Tíminn - 27.02.1982, Side 16
VARAHLUTIR
Sendum um land allt
Kaupum nýlega
bíla til niðurnfs
Sf m i (91) 7 - 75-51, (91 ) 7- 80-50.
Skemmuvegi 20
Kópavogi
HEDD HF.
Mikið úrval
Opid virka daga
919 • Laugar-
daga 10-16
HEDD HF.
Gagnkvæmt
tryggingaféJag
labnel
HÖGGDEYFAR
QJvarahlutir
Armiila 24
Sími 36510
■ Sigurgeir ögmundsson umsjónarma&ur á vatnsveitusvæóinu.
skýlinu er dælustööin fyrir brunnana til húsa. (Timamynd Ella).
Lóniö hér neöst á myndinni er hinir frægu „Gvendarbrunnar”. t hvíta
■ „Nú má búast við að hinir
gömlu Gvendarbrunnar verði
brátt teknir úr notkun, þvi þetta
er opið vatnsból og gerlamagnið
er stundum full mikið. Þetta
kemur til af þvi hve byggðin er
tekin að færast nærri, alls konar
rusl getur fokið i vatnið og enn er
minkur kominn á svæöið,” segir
Sigurgeir ögmundsson, sem er
eftirlitsmaður Vatnsveitu
Reykjavikur uppi við Jaðar.
Þeir eru ekki margir sem
leggja leiðsina á þessar slóðir nú
og eins liklegt að margir hinna
yngri hafi aldrei séð Gvendar-
brunna, enda er þetta gamla
vatnsból Reykvikinga á vernduðu
svæði.
Gvendarbrunnar eru nú heldur
ekki nema að takmörkuðu leyti
vatnsból Reykvikinga þótt þeir
séu notaðir enn. Meginhluti
vatnsins kemur úr nýjum bor-
holum, einum ti'u talsins og eru
þær sem bera númerin 1 og 5
þeirra stærstar og eru við þær
þrjár dælur.
Þegar við blaðamaöur og ljós-
myndari Timans heimsóttum
Sigurgeir og vatnsveitusvæðið við
Jaðar, sýndi hann okkur m.a.
lokahús vatnsveitunnar, en þar er
nú veriö að búa um nýjustu pip-
urnar sem liggja frá Myllu-
læknum svonefnda. Myllulækjar-
holan, sem ber númerið V-13 var
boruð fyrir 2-3 árum og pipa lögð
frá hennisl. sumar og verður það
ekki litil viðbót við kaldavatns-
birgðir bæjarbúa, þegar hún
MENNINGIN OG
MINKURINN HERJfl
A GVENDARBRUNNA
- rabbað við Sigurgeir Ögmundsson, eftirlitsmann
kemst i gagnið.
Við lokahúsið er tengdur tankur
sem rúmar 1000 rúmmetra af
vatni og er honum ætlað að foröa
þvi að loft komi inn á vatnsveitu-
kerfið ef dælurnar stöðvast af ein-
hverjum orsökum. Mátti sjá inn i
takninn úr lokahúsinu gegnum
glugga á vatnsþéttum dyrum og
náði vatn upp á þær miðjar.
Vatnið i tankinum mundi þó
aðeins endast i 45 minútur, ef hætt
yrði að dæla og þvi ljóst að betra
er að dælurnar hafi undan.
1 gamla húsinu aö Jaðri, þar
sem áöur var rekið barnaheimili
á vegum tepmlara ofl. er nú
teiknistofa Vatnsveitu Reykja-
vikur og þar undirbúa verk-
fræðingar og tæknifræðingar
frekari endurbætur á vatnsveitu-
málum. Ein mesta umbótin varð
1978, þegar tekin var i notkun ný
dælustöð, sem númer 1. Þar er
opin borhola innanhúss og þrjár
dælur. Við gestimir drógum skó
af fótum okkar þegar Sigurgeir
sýndi okkur þar inn, enda mikils-
vert að gæta hins fyllsta hreinlæt-
is meðan gengið var nokkra
metra ,,undir yfirborð jaröar”
þar til komið var aö holunni: —
Þar merlaði'á vatnið undir stál-
t grindum, — vatniö sem senn
mundi verða rjúkandi I kaffi-
könnum niðri I bæ, bullandi á
eldavélum, og freyðandi og
streymandi isundlaugum og bað-
kerum.
Þessar nýju vatnsholur eru
auövitað stórum öruggari fyrir
alls konar óhollustu en Gvendar-
brunnarnir gömlu en sama vatnið
samt sem áður og vonandi að sjö
hundruð ára gömul blessunarorð
Gvöndar hins góða sem hann Ias
yfir brunnum sinum hér áður taki
til borholanna lika. —AM
Laugardagur 27. febrúar 1982
síðustu
fréttir
Höfnuðu boði
borgarinnar.
■ Samningafundur
stóð yfir milli hjúkr-
unarfræðinga og
samninganefndar
Reykjavikurborgar
frá kl. 16 í gær og fram
undir klukkan 21.
Samkvæmt
heimildum Timans
bauð samninganefnd
Reykjavikurborgar á
fundinum i gær að
komið yrði á móts við
aðalkröfu hjúkrunar-
fræðinga, þ.e. um að
laun yröu greidd fyrir-
fram og jafnframt að
fallast á þau atriði
sem boðin voru i
sáttatillögu rikis-
s áttasemjara á
dögunum.
Samninganefnd
hjúkrunarfræðinga
hafnaði þessu boði,
a.m.k. þar til hún
hefði borið það undir
félagsfund á Borgar-
spitalanum, er hófst
um kl. 21 i gærkvöldi.
Blaðburðarbörn
óskast
Timann'i
vantar
fólk til
blaðburðar
I eftirtalin
hverfi:
Kinnahverfi
Hafnarfirði
ISíittmm sími 53703
dropar
í dekkra lagi
■ 1 frétt i sænska dag-
blaðinu Dagens Nyheter
mátti nýlega lesa um
heldur dapurleg örlög
forstjóra i sovéskri
sólgieraugnaverksmiöju.
Einhverjir útreikningar
höfðu skolast til meö
þeim hætti að hvorki
meira nc minna en 13.000
pör af sólgleraugum urðu
svo dökk i framleiðslunni
að ekki grillti i sólina
jafnvel þótt horft væri
beint i hana á heiðrikum
degi.
Nú skyidi maður ætla
að forstjórinn þyrfti ckki
svo mikiö á sólgieraugum
aö halda á þeim dvalar-
stað scin honum yrði
ætlaður eftir mistök af
þessu tagi, en viti mcnn —
refsingin var af mildara
taginu: sekt sem sam-
svaraði einum mánaðar-
launum.
Sögulegar
sættir
■ Mönnum þótti þaö I
anda hinna sögulegu
sátta kaþólsku kirkj-
unnar og kommúnista
suðtir i Evrópu þegar
Þjóöviljinn og Flugleiðir
grófu striðsöxina, — tóku
höndum saman og efndu
til fjölteflis i mesta bróð-
erni.
Nú biða menn bara eftir
þvi að Þjóðviljinn og
Alusuisse efni til sam-
eiginlegrar hópferðar
starfsmanna....
Von ad
spurt sé
• „Davið Oddsson vakti
þegar i Menntaskóia
athygli fyrir stjórnmála-
hæfni sfna, en hann var
Inspector Scholae i
Menntaskólanum i
Reykjavik 1969—1970
(þcss má geta að nú-
verandi formaður Sam-
bands ungra sjálfstæðis-
manna, Gcir II. Haarde,
tók við þvi starfi af
honum). Hann þótti
gamansamur án þess að
vera yfirboðslegur, hug-
rakkur án þess að vera
fildjarfur, ábyrgur án
■ Þetta sáum við
Þjóðviljanum I gær, —
þess að vera einstrengi- slæmt að fá ekki aö vita
ingslegur.” fornafnið á þeim vonda
manni Alusuisse.
Cr Moggagrein eftir
Hannes Hólmstein.
Greinin ber yfirskriftina:
„Hvers vegna eru menn
sjálfstæðismenn?” Það
er von að spurt sé.
Krummi ...
skilur ekkert i þeirri
ósvifni Alusuisse að
ætiast til þess að iönaðar-
ráðhcrra geti bara beiðið
og beðið, — þessi maður
skjótra ákvarðana og
framkvæmda....