Fréttablaðið - 27.11.2008, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 27.11.2008, Blaðsíða 30
30 27. nóvember 2008 FIMMTUDAGUR Ber enginn pólitíska ábyrgð? UMRÆÐAN Jón Baldvin Hanni- balsson skrifar um pólitíska ábyrgð Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið ráðandi afl í stjórnmálum á Íslandi á lýðveldistím- anum. Síðastliðin sautján ár hefur flokk- urinn farið með allt í senn forsætisráðuneytið, fjár- málaráðuneytið og stjórn Seðla- bankans (í persónum tvegga fyrrverandi borgarstjóra Reykjavíkur). Þar með ber Sjálf- stæðisflokkurinn óumdeilanlega höfuðábyrgð á þeirri efnahags- stefnu, sem nú hefur beðið algert skipbrot. Þegar minnt er á þessa stað- reynd bregst formaður Sjálf- stæðisflokksins og núverandi forsætisráðherra við með því að segja að það megi ekki perónu- gera vandann. Meðan allt lék í lyndi og góðærið ríkti (þótt það væri að vísu mestan part tekið að láni) þótti sjálfsagt að per- sónugera dýrðina í persónu Davíðs Oddssonar forsætisráð- herra (1991-2004). En nú þegar spilaborgin er hrunin og þjóðar- búið er ein rjúkandi rúst er bann- að að persónugera vandann. Þá er ekkert Davíð að kenna, hvorki sem forsætisráðherra né seðla- bankastjóra. Þaðan af síður þykir kurteislegt að persónugera vand- ann í persónu varaformanns flokksins og fjármálaráðherra (1998-2006). Umræðan verður samkvæmt þessu að fara fram undir nafnleynd. Hinn aldni hagspekingur Við- reisnar, Jónas H. Haraldz, hefur vakið athygli á því að allt frá því að þáverandi forsætisráðherra lagði niður Þjóðhagsstofnun í einhverju bræðikasti árið 2002 hafi engin samræmd hagstjórn verið í landinu. Með því á hann við að stjórn ríkisfjármála (undir forystu forsætis- og fjármála- ráðherra) og stjórn peningamála (undir forystu seðlabankastjóra) eigi að haldast hönd í hönd. Markmiðið með samræmdri hag- stjórn er að stuðla að jafnvægi og stöðugleika í hagkerfinu. Til þess að fyrirtæki getið vaxið og dafnað til lengri tíma litið, ekki síst þau sem byggja afkomu sína á útflutn- ingi, verða þau að geta reitt sig á stöðugleika sjálfs gjaldmiðilsins umfram allt annað. Flestum dómbærum mönnum ber saman um að þetta hafi brugðist hrapallega á undanförn- um sex-sjö árum. Heimsmet í útþenslu ríkisbáknsins Lítum fyrst á ríkisfjármálin. Vegna stórvirkjana fyrir austan og nýrrar álbræðslu í tengslum við þær var þanþol hagkerfisins spennt til hins ýtrasta. Þessar stórframkvæmdir höfðu í för með sér innstreymi erlends láns- fjár sem nam allt að þriðjungi þjóðarframleiðslunnar, auk þess sem boginn var spenntur til hins ýtrasta á vinnumarkaðnum. Til þess að aftra þenslu og viðhalda stöðugleika þurfti ríkisstjórnin að stíga á bremsurnar og draga úr framkvæmdum og neyslu á öðrum sviðum á sama tíma. Það gerði hún ekki. Þvert á móti, rík- isstjórnin kynti með ríkisfjár- málastefnu sinni undir þenslunni. Í framhaldi af einkavæðingu bankanna, sem þegar í stað hófu harða samkeppni um markaðs- hlutdeild inn- og útlána, hækkaði ríkisstjórnin veðmörk fasteigna- lána. Þar með hratt hún af stað svokallaðri fasteignaverðsbólu, sem kynti enn frekar undir verð- bólgu. Útlánaþenslan hækkaði enn frekar verð fasteigna sem aftur varð andlag aukinnar skuldsetningar. Með þessum hætti kyntu stjórnvöld undir skuldsetningu fyrirtækja og heimila með alvarlegum afleið- ingum síðar meir, eins og nú hefur komið á daginn. Þess ber líka að geta sem vel er gert. Svo sem vera bar notaði fjármálaráðherra hluta af sívax- andi tekjustreymi í ríkissjóð af sívaxandi viðskiptahalla til að greiða niður skuldir ríkissjóðs. En þenslan var orðin svo mikil að ríkisgeirinn þandist stjórn- laust út, enda öll aðhaldssemi látin lönd og leið. Ráðuneyti og stofnanir bókstaflega tútnuðu út sem aldrei fyrr. Opinberi geirinn stækkaði úr um 36% af lands- framleiðslu í allt að 48%, á fáein- um árum. Þetta hefur verið kall- að heimsmet í útþenslu ríkisbáknsins undir handleiðslu forsætis- og fjármálaráðherra Sjálfstæðisflokksins. Man ein- hver eftir slagorðinu um báknið burt? Var einhver að tala um stefnufestu? Þessu til viðbótar voru skattar lækkaðir á fyrir- tæki og fjármagnseigendur, sem jók enn á þensluna. Með því að láta persónuafsláttinn til frá- dráttar tekjuskatti einstaklinga standa í stað í verðbólgunni var skattbyrði hinna verst settu hins vegar aukin um leið og kerfi almannatrygginga var látið drabbast niður með flóknum og fáránlegum skerðingarákvæð- um. Heildarniðurstaðan var eftir sem áður sú að opinberi geirinn, þ.e. ríki og sveitarfélög, voru á fullu við að kynda undir þenslu og skuldsetningu þjóðarbúsins. Og ekki bætti peningamála- stjórnin úr skák. Árið 2001 setti Seðlabankinn sér verðbólgu- markmið upp á 2.5% með vik- mörkum. Skemmst er frá því að segja að þessi markmiðssetning náðist aldrei nema skamma hríð á tímabili. Reyndar hefur Seðla- bankinn verið víðs fjárri því að ná yfirlýstum markmiðum sínum sem eitt út af fyrir sig hefur dregið úr trúverðugleika hans. Seðlabankinn hefði átt að vera sérstaklega vel á verði gagnvart útlánaþenslu bankanna í fram- haldi af einkavæðingu þeirra. Margir bentu á það frá upphafi að bankinn ætti að auka bindi- skyldu viðskiptabankanna til þess að draga úr útlánagetu þeirra. Seðlabankinn gerði þver- öfugt. Hann lækkaði bindiskyld- una og ýtti þar með undir þensluna. Seðlabankanum er líka skylt að hafa nákvæmt eftirlit með lausafjárstöðu bankanna, sem er þýðingarmikið öryggisat- riði, en á því hefur verið alvar- legur misbrestur eins og sér- fræðingar hafa bent á. Peningamálastjórn í molum Það var þó fyrst og fremst hinn hraði vöxtur bankakerfisins í kjölfar einkavæðingarinnar sem átti að vera Seðlabankanum sér- stakt áhyggjuefni. Bankakerfið er sagt hafa þanist út frá því að hafa verið í kringum þriðjung landsframleiðslu fyrir einka- væðingu upp í það að vera undir lokin orðið tólffalt íslenska hag- kerfið. Löngu áður en þessi ofvöxtur hljóp í bankakerfið, beint fyrir framan nefið á Seðla- bankanum, átti bankinn að grípa í taumana. Annað hvort með því að auka gjaldeyrisforða sinn, þannig að hann gæti talist trú- verðugur miðað við skuldbind- ingar viðskiptabankanna, (sem hefði trúlega reynst okkur ofviða); eða með því að knýja einhvern bankanna, og þá helst þann stærsta þeirra, til þess að flytja höfuðstöðvar sínar erlend- is, þar sem hann hefði starfað í skjóli öflugri seðlabanka og þar með dregið úr áhættu íslenska ríkisins (les: skattgreiðenda). Seðlabankinn gerði hvorugt, þrátt fyrir viðvaranir dómbærra manna innanlands og erlendis. Seðlabankastjóri ber fram þær málsbætur að hann hafi í febrú- ar á þessu ári varað bæði ríkis- stjórn og stjórnendur viðskipta- bankanna við yfirvofandi hættuástandi. Svarið við því er að Seðlabankinn átti löngu áður, ekki aðeins að hafa varað aðra við, heldur hefði hann átt að grípa til ráðstafana í tæka tíð til að draga úr þeirri áhættu sem viðskiptavinum bankanna og þjóðarbúinu í heild stafaði af skuldsetningu þeirra. Margir hafa orðið til þess að benda á að stýrivaxtahækkun bankans gat ekki skilað miklum árangri við ríkjandi aðstæður. Bæði er að langtímalán t.d. á húsnæðismarkaði eru verð- tryggð og með föstum vöxtum svo að hækkun stýrivaxta hefur lítil áhrif á þeim markaði til skamms tíma. Aðgengi fólks og fyrirtækja að erlendum lánum á lágum vöxtum fyrir milligöngu viðskiptabankanna var á sama tíma nær takmarka laust. Hins vegar hafði hækkun stýrivaxta Seðlabankans fyrirsjáanleg og óæskileg hliðaráhrif. Hinn mikli vaxtamunur milli Íslands og ann- arra landa vakti athygli gjald- miðla- og vaxtamunarbraskara, sem eygðu von um skjótfenginn gróða með kaupum á íslenskum vaxtabréfum. Innstreymi erlends fjármagns varð til þess að hækka gengi krónunnar langt umfram langtímajafnvægis- gengi.Hátt gengi krónunnar örv- aði innflutning, jók á skuldsetn- ingu fyrirtækja og heimila og magnaði viðskiptahallann. Heildaráhrifin af peninga- málastjórnun Seðlabankans voru því í reynd þveröfug á við yfir- lýsta stefnu. Með þessari stefnu var gengisstöðugleika fyrirsjá- anlega stefnt í voða, auk þess sem kynt var undir neysluæði, viðskiptahalla og skuldsetningu. Undir lokin voru íslensk heimili orðin hin skuldsettustu í heimin- um. Þetta var hagkerfi sem bar öll ytri merki óstöðugleika og jafn- vægisleysis. Ríkisstjórn og Seðlabanki höfðu í sameiningu, vegna skorts á samræmdri hag- stjórn, búið til falska velmegun sem var mestan part fengin að láni. Það mátti lítið út af bera til þess að spilaborgin hryndi. Um leið og lánalínur erlendra banka brugðust, í kjölfar hinnar amer- ísku bankakreppu, sem nú er orðin alþjóðleg, hrundi spila- borgin. Sérstaða Íslands í þess- ari bankakreppu er sú að fjár- málakerfi þjóðarinnar í heild hrundi til grunna og að gjaldmið- illinn sjálfur var í frjálsu falli, uns hann brotlenti með ósköp- um. Þetta er niðurstaðan af þeirri efnahagsstefnu, sem Sjálfstæð- isflokkurinn ber höfuðábyrgð á sl. sautján ár. Það er ekki bara að forsætis- og fjármálaráðherrum flokksins, item seðlabankastjóra, hafi verið mislagðar hendur. Þeir skilja beinlínis við hagkerfið í rjúkandi rúst eins og það hafi lent í stríðsátökum eða náttúru- hamförum. Þar með er Sjálf- stæðisflokkurinn orðinn að pólit- ísku þrotabúi, sem ætti sjálfur að sjá sóma sinn í að óska eftir greiðslustöðvun og gjaldþrota- meðferð. Ella verða kjósendur að taka af honum ómakið. Höfundur starfaði með Sjálfstæð- isflokknum í ríkisstjórn 1991-95. JÓN BALDVIN HANNIBALSSON En þenslan var orðin svo mikil að ríkisgeirinn þandist stjórn- laust út, enda öll aðhaldssemi látin lönd og leið. Ráðuneyti og stofnanir bókstaflega tútnuðu út sem aldrei fyrr. Opinberi geirinn stækkaði úr um 36% af landsframleiðslu í allt að 48%, á fáeinum árum. UMRÆÐAN Lilja Þorkelsdóttir, Katrín Þor- grímsdóttir og Soffía Einars- dóttir skrifa um vinnumark- aðinn Gífurlegar breytingar hafa átt sér stað á vinnumarkaði og möguleikum til náms undanfarin ár. Dregið hefur úr þeim viðhorf- um til starfa sem áður voru við- tekin, þ.e. að fólk finni sér starfs- vettvang og haldi sér þar án mikilla breytinga. Í dag er litið svo á að starfsferill sé þróun sem hefjist snemma á ævinni og sé í stöðugri mótun út ævina. Nú þykir sjálfsagt að einstaklingar skipti um starfsvettvang oftar en einu sinni á starfsferlinum og sæki sér sí- og endurmenntun til að fylgja þessari þróun eftir. Í flóknu nútímasamfélagi hafa breytingar á atvinnumarkaði og örar tækniframfarir gert það að verkum að starfsþróun einstakl- inga er ekki eins fyrirsjáanleg og áður. Möguleikar til að skipta um starf og bæta við sig menntun til nýrra starfa hafa tekið miklum breytingum. Mikið framboð er af námsleiðum til að bæta ofan á fyrra nám sem gefa tækifæri á að víkka út starfssviðið. Framboð á námi fyrir einstaklinga með litla eða enga formlega menntun hefur einnig aukist mikið. Gott aðgengi að náms- og starfsráðgjöf er mikilvægt fyrir alla þá sem standa frammi fyrir ákvarðanatöku um nám eða starf. Hluti af verksviði náms- og starfsráðgjafa er að aðstoða ein- staklinga við að kortleggja áhuga sinn, skoða eigin viðhorf og gild- ismat. Vel ígrundað náms- og starfsval eykur líkur á meiri starfsánægju og betri lífsgæð- um. Rannsóknir hafa sýnt fram á það að öflug náms- og starfs- fræðsla ásamt náms- og starfs- ráðgjöf dregur úr hættunni á brotthvarfi úr námi. Eitt meginhlutverk Náms- flokka Reykjavíkur er að fylgja eftir félagslegri menntunar- stefnu Reykjavíkurborgar en í henni felst meðal annars að aðstoða borgarbúa, einkum þeim hópi fólks sem minnsta formlega menntun hefur, að finna nám og störf við hæfi. Liður í því er að bjóða Reykvíkingum upp á náms- og starfsráðgjöf og starfa nú fjórir náms- og starfsráðgjafar á vegum Námsflokka Reykjavíkur við það verkefni. Þeir sinna náms- og starfsráðgjöf á öllum þjónustumiðstöðvum Reykjavík- ur. Stendur þessi þjónusta öllum Reykvíkingum til boða. Höfundar eru náms- og starfsráðgjafar. Þitt að velja, okkar að styðja Aðgengilegt uppflettirit fyrir þá sem vilja glöggva sig á efni Biblíunnar og lykilpersónum hennar. Bókin varpar ljósi á tilurð þessa mikilvægasta rits vestrænnar menningar og hvernig það hefur fengið á sig þá mynd sem við þekkjum nú á dögum. bók bókanna
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.