Tíminn - 16.02.1982, Page 1

Tíminn - 16.02.1982, Page 1
--------------------------------------------^ Skákskýrandi Tímans í dag: Helgi Ólafsson TRAUST OG FJÖLBREYTT > FRÉTTABLAD! Þriöjudagur 16. febrúar 1982 36. tölublað — 66. árg. ** '< \ Hí ■Oftmlon SkjoMhwniMo: Krigstid, kjærleik, komikk Skjald Noregi — bls. 2 Hvað kostar fiskur? — BLS. 14 Kokka- raunir I- BLS. 22 Skemmdarverk unnin á listmunum sem sýna átti hér á landi: „ÓBÆTANLEGT TJÓN" — segir Ann Sandelin, forstöðumaður Norræna hússins ■ ,,Það voru gamlar listasmiðar. í eigu Nor- diska Museet i Stokk- hólmi, sem komu skemmdar úr gámi sem sendur var hingað til lands frá Kaup- mannahöfn og innihélt muni sem eiga að fara á Samasýninguna sem við erum að fara að opna hér i Norræna húsinu.” sagði Ann Sandelin. forstöðumað- ur Norræna hússins þegar Timinn spurði hana um þetta mál i gær. „Þa6 voru þrir kassar sem búi6 var að rifa upp og skemma. Við vitum ekki enn hvernig, en allar likur benda til að skemmdirnar hafi verið unnar úti i Kaupmannahöfn, þvi gámurinn var innsiglaður áður en hann fór i skip.” — Hvað var þaö sem skemmdist? ,,Það vantar þrjá hluti og sex voru skemmdir. Þetta eru smá- hlutir, svona nytjagripir sem samarnir notuðu i daglegu lifi, t.d. öskjur úr hreindýrabeini, snældur, skálar og flaska úr hreindýrabeini. — Þetta er mikið tjón? ,,Já, það er óhætt að segja að þetta sé óbætanlegt tjón, þvi margir þessara hluta eru mjög sjaldgæfir,” sagði Ann. — Sjó. Manhattan- málið: , „STAÐAN I EINU ORÐI SAGT ÖMURLEG” ■ „Staðan i þessu máli er i einu orði sagt ömurleg. Viö sögðum upp og gengum út 31. jan. sl. þegar mörg okkar áttu enn inni desemberlaunin og eygðu enga von um að fá janúarlaunin á næstunni,” sögðu rúmlega 20 fyrrum starfsmenn veitingahússins Manhattan á fundi sem þau héldu i gærkveldi, en þá biðu þau, 26 talsins svara frá eigend- um Manhattan, um það hvort þau fengju launin fyrir janúar- mánuð greidd. Sögðu þau að annar eigand- inn, Baldvin Heimisson vildi greiða þeim, en Samúel Grétar Sveinsson, þvertæki fyrir það. ,,Viö erum búin að lána launin okkar til langs og skamms tima i allan vetur,” sagði einn tals- maöur s ta r f sm a nna n na , Gunnar Þór Jóhannsson, ,,og það má segja að staðurinn hafi verið meira og minna rekinn á okkar launum i vetur. Við erum búin aðfá nóg af þessu, og erum nú komin meö lögfræðing i mál- ið fyrir okkur.” Sögðust þau eiga inni hjá eigendunum um 100 þús. krónur fyrir störf unnin i janúar. „Afstaða min mótast einfald- lega af þvi að hér er um janúar- laun að ræða, og þessir krakkar hættu fyrirvaralaust 31. janúar. Þetta er flestfólksem er búið að vinna 3 mánuði eða lengur, og ég vil þvi athuga það frá réttar- farslegu sjónarmiði hvort það getur hætt fyrirvaralaust,” sagði Samúel Grétar Sveinsson, annar eigenda Manhattan, þegar blm. spurði hann hvers vegna hann neitaði að greiða fólkinu laun. Eigendurnir hafa nú ráðið fólk i stað þess sem hætti um slðustu mánaðamót, þannig að Manhattan er ekki hætt, þótt að allir þessir starfsmenn hafi hætt hjá fyrirtækinu. —AB Frá fundi starfsfólks Manhattan i gærkvöldi. Timamynd: Róbert.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.