halda margir að ég sé
skírð eftir Dýrafirðinum, en svo er ekki.“
Þegar Dýrfinna var yngri þótti henni nafnið þó
til vandræða. „Kennarar voru alltaf að kalla
mig Dýrunni, Dýrleif og Tinnu og þá fór allur
bekkurinn að hlæja. Mér þótti þetta voðalega
erfitt en eftir því sem ég fór að eldast varð
ég bara stolt af þessu nafni,“ segir Dýrfinna
sem lærði þannig að meta nafnið með tím-
anum. „Við erum nú bara tvær í fjölskyldunni
sem berum nafnið núna. Það er ég og síðan
bróðurdóttir mín. Langamma mín var hins
vegar merkileg kona á fleiri en einn hátt. Auk
þess að bera þetta sérstaka nafn fæddi hún
tvenna tvíbura,“ segir Dýrfinna sposk en lang-
amma hennar var mjög frjósöm og eignaðist
fleiri börn auk tvíburanna. Faðir Dýrfinnu heit-
ir Torfi Tímóteus og verður það að teljast frek-
ar sérstakt nafn líka. „Bróðir minn á ellefu ára
son sem
NAFNIÐ MITT: DÝRFINNA TORFADÓTTIR
Sérstök nöfn í ættinni
FÆDDI TVENNA TVÍBURA Dýrfinna er skírð í
höfuðið á langömmu sinni sem auk þess að
bera sérstakt nafn fæddi tvenna tvíbura.
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
„Við viljum lyfta þessum konum upp í sólina og gera sýnileg
störf þeirra sem hafa gjarnan verið unnin í þögn og ósýni-
leika,“ segir Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta, sem
veittu nýverið fimm konum jafnréttisviðurkenningu við há-
tíðlega athöfn.
Þorgerður Einarsdóttir, dósent í kynjafræði, fékk viður-
kenninguna fyrir einstaka þekkingu og færni í að beita kynja-
fræði í baráttu fyrir réttlátu samfélagi. Matthildur Helga Jó-
nudóttir framkvæmdastjóri fyrir að eiga hugmyndina að
verkefninu Óbeisluð fegurð. Með því hafi hún nýtt fyndni og
frumlega hugsun sem eru beitt verkfæri í baráttunni fyrir
réttlátara samfélagi. Kolbrún Halldórsdóttir þingkona fyrir
að hafa flutt mörg mikilvæg þingmál gegn kynbundnu of-
beldi og vera óþreytandi í að flytja boðskap Stígamóta inn í
þingsal. Margrét Steinarsdóttir lögfræðingur fyrir langt og
óeigingjarnt starf í þágu Stígamóta, meðal annars með lög-
fræðilegri ráðgjöf, fræðslu og peningagæslu. Katrín Anna
Guðmundsdóttir femínisti fyrir að vera óþreytandi talskona
femínista á Íslandi og fyrir að ganga á undan og teygja mörk
hins leyfilega í baráttunni fyrir réttlátara þjóðfélagi.
Baráttukonur verðlaunaðar
Þorgerður Einarsdóttir, Margrét Steinarsdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir,
Matthildur Helga Jónudóttir og Katrín Anna Guðmundsdóttir hlutu
viðurkenningu Stígamóta. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Bjarni Kristinn Andrésson
frá Hamri, til heimilis að
Nýbýlavegi 76 í Kópavogi,
andaðist á hjartadeild Landspítalans laugardaginn
22. nóvember síðastliðinn. Jarðarförin fer fram frá
Digraneskirkju föstudaginn 5. desember kl. 13.
Systkini hins látna.
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi, langafi, bróðir og mágur,
Ingimundur Guðmundsson
bifreiðastjóri, Fannborg 7,
áður Kársnesbraut 72, Kópavogi,
andaðist á Hjúkrunarheimilinu Sóltúni þann 19.
nóvember. Útförin fer fram frá Kópavogskirkju föstu-
daginn 28. nóvember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast
hins látna er bent á Styrktarfélag krabbameinssjúkra
barna s. 588 7555 eða Hjúkrunarheimilið Sóltún s. 590
6000.
Kristrún Daníelsdóttir
Ragnheiður Ingimundardóttir Sigurður Gunnar Sveinsson
Guðmunda Ingimundardóttir Þórarinn Björn
Guðmundsson
Daníel Gunnar Ingimundarson María Antonía Jónasdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elsa Drageide Halldór Örn Svansson
Elskulegur faðir okkar, bróðir og afi,
Lárus Ingi Kristjánsson
Bleikargróf 13, Reykjavík,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi
laugardaginn 22. nóvember. Útför fer fram frá
Bústaðakirkju mánudaginn 1. desember kl. 15.00.
Eyjólfur Bragi Lárusson
Kristjana Rós Lárusdóttir
Hrefna Ösp Lárusdóttir
Ottó Ingi Lárusson
Magnús Haukur Kristjánsson
Hilmar Kristjánsson
Helga Ragnhildur Kristjánsdóttir
Inga Lára Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Elskuleg móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Bjarney M.
Arinbjarnardóttir
Melasíðu 2a, áður til heimilis í
Fjólugötu 8, Akureyri,
lést 23. nóvember. Útför hennar fer fram frá
Glerárkirkju þriðjudaginn 2. desember kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á að láta
Heimahlynningu á Akureyri njóta þess.
Arna Brynja Ragnarsdóttir
Anna Kristín Ragnarsdóttir Guðmundur Sigurðsson
Bjartmar Örnuson
Sigurður Kristinn Guðmundsson
Bjarni Fannar Guðmundsson
Arinbjörn Ingi Guðmundsson
Hera Margrét Guðmundsdóttir
Ástkær systir okkar, mágkona og frænka,
Oddný Jónsdóttir
frá Lunansholti,
lést föstudaginn 21. nóvember á Hjúkrunarheimilinu
Sóltúni. Útförin fer fram frá Grafarvogskirkju fimmtu-
daginn 27. nóvember kl. 11.00. Jarðsett verður í
Skarðskirkjugarði, Landsveit, sama dag kl. 15.30.
Guðrún Jónsdóttir
Þuríður Jónsdóttir Björgvin Kjartansson
og frændfólk.
Eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir og afi,
Vigfús Þorsteinsson
Patreksfirði,
lést 22. nóvember á Heilbrigðisstofnuninni
Patreksfirði. Jarðsungið verður frá Patreksfjarðarkirkju
laugardaginn 29. nóvember kl.14.00.
Páley Jóhanna Kristjánsdóttir
Kristján P. Vigfússon
Sigríður Margrét Vigfúsdóttir Friðþjófur Sævarsson
Jóhannes Ægir Baldursson Ingibjörg Erna Arnardóttir
og barnabörn.
Ástkæri bróðir okkar og frændi,
Georg Sævar Valgarðsson
Þórðarsveig 3, 113 Reykjavík,
lést miðvikudaginn 19. nóvember á hjartardeild
Landspítalans. Útför fer fram í Grafarvogskirkju
föstudaginn 28. nóvember kl. 15.00.
Guðrún Valgarðsdóttir
Guðmundur Svavar Valgarðsson
Hafsteinn Valgarðsson
Ester Svanhvít Valgarðsdóttir
börn þeirra og barnabörn.
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir og afi,
Ingvi Birkir Jónsson
matreiðslumaður
Hnotubergi 23, Hafnarfirði,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi
fimmtudaginn 20. nóvember, verður jarðsungin
frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði föstudaginn
28. nóvember kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans
er bent á Bergmál líknar- og vinafélag.
Melkorka Sveinbjörnsdóttir
Sigríður Ingvadóttir Oddur Sigfússon
María Emilía Ingvadóttir Kristján Pétur Sigmundsson
Kjartan Orri Ingvason Gunndís Ýr Finnbogadóttir
Elva Hrund Ingvadóttir
og barnabörn.
Okkar ástkæri,
Valdimar Jörgensson
Laugarnesvegi 87, Reykjavík,
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
mánudaginn 17. nóvember. Útförin fer fram frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn 27. nóvember kl 15.00.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á Ljósið, endur-
hæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir fólk sem hefur
fengið krabbamein.
Arndís Jónsdóttir
Jörgen H. Valdimarsson Björg Valsdóttir
Jórunn Valdimarsdóttir Sigurður Freysson
Gunnar Valdimarsson Lára Á. Kristjánsdóttir
og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug við andlát og útför ástkærs föður
okkar, tengdaföður, afa, langafa,
Gunnars Einarssonar
frá Núpi, Berufjarðarströnd.
Aðstandendur.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Katrín L. Hjaltested Hall
ljósmóðir,
áður Lindargötu 57, Reykjavík,
lést á Droplaugarstöðum laugardaginn 22. nóv. sl.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju
mánudaginn 1. des. nk. kl. 15.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþökkuð en þeim sem
vildu minnast hennar er bent á Styrktarfélag
krabbameinssjúkra barna eða aðrar líknarstofnanir.
Frank Pétur Hall Guðlaug Magnúsdóttir
Sigurður Lárus Hall Svala Ólafsdóttir
Ragnheiður Kristín Hall Sigurður Rúnar Ragnarsson
Sigurveig Salvör Hall Gunnar Þorsteinsson
barnabörn og barnabarnabörn.