Tíminn - 25.02.1982, Blaðsíða 1

Tíminn - 25.02.1982, Blaðsíða 1
Litið inn hjá löggildingarstofunni — bls. 10-11 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTT ABLAÐ! Fimmtudagur 25. febrúar 1982 44. tbl. 66 árg. Rætt við Kuligowski - bls. 5 Heimilis- tfminn: Lokunar- reglur — bls. 19 Leggja- löng — bls. 2 Fasteignasali í Reykjavík handtekinn: KÆRDUR FYRIR FJÁR- DRATT OG UMBODSSVIK ■ „Málið hefur verið i rann- sókn að undanförnu, sem þó er ekki lokið og ástæða kann að vera til að fara itariegar ofan i það og safna frekari gögnum”, svaraði Þórir Oddsson hjá Rannsóknarlögregiunni i gær, þegar Tfminn spurði hann um kæru á hendur ákveðinni fast- eignasölu i Reykjavík, sölu- stjóra hennar og skráðum eig- anda — sem jafnframt er iög- fræðingur stórrar opinberrar stofnunar. En þeir eru kærðir fyrir að hafa gerst sekir um fjárdrátt og umboðssvik i sam- bandi við sölu á ibúð i júni- mánuði s.l. sumar. Þessir forsvarsmenn fast- eignasölunnar voru kallaðir til yfirheyrslu hjá Rannsóknarlög- reglunni nú i vikunni og sölu- maður þá hafður í haldi i sólar- hring. t kærunni kemur fram að sölustjóri hafi tekið við öllum greiðslum af ibúðinni, 170.000 kr., en siðan dregið svo og svo lengi að gera upp við kröfuhafa jafnframt þvi að inna ýmsar þær greiðslur af hendi með ávis- unum fram i timann sem kostað hafi kæranda stórauknar dráttarvaxtagreiðslur af skuld- um. Þegar kærandi loks fær loka- uppgjöreftir margitrekaðar til- raunir og lögfræðiaðstoö kemur i ljós að hann á tæpar 11 þúsund krónur inni hjá fasteignasölunni sem forsvarsmenn hennar neita að afhenda. Samtals hljóðar krafanuppárúmar42þús. kr. Sjá nánar bls. 3 HEI ■ Félag íslenskra bókaútgefenda opnar sinn árlega bókamarkað I dag og verður hann opinn fram til hins 6. mars n.k. Bókatitlar eru um 6000. Markaðurinn er að þessu sinni I sýningarsal Sýningahallarinnar að Bildshöfða 20 og mun margur bókavinurinn rekast þar á góða gripi, sem ekki hafa veriö á boðstólum I áraraðir. Þessi mynd var tekin þegar vferið var aðkoma bókunum fyrir á söluborðum I gær. (Timamynd E!la). Fundur álviðræðunefndarinnar í gær: ÓEINING í NEFNDINNI ■ Á fundi þeim sem haldinn var i álviðræðunefndinni i gær, var samkvæmt heimildum Tim- ans fjallað um það hve margir eiga að fara til viðræðnanna við fulltrúa Alusuisse i Kaup- mannahöfn á þriðjudaginn en skoðanir hafa verið skiptar um það i nefndinni. Ekki náðist ákvörðun á þess- um fundi en upp voru bornar tvær tillögur um það hve margir yrðu i islenska viðræðuhópnum. önnur tillagan var þess efnis að allir 9 i nefndinni færu utan en hin tillagan var þess efnis að að- eins 4 úr nefndinni færu utan. Var ekki tekin afstaða til þess- ara tillagna, en þær ræddar, auk þess sem reynt var að komast að sameiginlegri niðurstöðu um það hvernig skuli staðið að viðræðunum af hálfu Islands, en talsverðrar óeiningar virðist einnig gæta i nefndinni um þann þátt. Er ráðgert að nefndin komi aftursaman nú á laugardag, og þar verði það endanlega ráðið hverjir og hve margir fari til viðræðnar.na. —AB

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.