Tíminn - 10.03.1982, Qupperneq 1
TRAUST OG
FJÖLBREYTT
fréttablað:
Miðvikudagur 10. mars 1982
55. tbl. — 66. árg.
Uppstillingar-
nefnd fram-
sóknarmanna
í Reykjavík:
Tillaga
að f ram-
boðslista
samþykkt
— fulltrúaráðs-
fundur á
mánudag
tekur
endanlega
ákvörðun
bretti
bls. 2
■ Uppstillingarnefnd fram-
sóknarmanna i Reykjavik
vegna væntanlegra borgar-
stjórnarkosninga i vor lauk
störfum i gær. Meirihluti
nefndarinnar hefur samþykkt
tillögu aö framboðslista Fram-
sóknarflokksins fyrir kosning-
arnar, sem tekin veröur fyrir á
fundi fulltrúaráðs framsóknar-
félaganna i Reykjavik sem
haldinn verður nk. mánudags-
kvöld. Minnihluti nefndarinnar
sat hjá við afgreiðslu málsins.
Samkvæmt tillögunni veröa
engar breytingar á sex efstu
sætum listans miðað við úrslit
prófkjörs flokksins sem haldið
var fyrir nokkrum vikum, n'ema
lagt er til að Sigrún Magnús-
dóttir færist upp um eitt sæti,
þ.e. úr 4. i 3. og Jósteinn
Kristjánsson sem hafnaði i
þriðja sætinu i prófkjörinu fær-
ist niður um eitt til samræmis.
Eins og fyrr segir verður
fundur fulltrúaráðs fram-
sóknarfélaganna i Reykjavik
haldinn 15. mars þ.e. nk. mánu-
dag kl. 20.30 að Rauðarárstig 18.
Verður þar tekin endanleg
ákvörðun um skipan framboðs-
listans fyrir komandi borgar-
stjórnarkosningar. —Kás
■ 1 Reykjavfk léku börnin sér að snjóþotum og skfðum i gær, en i fyrradag heföu vatnaskiöi átt betur
við eftir stórrigningar hclgarinnar. En þanniger sú veðrátta sem viö búum viö þessi dægrin og ekki um
annað að ræöa en taka henni með bros á vör eins og ungu mennirnir á myndinni. (Timamynd Róbert).
Heimur f
upplausn
— bls. 23
Byggt og búið \
— bls. 9
Aðgerðir lögreglu á Keflavíkurflugvelli dæmdar ólöglegar:
ÖLUIM HEIMILL flÐ-
GANGUR AÐ VELUNUM?
■ Samkvæmt nýlegum dómi i
Bæjarþingi Reykjavikur virðist
sem svo að öllum sé heimill að-
gangur að Keflavikurflugvelli
með öllum þeim gögnum og
gæðum sem þvi fylgja.
Kona nokkur sem handtekin
var á Keflavikurflugvelli árið
1977 stefndi rikissaksóknara og
fjármálaráðherra fyrir hönd
rikissjóðs vegna meintrar ólög-
legrar handtöku og haröræðis
lögreglumanna við framkvæmd
hennar. Álit dómsins var að að-
gerðir lögreglunnar, sem voru
byggðar á reglugerð um útgáfu
og notkun vegabréfa á varnar-
svæðum á Keflavikurflugvelli
hafi verið ólöglegar þar sem
lögin sem hún studdist við væru
löngu fallin úr gildi. „Telja
verður þvi að hún hafi ekki
lengur iagastoð og sé þannig
niður fallin... stefndu gátu
heldur ekki sýnt fram á önnur
atriði sem helgað gátu handtöku
stefnanda”, segir i dómnum.
Var handtakan dæmd ólögmæt
og konunni dæmdar miskabæt-
ur.
Atvik málsins voru þau að
konan var handtekin þegar hún
var að koma út af svokölluðum
„CPO Club” á Keílavikurílug-
velli. Pangað var henni boðið
eftir vinnu en hún vann viö Inn-
kaupadeild Varnarliðsins. Hún
var að tala við leigubifreiða-
stjóra þegar tvo lögreglumenn
bar að og báðu þeir hana um
passa. Sýndi hún þeim starfs-
mannapassa sinn sem útgefinn
var af lögreglustjóranum á
Keflavikurflugvelli. Lögreglan
bað hana um sérstakan gesta-
passa en hann hafði konan ekki.
Kröfðust lögreglumennirnir
þess að hún kæmi meö sér á lög-
reglustöðina. Óskaöi konan
skýringa á þvi sem ekki fengust.
Var hún siðan handtekin með
harðræðum og viö það brákaðist
hún á þumalíingri hægri handar
og marðist á báðum handleggj-
um. Konan haíði þessu til
staðfestingar áverkavottorð frá
lækni. Dóminn kvað upp Hrai'n
Bragason borgardómari.
—Sjó
Heimilis-
tíminn:
x-- > S'