Tíminn - 05.03.1982, Síða 1
$8*íl •'Tfcírt fcbfcííÍÖJ
Oi
111 v „ • , f
Helgarpakki
og dagskrá ríkisfjölmiðlanna 5/3 til 12/3 ’82
Úr skemmtanalífinu
T rompetleikarinn
Joe Newman f
heimsókn á íslandi
■ Joe Newman, heimsfrægur
trompetleikari sem m.a. hefur
leikið með Count Basie, kemur
til Islands á morgun og mun
dveljast hér i viku. Hann mun
halda hér tónleika, auk þess
mun hann verða með kennslu i
Tónlistarskóla F.l.H. Newman
kemur á vegum Jassvakningar.
Joe Newman er ættaður frá
New Orleans, þar sem hann
fæddist árið 1922. Hann vakti
fyrst athygli með skólahljóm-
sveit Alabama State Teachers
Collage, sem leidd var af Lionel
Hampton. Þar starfaði hann i
tvö ár, á timabilinu 1941-1943
eða þar til i desember 1943, þeg-
ar Newman gekk i Big Band
Count Basies. Með Basie Band-
inu lék Newman næstu fimm ár-
in og kom svo aftur inn i hljóm-
sveitina árið 1952. Siðan þá hef-
ur hann leikið af og til með
Count Basie. Þess á milli hefur
Newman verið með ýmsum
hljdmsveitum, t.d. J.C. Heard
og Illinois Jacquet árið 1947 og
svoleitt eiginhljómsveitir. Má i
þvi sambandi nefna hljómleika-
ferð, sem Newman fór i um
Skandinaviu með eigin sextett,
skipuðum meðlimum úr Basie
Bandinu. Joe Newman hefur
leikið inná plötur fjölda þekktra
jassleikara, s.s. Milt Jackson,
Zoot Sims, Buck Clayton, Tony
Scott og að sjálfsögðu með
Count Basie (t.d. á plötum frá
timabilinu 1952-1958).
Æfingar fyrir fyrstu tónleika
Joe Newmans, sem verða á
Broadway, munu fara fram um
helgina 6.-7. mars. Tónleikarnir
á Broadway verða svo hinn 8.
mars, þar sem Newman leikur
með triói Kristjáns Magniísson-
ar. Einnig mun Kvartett
Kristjáns Magnússonar koma
fram þetta kvöld og Big Band
J.J. Johnson, Friörik Theodórsson og Joe Newman.
’81, undir stjórn Björns R.
Einarssonar. Eins og fyrr segir,
heldur Joe Newman námskeið
við skóla F.l.H. i þessari viku,
sem hann dvelur hér. Einnig
stendur til að trompetleikarinn
haldi til Akureyrar til hljóm-
leikahalds, sem þó er óráðið.
Stefnter að þvi að Joe Newman
komieinnig fram á klUbbkvöldi
annars staðar í Reykjavik, sem
nánar verður greint frá siðar.
Að lokum má geta þess að þetta
er önnur heimsókn Joe New-
mans til Islands, þar sem hann
lék hér við opnun Hótel Loft-
leiða.
—Sjó.
Úr skemmtanalífinu
Can can,
cuban rumba
og cha cha cha
á Broadway
— þegar gamlir nemendur
Hermanns Ragnars
rifja upp kynnin
■ Svana Stefánsdóttir og Þór Bragason rifja kannski upp kynnin á
Broadway i kvöld. Þessi mynd var tekin af þeim 1967.
■ Gamlir nemendur úr Dans-
skóla Hermanns Ragnars, sem
hætti starfsemi íyrir fimm ár-
um, ætla að hittast á Broadway
og rifja upp gömul kynni og
dansspor.
,,Já, við ætlum að stikla á
stóru og rif ja upp þá dansa sem
vinsælir voru meðan skólinn
starfaði,” sagði Hermann
Ragnar, danskennari, þegar
Timinn spjallaði við hann i gær.
„Það má segja að þetta verði
nokkurskonar dansannáll sem
hefst á tangó frá 1919, svo
verður haldið áfram og dans-
aður charleston , boomps-a-
daisy, jive-jitter swing,
watusi/sneeker, can can, euban
rumba, suður-ameriskur cha-
cha-cha og endað á diskóinu. Ég
hef kappkostað við að veija lög
frá liðinni tið sem íólk man
eftir. Mörg þeirra voru vinsæl
og heyrast oft spiluð enn þann
dag i dag.”
— Þátttakan?
„Hún rauk lramúr öllum von-
um, það seldist upp eins og
skot,” sagði Hermann.
—Sjó.
Auglýsendur
Auglýsendur
Þeir sem hafa hug á
að koma auglýsingum á framfæri \ ,,Helgarpakkanum,,
þurfa að hafa samband vid blaðið fyrri hluta viku og alls ekki
síðar en á miðvikudegi
ÞÚ
býrð
vel
og
ódyrt
hjá okkur
18300
¥
¥
¥
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
*
ísiiu
*
*
*
*
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
¥
Miðasala opin daglega frá .
kl. 14.00. Laugardaga og ¥
Elskaöu mig
laugardag kl. 20.30
Súrmjólk með sultu
ævintýri i alvöru
sunnudag kl. 15.
Illur fengur
i kvöld kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Ath. siðasta sýning.