Tíminn - 24.03.1982, Blaðsíða 4

Tíminn - 24.03.1982, Blaðsíða 4
4 Miðvikudagur 24. mars 1982 Vinna erlendis Þénið meira eriendis I lönd- um eins og U.S.A., Canada, Saudi Arabiu, Venezuela o.fl. löndum. Okkur vantar starfsfólk á viðskiptasviði, verkamenn, fagmenn, sérfræðinga o.fl. Skrifið eftir nánari upp- lýsingum. Sendið nafn og heimiiisfang til OVERSEAS, Dept. 5032 701 Washington ST., Buffalo, NY 14205 U.S.A. Ath. allar upplýsingar á ensku. liöfum VHS iqyadbowi og original spólur í VHS. Opið frá kl. 9 til 21 alla virka daga, laugardaga frá kl. 14— 18 og sunnudaga frá kl. 14— 18. Vörubílar til sölu Úrval notaðra vörubíla og tækja á söluskrá: Man 15240 árg. ’78 meö fram- drifi og bdkka. Chevrolet Subrubon ’76 11 manna með 6 cfl. Bedford dieselvél. Bénz 1513 ’73 Benz 1519 '70 Framdr. og krani. Benz 1413 ’70 Scania 111 ’77 Scania 110 ’75 Scania 110 Super ’74, framb. Scania 85 S '71 Volvo F89 ’72 Volvo N725 '77 Volvo N-10 ’77 5 tonna sturtuvagn á traktor. Vantar eldri traktora á sölu- skrá. Gröfur, toftpressur, bllkrana o.fl. Upplýsingar i sima: 13039. ÉG BYRJAÐI 1. OKTÓBER — ÞETTA ER EKKERT MÁL iJUMFERÐAR \ 4 þingfréttir Ólafur Jóhannesson um ákvörðun iðnaðarráðherra í Helguvíkurmálinu: „VAUNfDSU EDA VAIDMIRRD NEMA HVORT TVEGGJA SÉ” ■ ólafur Jóhannesson utanríkisráðherra lét þung orð falla í garð Hjörleifs Guttormssonar á Alþingi í gær vegna afskipta hans af verksamningnum um rannsóknir við Helguvík. Tilefnið var það að Þorvaldur Garðar kvaddi sér hljóðs utan dagskrár og bar nokkrar spurningar undir iðnaðarráðherra varðandi málið og vildi hann einkum fá að vita hvort stjórn Orkustofnunar væri með í ráðum um að stöðva boranirnar eða hvort ráðherra hefði gert þetta upp á einsdæmi og væri þá spurning um hvort ekki væri um að ræða valdþurrð, þ.e. að ráðherra hafi gengið framhjá lögskipuðum aðilum um ákvarðanir og rift samningum og minnti á orð utan- ríkisráðherra að þar væri um valdníðslu að ræða. Sagði hann að iðnaðarráðherra bæri að skýra aðgerðir sínar í málinu fyrir Alþingi. Hjörleifur Guttormsson rakti afskipti sin af málinu og taldi sig ekki hafa rift samningunum og að það hafi aldrei staðið til af hálfu iönaöarráðuneytisins, en hann hafi óskaö eftir þvi að dokað yrði við meö framkvæmdir á meðan ráðuneytið kynnti sér samning sem gerður var milli Orkustofn- unar og Almennu verkfræðistof- unnar. ólafur Jóhannesson tók siöan til máls og sagði að sér væri ekk- ert fagnaöarefni að þurfa að standa í deilu við samráðherra sinn. ,,En ég verö að segja það”, sagöi ólafur, ,,aö vinnubrögð hans i þessu máli hafa veriö undarleg vægast sagt. 10. mars gefur hann fyrirmæli til orku- stofnunar að hún skuli hætta viö aö efna skriflegan verksamning sem geröur hafði verið. Það þýöir ekki fyrir iðnaöarráðherra að vera að halda þvi fram aö þarna hafi aöeins veriðum góðlátleg til- mæli til Orkustofnunar að ræða. bað eru næg vitni að því aö þetta voru fyrirskipanir frá iönaöar- ráðherra. Enda má nærri geta aö Orkustofnun sem var búin aö skrifa undir verksamning hefði horfið frá þvi aö standa við sin heit heföi aðeins veriö um góðlát- leg tilmæli aö ræöa frá ráðherra. Ég hef sagt um þetta tiltæki að það sé einsdæmi. Mér er ekki kunnugt um neitt dæmi úr isl. stjórnarfarssögu sem er likt þessu, að ráðherra grlpi inn I mál stofnunar, sem aö visu heyri undir hann en hefur þó sérstaka stjórn, og segi henni aö hætta viö að fullnægja skuldbindingum sem hún hefur gengist undir. Ef ein- hver getursýnt mér slikt fordæmi væri mér þökk I þvi. Sem betur fer held ég að fordæmið sé ekki til. Þetta fer ekki saman við þær réttarhugmyndir sem Islending- ar hafa gert sér. Þetta er mjög alvarlegt mál vegna þess aö þarna gæti veriö um að ræða fordæmi. Það gæti verið að einhverjir ráðherrar sem finna til valds sins taki upp á þvi aö beita því á þennan hátt siöar. Nú bið ég eftir þvi að iönaöar- ráöherra bendi mér á fordæmi fyrir aðgerðum sinum i þessu máli. Þau kunna að vera þekkt erlendis, en hér ekki. Það er ágreiningur um þaö málefni sem hér er um að ræða. Viö félagsmálaráðherra höfum deilt um það og deilum, en það er allt annaö mál. Hann gerir sjálf- sagt einhverjar athugasemdir viö minn málflutning varðandi mál- ið. En það sem hér er um að tefla er allt annars eðlis. Ég leyfi mér að halda þvi fram að það sé enginn lagalegur grund- völlur fyrir þessari ákvöröun iðnaðarráðherra, hvort sem það er valdníösla eöa valdþurrð, nema hvortveggja sé. Ég nota ekki orðið valdniðsla eins og það er túlkað I fjölmiðlum lon og don. Ég nota það i lagatæknilegri merkingu. Þaö er ákveöið hugtak þar. Iönaðarráðherra bjóst hálfpartinn við að hann gæti gefiö fyrirspyrjanda úrlausn i málinu. En ég efast um að hann geti skýrt vinnubrögö sin fyrir nokkrum manni. Lagalegan grundvöll vantar. Nú hefur iðnaöar- ráöherra einhverja lögfræðinga sér til aðstoöar i sinu ráöuneyti. Það væri gaman að heyra rök þeirra lögfræðinga fyrir þessum gjörðum. Það er enginn lagalegur grundvöllur undir þessari ákvörðun iðnaöarráðherra. Hún er einstæö og hættuleg sem for- dæmi I íslenskum rétti. Iönaðarráðherra stendur I ströngu. Hann leggur senn út i mikilsveröar viðræður við erlent álfélag. Ég vona að I þvi máli hafi verið lagöur sterkari lagagrund- völlur undir rök hans þar, en i þvi máli sem hér er til umræöu. Ann- ars hjálpi okkur allir heilagir”. Siðan vék Ólafur að þeim fyrir- slætti iönaðarráðherra aö samningurinn milli Orkustofnun- ar og Almennu verkfræðistofunn- ár væri I dollurum en i isl. kr. I fréttatilkynningu frá iðnaðar- ráðuneytinu var þetta talið stang- ast á við Ólafslög, og þyrfti at- hugunar við. Sagðist ólafur hafa heyrt aöorkumálastjóri hafi farið fram á aö verksamningurinn hljóöaöi upp á dollara og væri ekki óeölilegt. Sú ósk væri aftur á móti skynsamleg þegar maöur ■ ólafur Jóhannesson hugsaöitil hvernig gengur til með gengisskráningu ísl. kr. og dollar- ans. „Nú þætti mér gaman að ef iðnaðarráðherra léti þingsvein ná fyrir sig í þessi margumtöluöu lög, sem heita lög um stjórn efna- hagsmála, og fletti upp I þeim og sýndi mér hvar i þessum lögum er að finna þaö ákvæöi sem hann ski rskotar til. Það er hvergi. Það kann að vera að þaö sé i einhverj- um öðrum lögum, en þetta sýnir þann flumbruhátt sem viöhaföur hefur verið i þessu sambandi af þeim I iönaöarráöuneytinu. Sem sagt, þetta er hrein vitleysa”. Þá sagðist ólafur ekkert geta sagt um það á þessu stigi málsins hvort Orkustofnun myndi vinna þau störf sem samið var um og hvort erl. fyrirtæki tæki þau að sér, en vera mætti að Orkustofn- un fengi verkiö allt að einu þrátt fyrir þátt iönaöarráðherra I mál- inu, en söm er gerð hans og hann hefur stofnað samningi Orku- stofnunar I hættu. Utanrikisráðherra sagði að dá- litil deila væri milli sin og félags- málaráðherra um undir hvorn þeirra skipulagsmál á svæðinu heyröu. En samkvæmt fréttatil- kynningu iðnaðarráöherra væri hann einnig farinn að skipta sér af skipulagsmálum og vissi hann ekki til að iðnaðarráðherra hafi nokkurt skipulagsvald og er þar farinn að sækja á félagsmála- ráöherra. Aö þessu máli hefur verið unnið á óvandaðanhátt, eins og að geta ekki vitnað f rétt lög o.s.frv. ,,Ef fara á inn á þær brautir”, sagði Ólafur að lokum, „að ráð- herrar fari að eyðileggja skrif- lega samninga, sem stofnun þeirra hefur gert er það vitavert. Þess vegna eiga þessi vinnubrögð iðnaðarráöherra að verða viti til vamaðar um alla framtið”. Hjörleifur Guttormsson sagöist ekki ætla aö fara aö standa i deilu viö utanrikisráðherra og endur- tók að hann hafi ekki gefið fyrir- mæli um að rifta samningum, og sagði að það væri orðalag Morgunblaðsins. En ástæðan fyrir aö hann bað orkumálastjóra að doka við með framkvæmdir þar sem þær snertu viðkvæma deilu og spumingu um verksvið og valdsvið ráðuneyta. Vildi hann athuga hvort Orkustofnun væri með ólögmætum hætti að hætta sér út á svæði sem gæti komið henni i koll. Þorvaldur Garðar taldi að iðnaðarráðherra hefði ekki svar- að spurningum sinum og að það væri lágmarkskrafa að hann geröi betur grein fyrir máli sinu en gert var. Svavar Gestsson félagsmála- ráöherra.sagði að kjarni málsins væri að bandariski sjóherinn hafi haft I hótunum við islensk stjórn- völd þegar isl. ráöherra óskaði eftir aðfara yfir verk sem stofnun sem heyrði undir hann hafði tekiö aö sér. Hér væri ameriski sjóher- inn að blandasér inn i Islensk inn- anrlkismál og væri slikt athæfi fordæmanlegt. Taldi hann sjálf- sagt að ísl. stjórnvöld beygi sig fyrir slikum hótunum og hafi iönaðarráðherra neitað að sinna hótunum og tók sér þann tima sem hann taldi nauðsynlegan til verks sins. Bandarisk stjórnvöld væru að reyna að reka fleyg i þá pólitisku samstööu sem myndast hefur um núverandi ríkisstjórn. Viö banda- riska sjóherinn og stjórnarand- stöðuna sagðist Svavar vilja segja að það væri ekki ætlunin að láta þaö takast að sú samstaða bresti. Aðrir sem til máls tóku voru Halidór Blöndal, Friðrik Sóphus- son, Kjartan Jóhannsson, Birgir tsleifur Gunnarsson og Geir Gunnarsson. Gunnar Thoroddsen forsætis- ráðherra átti siðasta oröiö og sagði hann að utanrikisráðherra hafi lagt sig fram við aö Islenskir aöilar ynnu sem mest viö rann- sóknir og hönnun verks þess er um ræðir. Nú liggur fyrir sagði forsætisráöherra aö Orkustofnun er reiðubúin að taka verkiö aö sér og taldi hann það æskilegt aö verkið yrði unnið af Islenskum höndum og ættu allir alþingis- mennað geta orðið sammála um það. Oó ■ Hjörleifur Guttormsson ■ Svavar Gestsson ■ Gunnar Thoroddsen ■ Þorvaldur Garöar Kristjánsson

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.