Fréttablaðið - 01.12.2008, Blaðsíða 17
Sölufulltrúar Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Hugi Garðarsson hugi@365.is 512 5447
POTTABLÓM sem hafa ekki verið vökvuð lengi er best
að vökva með því að stinga pottinum á kaf í vatn smástund
og setja hann síðan á disk þannig að blómið geti sogið í sig
vatnið neðan frá. Ef skraufþurr mold er vökvuð ofan frá rennur
vatnið nefnilega bara í gegn.
„Þegar ég skrifaði bókina um
Dag Sigurðarson kom einatt fyrir
að ég sagði fólki hvað ég fengist
við, en það varð að ákveðinni þulu
sem ég þuldi. Eitt sinn var ég
dálítið kenndur á bar þegar stúlka
spurði hvað ég væri að gera og þá
heyrði ég hana segja, upp úr þrjú
að nóttu: „Ef þú kemur með mér
heim skal ég gefa þér málverk
eftir Dag.“ Ég trúði vart eigin
eyrum, en hljóp á barinn, keypti
tvo lokaða bjóra og fór með þá
fyrir aftan bak út í horn, þar sem
ég starði á hana eins og hundur
að bíða eftir bita frá húsbónda
sínum,“ segir Níels um það hvern-
ig málverk eftir Dag komst í
hendur hans, en myndin er í mikl-
um metum þar sem hún hangir á
hvolfi í eldhúsi Níelsar.
„Eftir hálftíma bið veitti hún
mér loks athygli aftur og gaf mér
merki um að við skyldum fara
heim til hennar. Þar sýndi hún
mér málverkið úti í skúr, en þótti
myndefni Dags of áleitið til að
hafa upphangandi innanhúss.
Undir fimm um morguninn tók
ég svo myndina undir hönd og
leið eins og þjófi í dyrunum, sem
ég og sagði henni. Hún samþykkti
að ég væri í raun þjófur að taka
málverkið án þess að gefa annað
en faðmlag og mömmukoss í stað-
inn,“ segir Níels um nakta álfa-
mær Dags í íslensku fjalllendi,
en seinna kom í ljós að bróðir
gefandans taldi sig eiga verkið.
„Ég lít svo á að málverk Dags
sé í geymslu hjá mér þar til bróð-
ir og systir sættast. Dagur sá oft
álfkonur í lifanda lífi, sem hann
reyndi að mála, en þessa málaði
hann á seinni árum sínum, þegar
hann var orðinn illa farinn af
drykkju og útigangslífi,“ segir
Níels sem í Rússlandi ritaði ævi-
söguna Gott á pakkið um magn-
aða ævi hins kjaftfora og drykk-
fellda bóhems, Dags
Sigurðarsonar, sem hélt á vit
feðra sinna árið 1994.
thordis@frettabladid.is
Mynd fyrir mömmukoss
Á íslenskum nóttum geta ævintýri og hið ótrúlega gerst, en það upplifði rithöfundurinn Níels Rúnar
Gíslason þegar hann gekk út í morgunskímuna með málverk eftir Dag heitinn Sigurðarson undir hendi.
Níels, óvart í ranghverfri lopapeysu í stíl við málverk Dags, sem hangir á hvolfi vegna mildilegra áhrifa og minni krafna um sífellt
áhorf. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
STIGAR
Allar mögulegar gerðir og stærðir
smíðað eftir óskum hvers og eins
Beygjanlegir Handlistar & Gólflistar
Loftastigar, Innihurðir, Gerefti
Gólflistar, Franskir gluggar í hurðir
Smíðum Harmonikkuhurðir eftir máli
Bílkerrur úr Áli frá Anssems í Hollandi
Mex - byggingavörur
Sími 567 1300 og 848 3215
www.byggingavorur.com
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
A
T
A
R
N
A
fyrirMatvinnsluvél
MCM21B1, 450 W.
Jólaverð: 19.900 kr. stgr.
Töfrasproti
MSM62PE, 750 W.
Jólaverð: 12.900 kr. stgr.
Sjáið jólatilboðin á
www.sminor.is
Dugguvogi 2 / s: 557 9510 / www.patti.is
Opnunartími : Mánudaga - Föstudaga frá 9 til 18 og Laugardaga frá 11 til 16
Patti húsgögn
landsins mesta úrval af sófasettum
Íslensk
framleiðsla
Borðstofuhúsgögn
Rúm
Náttborð
Gafla
Erum einnig með :
Yfir 200 tegundir af sófasettum:
Svefnsófar/ Stakir sófar
Hornsófar/Tungusófar
kr.89.900,-
verð frá
Smíðum eftir þínum þörfum
VERÐHRUN
Bonn Tunga Verð Kr. 187.900,-