Tíminn - 26.02.1982, Síða 1

Tíminn - 26.02.1982, Síða 1
Viðtal við Guðmund G. um launaskattinn — bls. 6 TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTT ABLAÐ! Föstudagur 26. febrúar 1982 45. tbl. 66 árg. Stal hefti og falsaði ávísanir ■ Tæplega þritugur maður viðurkenndi við yfirheyrslur hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Akureyri að hafa stolið ávisana- hefti og falsað úr þvi 17 ávisanir að upphæð um 9000 krónur og selt þær. Flestar seldi hann á veit- ingahúsi á Akureyri um siðustu helgi. Að sögn Daniels Snorrasonar, rannsóknarlögreglumanns, var rannsókn þessa máls ekki fylli- lega lokið i gærkvöldi en þá var enn verið að yfirheyra manninn. —Sjó Innbrotá Akureyri ■ Rúmlega tvö þúsund krónum og talsverðu af tóbaki var stolið i innbroti sem framið var i Hafnar- búðina á Akureyri i fyrrinótt. Innbrotið var kært til rann- sóknarlögreglunnar á Akureyri og siðdegis i gær handtók hún tvo unglinga sem viðurkenndu á sig innbrotið og skiluðu þýfinu—Sjó Lyfjaþjófnum sleppt ur haldi ■ Rannsókn i máli mannsins sem fór i tvo togara i Sandgerðis- höfn i janúarmánuði siðastliðnum og eyðilagði i þeim gúm- björgunarbáta til þess að ná úr þeim lyfjum, er lokið og var manninum sleppt úr gæsluvarð- haldi i gær. Að sögn Gisla Björnssonar, yfirmanns fikniefnadeildar lög- reglunnar i Reykjavik, viður- kenndi maðurinn að hafa, auk þess að eyðileggja gúmbátana og stela úr þeim lyfjum, haft með höndum hátt á annað hundrað grömm af hassi á undanförnum mánuðum. —Sjó — segir Hjörleifur Guttormsson, iðnaðarráðherra Hudson■ bindindi — bls. 2 Nkomo sparkað — bls. 7 „Helgar- pakkinn” — bls. 11-18 ■ „Þetta er ögrun við islensk stjórnvöld. Ég er bæði undrandi og vonsvikinn yfir þvi að Alu- suisse skuli taka einhliða ákvörðun af þessu tagi”, sagði Hjörleifur Guttormsson iðnaðar- ráðherra i viðtali við Timann i gærkvöldi þegar hann var spurður álits á skeyti frá Alu- suisse.sem barst formanni álvið- ræðunefndarinnar islensku, siðdegis i gær, þar sem greint er frá þvi að Alusuisse muni ekki mæta til viðræðufundarins, sem ráðgerður hafði verið i Kaup- mannahöfnnk. miðvikudag og að hr. Weib'ef muni ekki geta komið til funda á næstu vikum. „Þetta er auðvitað mikið al- vörumál fyrir okkur Islendinga að verða fyrir endurtekinni reynslu að þvi tagi sem fengist hefur af samskiptum við Alu- suisse, þvi þetta er ekki i fyrsta skiptið sem þeir taka sér frest i málum, ofan i það sem um hefur verið talað”, sagði Hjörleifur og benti á að dráttur á þvi að ræða endurskoðun samninganna, væri Alusuisse að sjáifsögðu i hag. „Atburðir aí þessu tagi hljóta að þjappa mönnum saman um sanngirniskröfur okkar, svo sem hækkun á raforkuverði og aðrar lagfæringar”, sagði Hjörleifur. Hjörleifur sagði að hann, Stein- grimur Hermannsson og Friðjón Þórðarson myndu hittast i dag og ræða hvert næsta skref islenskra stjórnvalda yrði i þessu máli.AB ■ Austurstræti og Lækjartorg breyta slfellt um svip og klæðnaður og tlska hafa sitt aö segja um útlit og yfirbragömannfólksins. En unga fólkið er alltaf sjálfu sér likt, vonir þess.þrár og hugsanir, — sem eng- inn getur samt vitað hverjar eru eða hver getur ráðið I svip hennar þessarar hvað henni er i huga? (Timamynd Róbert). Dagur í líf i Alusuisse hættir einhlida við viðræðurnar í Kaupmannahöfn: „ÞETTA ER OGRUN VIÐ ÍSLENSK STJÓRNVÖLD”

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.