Fréttablaðið - 27.11.2008, Blaðsíða 80
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Dr. Gunna
Inni í mér syngur Bonní Tyler smellinn sinn Holding out for a
hero. Ég og Bonní þurfum sárlega
hetju í líf okkar þessi misserin.
Þar sem engin íslensk hetja er í
sjónmáli hef ég brugðið á það ráð
að hengja plakat af Barack Obama
upp á vegg heima hjá mér. Það er
skárra en ekkert.
ÉG þarf ekkert endilega að líta
svo rosalega upp til hetjunnar –
hetjur eru jú bara fólk sem fer á
klósettið og svoleiðis – ég verð
bara að geta treyst henni hundrað
prósent. Ég þarf að geta treyst
hetjunni til að fullnægja réttlæt-
inu sem ég og landsmenn öskra nú
á með öllum líkamanum. Ég þarf
að geta treyst henni til að hugsa
um hag landsmanna allra, ekki
bara ríkasta laginu. Ég þarf að
geta treyst henni til að gera það
besta úr þeirri aumkunarverðu
stöðu sem við sitjum föst í. Ég
þarf hetju sem kveikir bjartsýni
og von. Hetju sem lætur mér finn-
ast það á mig leggjandi að halda
áfram að vera Íslendingur.
KANNSKI er skíturinn svo djúp-
ur að það þarf ekkert minna en
ofurhetju til að redda þessu. Ég
læt mig því dreyma um Kreppu-
mann. Hann lætur verkin tala.
Kreppumann tekur í lurginn á
útrásarvíkingunum. Þeir líta allir
út eins og galgopalegir hnakkar og
hafa sama viðhorfið: Ég græði og
fokk jú. Það duga engin vettlinga-
tök á þetta lið. Landsmenn fagna
þegar Kreppumann flýgur hring
um landið með alla útrásarhnakk-
ana spriklandi í neti. Auðvitað er
hann búinn að frysta eigur þeirra
og setja upp í skuldirnar. Og snáf-
iði svo og komið aldrei aftur, segir
Kreppumann og sparkar þeim út
úr landhelginni.
KREPPUMANN tekur til í Seðla-
bankanum. Takk Kreppumann,
segir Þorvaldur Gylfason í nýja
djobbinu. Ekki málið, segir
Kreppumann og flýgur burt með
úfnu duglausu belgina. Næst er
það Alþingi og Bessastaðir. Takk
Kreppumann, segja landsmenn og
hefja uppbygginguna í ólgandi
bjartsýniskasti.
AUÐVITAÐ kemur enginn
Kreppumann. Margir gera samt
sitt besta. Trúbadorar, leikarar og
skáld fara mikinn, velmeinandi
hagfræðingar koma sterkir inn og
ég hló með verkakonunni Mar-
gréti þegar hún dissaði hnípinn
skógarkött. Enginn þessara er þó
á leiðinni upp á vegg hjá mér, held
ég. Það er svo sem allt í lagi. Eins
lengi og landhreinsunin fer fram.
Ofurhetjan
Kreppumann
10.35 13.15 15.55
10.41 13.00 15.18
Í dag er fimmtudagurinn 27.
nóvember, 332. dagur ársins.
3.300 kr. 2.600 kr. 2.900 kr.
3.400 kr. 3.500 kr. 3.500 kr. 3.700 kr.
3.700 kr.
700 kr.
1.500 kr. 3.700 kr.
Allar bækur í Eymundsson eru með
skiptimiða þannig að hægt er að skipta
jólagjöfunum til 10. janúar 2009.
Skemmtilegar vökunætur
á spennandi verði
3.700 kr.