Fréttablaðið - 03.12.2008, Blaðsíða 8
3 739,5 366ár er gildistími samstarfssamnings Háskóla Íslands og Símans, en hann felur í sér umfangsmikið samstarf, meðal annars á sviði rannsókna og nýsköpunar. milljóna króna tap var á rekstri Ríkisútvarpsins á síðasta rekstrarári, en því lauk í ágústlok. Eigið fé stóð í
31 milljón króna í lok rekstrarársins.
milljóna króna tap var á rekstri Spalar eftir
skatta á síðasta rekstrarári, sem lauk 30.
september síðastliðinn. Í fyrra nam hagnaður
282 milljónum.
SÍMA NÚM ER MARKAÐARINS: 512 5000, fax: 512 5301, rit stjorn@markadurinn.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Aug lýs ingadeild: auglys ing ar@markadurinn.is Veffang: visir.is
B A N K A H Ó L F I Ð
Hún er ágæt sagan sem Gauti
B. Eggertsson, hagfræðingur við
Seðlabanka Bandaríkjanna í New
York, kann af því þegar Barack
Obama, sem tekur við forseta-
embættinu vestanhafs á nýju ári,
bauð Timothy Geithner stól fjár-
málaráðherra í ríkisstjórn sinni.
Að því er Gauti segir á bloggsíðu
sinni var hann á morgunfundi
með Geithner, yfirmanni bank-
ans, og ráðgjöfum þegar kallið
kom. Geithner, sem skaust sí og æ
fram til að tala í símann, spurði á
einu augnablikinu: „What do you
think is the appropriate fiscal
stimulus in the next year?“ Ekki
náðist að svara spurningunni
þegar síminn hringdi á ný. Varð
mönnum á orði að þetta hlyti að
vera Obama að bjóða honum stól-
inn. „Öllum á fundinum fannst
þetta ákaflega fyndið,“ segir
Gauti, sem sá það svo klukku-
stund síðar á frétta-
vef að sú hafði verið
raunin.
Já, ráðherra
Kauphöllin hefur útreikning á
nýrri hlutabréfavísitölu eftir ára-
mótin. Vísitalan er í samræmi við
hremmingar í íslensku efnahags-
lífi í kjölfar ríkisvæðingar bank-
anna þriggja og til þess fallin að
endurspegla betur stöðuna sem
komin er upp. Þegar best lét sam-
ræmdist Úrvalsvísitalan fjölda
fyrirtækja á aðallista – kallað-
ist OMX15. Nú eru hins vegar
bankarnir farnir, Stoðir (áður FL
Group) flogið á braut og fleiri á
útleið, svo sem Atorka og Exista,
sem hverfur úr Kauphöllinni eftir
nokkra daga. Eftir standa sex
félög í byrjun næsta árs og
mun Úrvalsvísitalan
e n d u r s p e g l a
það. Þá er bara
að sjá hvort
Ú r v a l s v í s i -
talan rísi eða
lafi áfram.
Sex í Kauphöll
Ráðherra
orkumála?
Tilkynning forsætisráðherra um
tólf aðgerðir til að bæta rekstr-
arumhverfi fyrirtækja vakti
nokkra athygli í gær. Glöggir
menn tóku þó eftir litlu atriði
í tilkynningunni, sem kann að
boða mikil tíðindi. Þar kemur
nefnilega fram að iðnaðar- og
orkumálaráðherra hafi átt sæti í
nefndinni sem mótaði tillögurn-
ar. Hefur sá ráðherratitill ekki
sést áður í opinberum tilkynn-
ingum og þykir benda
til þeirra áherslna
sem Össur Skarp-
héðinsson vill beita
sér fyrir í ráðu-
neytinu. Hefði
ekki mátt bæta
við olíumálaráð-
herra?
45.600
83.900