Fréttablaðið - 27.11.2008, Blaðsíða 32
SAUMANÁMSKEIÐ og fatahönnunarnámskeið geta
verið sniðug fyrir þá sem hafa áhuga á að fara að búa til
sín eigin föt. Mímir-símenntun og Kvöldskóli Kópavogs
standa til dæmis fyrir ýmsum spennandi námskeiðum.
Augnháralitur og augnbrúnalitur
Tana® Cosmetics
SÖLUSTAÐIR: APÓTEK OG SNYRTIVÖRUVERSLANIR
NÝTT!!
Plokkari með ljósi
teg. 4331 - létt fylltur
toppur með spöngum í BC skálum
á kr. 4.685,- buxur í stíl kr. 1.950,-
KRINGLAN SMÁRALIND LAUGAVEGUR
FIMMTUDAGS
TILBOÐ
49464 00101
Lir: Svart
Stærðir:
41-47
Stream
20.995
15.995
42454 00101
Lir: Svart
Stærðir:
41 - 47
Boston
20.995
14.995
44633 51052
Lir: Svart, brúnt
Stærðir:
36 - 42
Voyage
23.995
17.995
11823 52733
Lir: Svart, brúnt
Stærðir:
36 - 42
Winter Z.
24.995
17.995
Loðfóðraðir
Alla föstudaga
Elegans er eitt þemað í nýja afmælis-
blaðinu frá Rowan.
„Það er alltaf einhver sem dregur
vagninn í framþróun og vöruhönn-
un og í þeim flokki er Rowan,“
segir Guðrún Hannele Henttinen,
prjónahönnuður og eigandi Storks-
ins og telur marga kaupa Rowan-
blöðin til að fá innblástur í sitt
handverk.
Rowan er breskt garnfyrirtæki
sem gefur út tvö stór prjónablöð á
ári, auk annarra minni á tveggja
mánaða fresti. Meðal prjónahönn-
uða á þess snærum er hinn heims-
þekkti Kaffee Fassett. Þrjú þemu
eru í nýja afmælisblaðinu, elegans,
stríðsáratíll og renessans. Peys-
urnar bera nöfn gamalla kvik-
myndastjarna eins og Hayworth
og einnig listmálara endurreisnar-
tímans.
Storkurinn hefur selt Rowan-
garn í hátt í tvo áratugi. Ull, móher
og silkiblöndur koma þar við sögu.
„Mjög fínt garn og litirnir eru
himneskir. Vissulega dýrt enda er
Storkurinn sælkeraverslun hann-
yrðakonunnar,“ segir Guðrún
brosandi og bendir á að mikil
vinna sé í að prjóna fína peysu.
Ekki sé heldur um einnotaflík að
ræða heldur eilífðarfjárfestingu.
Guðrún kveðst vera með garn í
öllum verðflokkum og segir áhuga
á prjóni og hekli mikinn um þess-
ar mundir. „Hannyrðir eru ástríða
hjá mörgum,“ segir hún. „Það er
ríkt í eðli okkar að nota huga og
hönd til að skapa.“
gun@frettabladid.is
Stríðsárastíll og renessans
Rowan, eitt framsæknasta prjónahönnunarfyrirtæki heims, gerir fortíðinni hátt undir höfði í viðamiklu
hátískublaði í tilefni 30 ára afmælis. Storkurinn í Kjörgarði er með umboð fyrir Rowan.
Afturhvarf til stríðsáranna einkennir
þessa peysu.
„Storkurinn er sælkeraverslun hannyrðakonunnar,“ segir Guðrún Hannele. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA