Fréttablaðið - 29.11.2008, Síða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
LAUGARDAGUR
29. nóvember 2008 — 327. tölublað — 8. árgangur
38
FÓTBOLTI Eiður
Smári Guðjohn-
sen lýsti því
yfir í spænsk-
um fjölmiðlum
að hann ætlaði
að velja sér
landsleiki í
framtíðinni.
Samkvæmt
úttekt Frétta-
blaðsins er það
ekkert nýtt að
Eiður Smári missi af landsleikjum
því hann hefur aðeins spilað 12 af
38 vináttuleikjum Íslands frá
árinu 2000. Eiður Smári skilar líka
mun minna til landsliðsins í
æfingaleikjunum en hann gerir í
landsleikjum í undankeppnum
HM og EM.
- óój / Sjá íþróttir bls. 82
Eiður Smári Guðjohnsen:
Mætir ekki vel
í æfingaleikina
DAVÍÐ ÞÓR OG KRISTÍN HELGA Á RÖKSTÓLUM
Krakkarnir eiga eftir
að redda þessu
ENGIN AFSÖGUÐ
HAGLABYSSA
Guðmundur Andri
Thorsson er í and-
spyrnu við stefnu
íslenskra bókmennta
VIÐTAL 26
Slegist um Aron
Það er hart barist um
þjónustu handbolta-
kappans Arons Pálm-
arssonar þessa dagana.
ÍÞRÓTTIR 80
H j á l p a r s t a r f k i r k j u n n a r
Mánuðirnir fyrir jól eru venjulega annatími hjá Vilborgu Oddsdóttur, félags-ráðgjafa, sem veitir inn-anlandsstarfi Hjálparstarfs kirkjunnar forstöðu. Vilborg hefur unnið í sex ár hjá Hjálparstarfi kirkjunnar en þangað leita margir fyrir jólin með beiðni um aðstoð. Matarúthlutun og aðstoð er þó allt árið um kring og segir Vilborg aukninguna greinilega í ár: „Ef við berum saman júlí, ágúst og september, þá er 20% aukning milli ára. Við finnum það á haustin þegar skólinn er að byrja, þá eiga sumir ekki fyrir skólavörum. Þegar fólk hefur takmörkuð fjárráð og matvælin hækka, þá hreinlega endast pen-ingarnir ekki.“
Í október sóttu 286 um aðstoð sem er 100% aukning frá sama tíma í fyrra og svipað er uppi á teningnum hvað nóv-ember varðar. „Um 95% eru að koma til að fá mat og það er aðalaðstoðin sem við veitum. En við veitum einnig aðstoð vegna lyfja og vegna barna, til dæmis til að styðja við skólagöngu þeirra.Við finnum núna að hluti fólks er í virkilegum vandræðum, en margir glíma meira við andlega vanlíðan en fjárhagslega. Fólk erekki endilega k ið
Við bjóðum upp á viðtöl fyrir þá sem koma. Fólk getur komið í viðtöl hér á miðvikudögum og fimmtudögum án þess að panta tíma. Við höfum samstarf við prestana hér í húsinu og félags-ráðgjafa hjá Fjölskylduþjón-ustu kirkjunnar til að geta sinnt öllum sem koma. Ég hef í sjálfu sér ekki áhyggjur af jólunum, en ég hef miklar áhyggjur af því hvernig fer eftir áramót, þá verður fólk í auknum mæli búið með öll önnur úrræði því að það er ekki það fyrsta sem fólk gerir að leita til hjálparsamtaka. Oft líða nokkrir mánuðir áður en ástand-ið verður þannig.Við höfum fengið sjálf-boðaliða fyrir úthlutunardagana, miðvikudaga og fimmtudaga. Höfum ekki þurft slíkt áður nema fyrir jól og páska. Það hefur reyndar gengið mjög vel. Fólk hefur hringt og boðið aðstoð, frábært fólk, sem t.d. hefur verið að vinna í bankageir-anum og misst vinnuna og vill gjarnan vera virkt. Við höfum fengið mikið af mjög góðum sjálfboðaliðum.“
JólaúthlutuninHjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands og Mæðrast k
nefnd standa saman að úthlutun fyrir jólin. Í fyrra nutu 1500 fjölskyldur aðstoðar, sem var fækkun frá fyrra ári, en í ár er búist við aukningu, hugsanlega um 2000 fjölskyldum en Vilborg segir þó erfitt að segja til um það fyrirfram. Jólaúthlutunin er með öðrum hætti en venjubundnar úthlut-anir Hjálparstarfs kirkjunnarAllir sem þ f
Mæðrastyrksnefnd eða í gegnum djákna hjá Öryrkjabandalaginu. Umsókn er nauðsynleg svo að samtökin viti hversu miklu þarf að dreifa og geti undirbúið það. Þau sem búá úti á landi geta sótt um hjá prestum. Matarpakkar eru sendir til fólks í grennd við höfuðborgarsvæðið og á Akur-eyri er aðstaða til að d il úf
hjálparstofnana ákaflega mik-ilvægt. „Það er grundvallaratriði í þessum erfiðu aðstæðum að fólk þurfi ekki að fara á marga staði til að leita aðstoðar. Það á að mæta þeim af virðingu og það á að fá aðstoð við hæfi, eftir því sem hægt er.“
Viðurkenning á starfi hjálparsamtakaNúverandi ástand hefur leitt til þess að samstarf hjálparsam-taka og hins opinbera er meira á dagskrá. Það er ákveðin við-urkenning á því að það sé þörf fyrir samtök eins og okkar. Við höfum sveigjanleika og getum brugðist fljótt við aðstæðum, sem eðlilega tekur eitthvað lengri tíma hjá hinu opinbera. Við getum aðstoðað þau sem falla á milli reglugerða, t.d. þau sem ekki eiga rétt á atvinnuleys-isbótum strax, ekki rétt á fram-færslu hjá félagsþjónustunni næstu mánuði, eru yfir viðmið-unarmörkum sveitarfélaganna, eins og allir sem eru á atvinnu-leysisbótum. Við getum brugðist við þessu og veitt aðstoð straxÞetta hef l
Beiðni um aðstoð hefur tvöfaldast
Vilborg Oddsdóottir félagsráðgjafi Hjálparstarfs kirkjunnar.
VEÐRIÐ Í DAG
Opið 10-18
BJART SYÐRA Í fyrstu verður
norðan stormur við SA-ströndina,
annars mun hægari. Snjókoma
eystra, stöku él norðan til en bjart-
viðri sunnanlands og vestan. Frost
4-15 stig, kaldast til landsins.
VEÐUR 4
-6 -5
-3
-5-5
VIÐSKIPTI „Gjaldeyrishöftin eru
högg fyrir Kauphöllina og stefna
hlutabréfamarkaði í tvísýnu,“ segir
Þórður Friðjónsson, forstjóri Kaup-
hallar Íslands.
Erlendir fjárfestar eru umsvifa-
miklir í nokkrum stærstu félaga
Kauphallarinnar og sitja þar nú
fastir miðað við ströngustu skil-
greiningu á lögum um gjaldeyris-
viðskipti sem samþykkt voru á
Alþingi í fyrrinótt.
Í stefnuyfirlýsingu Seðlabankans
frá í gær segir að gjaldeyrishöml-
urnar verði afnumdar í áföngum og
verði hömlum vegna fjármagns-
hreyfinga aflétt eins fljótt og
aðstæður leyfi.
Þórður og fleiri heimildarmenn
blaðsins telja líkur á að kauphallar-
félög óski eftir afskráningu hér og
telji hag sínum betur borgið á
erlendum hlutabréfamarkaði. Jafn-
framt telur Þórður hættu á að við-
skipti verði útilokuð með bréf fær-
eysku félaganna fjögurra, sem hér
eru skráð, nema með sérstakri und-
anþágu frá Seðlabankanum.
„Ég vona að menn finni leiðir til
að koma í veg fyrir að færeysku
félögin hrekist af markaðnum,“
segir Þórður og bætir við að hætta
sé á að hömlurnar hægi fremur á
aðlögun efnahagslífsins og seinki
bata. Þá vonast hann til að gjaldeyr-
ishömlurnar séu til skamms tíma,
enda séu þær síst til þess fallnar að
efla traust á krónunni.
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður
greiningardeildar Kaupþings, segir
ljóst að gjaldeyrishöftin vinni tíma
og skammtímatjóni kunni að hafa
verið forðað vegna þess að efna-
hagslífið hafi ekki verið reiðubúið
til að takast á við fleytingu krón-
unnar sem hefði mögulega falið í
sér mikla hækkun vaxta og útflæði
fjármagns.
„En allt veltur þetta á næstu
skrefum,“ segir hann og kveður
einu röksemdina með gjaldeyris-
höftum nú vera að næstu þrír mán-
uðir verði notaðir til þess að bæta
stöðuna og auka líkur á að fleyting
krónunnar heppnist að þeim tíma
loknum. „Gjaldeyrishöft hafa lam-
andi áhrif á atvinnulífið og skelfi-
leg tilhugsun eigi þau að vara í
lengri tíma. Þetta hlýtur að vera
skammtímaráðstöfun meðan hugað
er að þáttum á borð við að tryggja
betur starfsgrundvöll bankanna,
losun á krónustöðum erlendra spá-
kaupmanna eða eflingu trúverðug-
leika Seðlabankans. Síðan verður
ekki flúið að krónan lúti lögmálum
framboðs og eftirspurnar.“
Þá segir Ásgeir að yfirlýsing um
að taka ætti upp aðildarviðræður
við Evrópusambandið myndi auka
líkurnar á að fleyting krónunnar
heppnist. „Þá kæmist í augsýn að
Myntbandalag Evrópu myndi kaupa
upp krónur og væntanlega á hærra
gengi en núna er.“
Eins segir Ásgeir þyngra um vik
að efla trú á krónunni eftir að gjald-
eyrishöftum hefur verið komið á,
því sú aðgerð í sjálfu sér auki van-
traust á gjaldmiðlinum þar sem
fjárfestar muni óttast að lokast
aftur inni með óseljanlegar krónu-
eignir. -jab, óká / sjá síður 6 - 11 og 16
Höftin lama Kauphöllina
Forstjóri Kauphallarinnar segir ný lög um gjaldeyrisviðskipti setja hlutabréfamarkaði miklar skorður. Stórfyr-
irtæki kunna að hverfa úr landi. Gjaldeyrishöft gætu unnið tíma á meðan hugað er að næstu skrefum.
DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur
ákært þrjá menn fyrir tilraun til að
kúga tugmilljónir króna út úr
manni. Þá er einn þremenninganna
ákærður fyrir ofbeldisbrot að auki
og annar fyrir fíkniefnabrot. Menn-
irnir eru á þrítugs- og fertugs-
aldri.
Þeir eru ákærðir fyrir að hafa í
apríl ruðst inn í skrifstofuhúsnæði
þess sem kúga átti, þar sem hann
var við störf. Þeir ógnuðu honum
með öxi, hamri og klaufhamri sem
þeir höfðu meðferðis. Þeir hótuðu
manninum líkamsmeiðingum
greiddi hann ekki tugmilljónir
króna, sem einn innrásarmannanna
taldi hann skulda. Innbrotsmenn-
irnir hurfu á brott eftir að maður-
inn hafði lofað að greiða þeim þrjár
milljónir króna á tilteknum degi.
Þá er einn innrásarmannanna
ákærður fyrir að hafa á ófyrirleit-
inn hátt stofnað lífi og heilsu
mannsins sem þeir voru að kúga í
hættu, þegar sá fyrrnefndi fleygði
klaufhamri í átt til hans. Hamarinn
hafnaði í hillu nokkrum sentimetr-
um frá höfði mannsins.
Annar innbrotsmannanna er svo
ákærður fyrir fíkniefnabrot. Hann
var í apríl tekinn með fíkniefni á
sér og heima hjá sér. - jss
Þrír menn ákærðir fyrir að ógna manni með öxi og klaufhamri:
Reyndu að kúga út tugmilljónir
EIÐUR SMÁRI
GUÐJOHNSEN
NUNNUR UNDIRBÚA JÓL Nunnurnar í Karmelklaustrinu í Hafnarfirði opna í dag hið árlega Jólaþorp með því að kveikja á jólatré á
Thorsplani. Í jólahúsunum verður boðið upp á handverk og ýmsan jólavarning. Við opnunina skemmta Raggi Bjarna og Tjarnar-
systur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Gjaldeyrishöft hafa lam-
andi áhrif á atvinnulífið
og skelfileg tilhugsun eigi þau að
vara í lengri tíma.
ÁSGEIR JÓNSSON
FORSTÖÐUMAÐUR HJÁ KAUPÞINGI