Tíminn - 23.02.1982, Síða 1
Landvernd eða landeyðing — bls. 8-9
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
FRÉTTABLAÐ!
Þriðjudagur 23. febrúar 1982
42. tbl. 66 árg.
Síðumúla 15— Pósthólf 370 Reykjavík— Ritstjórn 86300 — Auglýsingar 18300 — Afgreiðsla og áskrift 86300— Kvöldsímar 86387 og 86392
---------------- Landbúnaðarráðherra um þrengingarnar á Noregsmarkaðinum:
Aldarafmælið:
Fjölmenrii
í hófum
Búnaðar-
þingid
— bls. 4-5
bls. 2
SKAKM
Iteykjavskur-
skákmótið
___________
ENGAR BREYTINGAR
A FRAMLEIÐSLUSTEFNII
■ „Þrátt fyrir þrengingar okk-
ar á Noregsmarkaöi tel ég enn
ekki forsendur fyrir þvi aö
hverfa frá þeirri framleiöslu-
stefnu sem viö höfum fylgt
siöustu tvö árin”, (þ.e. aö
mjólkurframleiöslan væri sem
næst viö hæfi innlenda
markaöarins, en sauöfjárfram-
leiöslan i svipuöu horfi og veriö
hefur) sagöi Pálmi Jónsson,
landbúnaöarráöherra i ræöu
sinni viö setningu Búnaöarþings
i gær. En áöur haföi hann
minnst á aö Norömenn kaupi nú
aöeins 600 tonn af dilkakjöti i
staö 2.400 til 2.800 tonna oft áöur.
„Viö veröum aö ieggja enn
meiri þunga og hugkvæmni en
áöur viö markaösmálin. Þótt
ekkert veröi sagt fyrir um
árangur af þvi starfi tel ég enn
eigi fullreynt á þeim vettvangi.
Ég tel einnig timabært aö taka
til athugunar hvort ekki megi
létta eitthvaö þá 9-10 kostnaöar-
liöi sem nú leggjast á útflutn-
inginn. Þaö er vafasamt aö
greiöa svokallaö neytendagjald
til Stofnlánadeildar af útflutn-
ingi þegar útflutningsbæturnar
hrökkva ekki til. Þaö er einnig
vafasamt aö sláturleyfishafar
fái greiddan 3,5% aukakostnaö
vegna útflutnings, ef ekki er um
sérstaka vinnslu á kjötinu aö
ræöa fyrir neytendamarkaö er-
lendis sagöi Pálmi.
„Þá getur einnig veriö álita-
mál hvort heildsölukostnaöur á
útfluttu dilkak jöti á aö vera jafn
þvi, sem selt er á innlendum
markaöi og hvort ekki sé rétt-
mætt, aö heildsöluaöili beri
nokkra áhættu af þvi hvernig til
tekst viö sölu”, sagöi Pálmi.
—HEI
.
■ Tvennt var flutt á Slysadeild eftir árekstur tveggja bila s.l. laugardagskvöld. Areksturinn varð meö þeim hætti að bfll er kom
sunnan úr Lækjargötu ók inn í hlið annars er kom úr Hafnarstræti á leið inn Hverfisgötu. Fullorðin kona og drengur er voru farþegar
hvort I sinum bilnum voru flutt á slysadeild en meiösli þeirra munu ckki hafa verið talin mjög alvarleg.
Bjarni Sæmundsson fann lítið af loðnu:
JAFNVEL MINNA EN
GERT VAR RAD FYRIR
■ „Viö byrjuðum á miðunum
fyrir vestan og niöurstaöan varð
sú að þaðan væri ekki að vænta
gangna af hrygningarloönu á
þessu ári. Síðan fórum við suður
fyrir land — aö beiðni ráðherra
— tilað ganga úr skugga um það
hvort ástandið væri virkilega
eins slæmt óg við höfðum áöur
mælt. En þótt þaö sé aö vísu
mjög erfitt að mæla á þvl svæöi
af ýmsum ástæðum, var þó
sjáaniegt að mjög litið var af
hrygningarloönu á þessu svæöi
og jafnvel minna en við höfðum
gert ráð fyrir”, sagði Hjálmar
Vilhjálmsson, fiskifræðingur,
sem kom úr loðnuleitarleiöangri
meö Bjarna Sæmundssyni nú
um helgina.
Tilganginn meö þessum
leiöangrr sagöi hann hafa verið
tviþættan. Auk leitar og mælinga
á hrygningarloönu „ var
leiöangurinn geröur til að leita
að og mæla hve mikiö væri af
ókynþroska smáloönu, þ.e.
loönu sem veiöarnar á næsta
veiðitimabili verða aö byggjast
á og hrygningin voriö 1983.
„Aö þvi er varöar smáloön-
una olli það vonbrigöum aö viö
uröum vart varir viö neitt af
henni út af Vestfjöröum og
Norðurlandi en eingöngu út af
Austfjöröum. Viö höföum áöur
aflaö okkur gagna sem bentu til
frekar versnandi ástands á
næsta veiðitimabili en verið
hefur og hefur þótt nógu illt. Og
þaö kom ekkert fram núna sem
bendir til þess aö ástandiö sé
betra en gert hefur verið ráö
fyrir”, sagöi Hjálmar. Hvort
taka eigi þaö sem endanlegan
dóm, sagöi hann þó annað mál.
—HEI