Tíminn - 24.03.1982, Qupperneq 6
Miövikudagur 24. mars 1982
6______________
stuttar fréttir
■ Þorgeir Kristjánsson varaform. Lionsklúbbsins hefur taliö
rétt aöprófa bekkinn en viö hliö hans stendur Stefán heilsugæslu-
og héraöslæknir á Höfn. Mynd Trausti.
„Stóra vandamálid ad fá
ekki sjúkraþjálfara”
HÖFN í HORNAFIRÐI:
Lionsklúbbur Hornai'jaröar
afhenti nýlega Heilsugæslu-
stöðinni á Höfn að gjöf nýjan
þjálfunarbekk fyrir sjúkra-
þjálfun og endurhæfingu. Að
sögn Tryggva Sigurjónssonar
form. Lionsklúbbsins kostaði
bekkurinn um 16.000 kr. (1,6
millj. gkr.) þegar hann var
keyptur í fyrra. „En við biðum
dálitið eftir stólnum sem fylg-
ir og gátum þvi ekki afhent
þetta fyrr en nú nýlega”, sagöi
Tryggvi.
baö var Friðjón Guðröðar-
son, sýslumaður sem tók við
þessari rausnarlegu gjöf fyrir
hönd Heilsugæslustöðvarinn-
ar. ,,Eg var inni i þessu máli
af tveim ástæðum. Bæði er að
ég er formaður rekstrar-
nefndar stöðvarinnar, en einn-
ig er ég i klúbbnum”, sagði
Friðjón.
„Stóra vandamálið er það,
að það er ekki nokkurn sjúkra-
þjálfara að fá út á lands-
byggðina. Stéttin er svo fá-
menn að þörfinni er ekki einu
sinni fullnægt á stærri stöð-
unum svo sem Reykjavik og
Akureyri svo við höfum litla
von. Það væri m.a.s. mikil bót
að geta fengið sjúkraþjálfara
þó ekki væri nema tima og
tima sem læknar hefðu þá
skipulagt verkefni fyrir þá
fyrirfram. En það litur ekki
einu sinni út fyrir að það muni
takast.
Þessi bekkur stendur þvi
nánast eins og góð mubla i dag
og kemur að litlum notum. Aö
visu er hann þó nokkuð not-
aður fyrir röntgenmyndatök-
ur, þvi hann er svo nákvæmur
og gott að hækka hann og
lækka, þó það sé ekki hans
rétta hlutverk”, sagði Friðjón.
Auk þess hefur Lions-
klúbbur Hronaf jarðar töluvert
gert að þvi að styrkja elli- og
hjúkrunarheimilið á staðnum.
—HEI
„Góður
gestur
SKAGAFJÖRÐUR: Um sið-
ustu helgi fengum við Norð-
lendingar góðan gest sem var
Jónas Ingimundarson pianó-
leikari sem hélt ferna tónleika
hér nyrðra.
Fyrstu tónleikana hélt
Jónas á Hvammstanga föstu-
daginn 12. mars, siðan næstu
daga á Blönduósi og Varma-
hlið, en siðustu tónleikar hans
voru á Hofsósi mánudaginn 15.
mars. A efnisskrá hans voru
tvær pólonesur og sex etýður
eftir Chopin auk ballöðu i G-
moll opus 23. Annar hluti
efnisskrárinnar voru myndir á
sýningu eftir Mussorgsky,
hljómlist sem hreif bæði börn
og fullorðna sem á hlýddu.
—H.J.
Listavaka
í Stóru-
tjarnarskóla
S-ÞINGEYJARSÝSLA:
Árleg listavaka Lionsklúbbs-
ins Sigurðar Lúters i Suður-
Þingeyjarsýslu verður haldin i
Stórutjarnarskóla föstudags-
kvöldið 26. mars kl. 21.00.
Að sögn séra Jóns A. Bald-
vinssonar á Staðarfelli fer þar
fram fjölbreytt dagskrá.
Fyrst má nefna að þeir séra
Bolli Gústafsson i Laufási og
Hjörtur Pálsson dagskrár-
stjóri lesa úr verkum sinum.
Þá munu kennarar og nem-
endur Tónlistarskólans á
Akureyri flytja fjölbreytta
tónlist, m.a. mun Róbert
Besdek, bassi, syngja tékk-
nesk og rússnesk lög.
Málverk eftir Kees Visser
og Ulf Ragnarsson verða til
sýnis. Séra Jón sagði aögang
að listavökunni ókeypis að
venju. En veitingar verða
seldar.
—HEI
*
GROHE-
skákmót
■ Hið árlega GROHE-skák-
mót verður haldið i Borgar-
nesi 28. mars 1982 og heíst
mótiö kl. 13og þvi lýkur um kl.
21. Tefldar verða 11 umferðir
eftir Monrad-kerfi. Umhugs-
unartimi fyrir hvern kepp-
enda verður 15 min. á skák.
Þátttaka er öllum heimil og
þátttakendafjöldi ótakmark-
aður. Aðalverðlaun þessa
móts er veglegur farandbikar
sem Þýsk-islenska verslunar-
félagið h/f gefur. Sigri sami
maður 3svar i röð eða 5 sinn-
um alls vinnur hann bikarinn
til eignar. Þrir fyrstu menn fá
verðlaunapening, einnig fá
þeir þrir unglingar, fæddir ’65
og siðar, sem bestum árangri
ná, verðlaunapeninga. Auk
þess verða sérstök vennaverð-
laun. Væntanlegir þátttak-
endur eru vinsamlega beðnir
að mæta meö töfl og klukkur.
borgarf réttir)
Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi:
„ÞJÓNUSTfl SVR
A VISSUM
LEIÐUM OF MIKIL”
■ „Ég tel að þjónusta Strætis-
vagna Reykjavikur á vissum leið-
um sé of mikil”, sagði Kristján
Benediktsson, borgarfulltrúi, á
siðasta fundi borgarstjórnar,
þegar rætt var um rekstur SVR.
Sagði Kristján að farþegum
SVR hefði fækkað frá árinu 1970,
þegar siðasta stóra breytingin
hefði verið gerð á leiðakerfinu,
allt fram á allra siðustu ár, og
virtist sér að bætt leiðakerfi
þyrfti ekki endilega að leiða til
fleiri farþega.
Nefndi hann sem dæmi aö hann
ferðaðist svo til daglega með leið
tvö hjá SVR. Væri sá vagn
sjaldan fullur, og hreinar undan-
tekningar ef allir farþegar fengu
ekki sæti. „Ég fullyrði að þó tiðni
þessarar leiðar yrði minnkuð nið-
ur i 15 minútna frest, þá muni þaö
ekki skipta neinum sköpum”.
Hins vegar benti hann á að með
þessu mætti fækka um einn vagn
á þessari leið SVR.
„Aftur á móti er sjálfsagt að
bæta þjónustu SVR i nýju hverf-
unum, þvi þar er oft örtröð. Ég
held að strætisvagnakosturinn sé
nógur. Hins vegar nýtist hann
ekki á réttum stað á réttum tima.
Þess vegna ógna mér hugmyndir
um að uka þjónustu SVR um 20%,
Skipulag Sogamýrar samþykkt í
andstöðu vid íbúa Gnoðarvogar:
„Þetta fólk hefur
ekki þá heildaryfir-
sýn sem þarf til”
— sagði Kristján Benediktsson,
borgarfulltrúi
■ Borgarstjórn samþykkti sl.
fimmtudag skipulag að Sogamýri
og koma lóöir af þvi svæði til út-
hlutunar i vor. Sjálfstæðismenn
lögðu fram tillögu . um að
ákvörðun yrði frestað fram yfir
kosningar en hlaut hún ekki
stuðning. Töldu þeir að jafnan
hefði verið hörð andstaða frá
hendi minnihlutans i þessu máli
og nú bættust við mótmæli ibúa i
Gnoöarvogi. Þvi væri rétt að
fresta ákvörðun. Þeir minntust
þess hins vegar ekki aö Albert
heföi greitt atkvæði meö skipu-
laginu oftar en einu sinni i
borgarráði og fulltrúi frá þeim
hefði átt þátt i þvi aö velja þá til-
lögu sem nú var til samþykktar.
Mikið var vitnað til umsagnar
borgarlögmanns um erindi ibúa
Gnoðarvogar i umræöunni en þar
hóta þeir aö höfða skaöabótamál
á hendur borginni vegna hins
nýja skipulags. Þar telur borgar-
lögmaöur aö höfuöröksemdir ibú-
anna hafi ekki viö lagarök að
styöjast og bendir jafnframt á að
skaðabótaábyrgö samkvæmt
skipulagslögum sé mjög tak-
mörkuö.
Kristján Benediktsson borgar-
fulltrúi sagði aö þarna væri um
gott skipulag að ræöa sem félli vel
aö umhverfi sinu. Sagðist hann
vera sammála Gisla Sigurössyni
ritstjóra Lesbókar Morgunblaös-
ins um að stefna ætti aö þvi að
berjast gegn „bersvæðapólitik”
Sjálfstæðisflokksins i skipulags-
málum höfuöborgarinnar. Gengi
hún fyrst og fremst út á það að
einangra fólk meö byggð á holt-
um með stórum, auöum,
óbyggðum svæöum þess á milli.
Vegna mótmæla ibúanna sagöi
Kristján, aö þetta fólk heföi ekki
þá heildaryfirsýn sem þyrfti, til
aö geta tekiö ákvöröun sem heild-
inni væri fyrir bestu. Hin nýja
byggö yrði tvimælalaust til hags-
bóta fyrir Reykjavikurborg i
heild.
—Kás
Aform um ao koma
upp 60 km. f járheldri
girðingu
■ Samtök sveitarfélaga á höfuö-
borgarsvæöinu hafa uppi áform
um aö koma upp tæplega sextiu
kilómetra f járheldri giröingu sem
umlykja mun allt höfuöborgar-
svæöið. Er þá veriö aö tala um
þann hluta þess svæðis sem vænta
má aö hægt sé sakir vebráttu og
hæöar yfir sjó aö stunda skógrækt
og aðra „æöri ræktun” meö ein-
hverjum árangri. Fyrirhuguö
giröing fellur saman viö þær
giröingar sem þegar hafa veriö
geröar umhverfis Hafnarfjörö og
Heiömörk þannig aö af u.þ.b. 58
kilómetra löngu girðingarstæöi
eru um 20 kilómetrar þegar girt-
ir.
Hér i Reykjavikurborg hefur
umhverfismálarábi verib fengið
máliö til umsagnar. Borgarverk-
fræðingur hefur þegar lýst yfir
áhuga sinum á þessari giröingu.
„Ég er sammála þvi aö þessi
giröing muni vera mikilvægur
áfangi i þeirri viðleitni aö friða
skógræktarsvæöi á höfuðborgar-
svæöinu fyrir ágangi búpenings”,
segir Þóröur Þorbjarnarson
borgarverkfræðingur.
Segir hann jafnframt aö ástand
afrétta i landnámi Ingólfs öllu sé
ekki nógu gott, þótt ýmislegt hafi
veriö gert á undanförnum árum
sem er þar til bóta. „Til þess að
koma afréttinum sjálfum i viöun-
andi horf þarf i fyrsta lagi aö
giröa hann af frá þéttbýlis-
svæðum og þvi markmiði nær
umrædd girðing vel. I framhaldi
af þvi þyrftu sveitarfélög að beita
sér fyrir þvi að ástand afréttarins
sé lagfært meö skynsamlegri nýt-
ingu hans svo sem takmörkun á
beitartima og með beitingu
itölu”, segir borgarverkfræöing-
ur.
—Kás
eins og nú eru uppi áform um,
sem heföi i för með sér að halla-
reksturfyrirtækisinsykist um 15-
20%. Ég tel að þetta kerfi þurfi
uppstolckunar viö”, sagði
Kristján. _Kás
Nýi versl-
unartíminn í
Reykjavík:
Endanlega
samþykktur
íborgarstjóm
■ Borgarstjórn samþykkti
á siðasta fundi sinum nýjar
reglur um opnunartima
verslana i Reykjavik við
aðra umræöu málsins.
Veröur verslunum hér eftir
heimilt að hafa opið á
laugardögum fyrir hádegi
allan ársins hring, en eins og
kunnugt er var mikið deilt sl.
sumar vegna nýrra reglna
sem bönnuöu alfarið laugar-
dagsverslun aö sumarlagi.
Með þessari breytingu er
opnunartiminn kominn i
mjög svipað horf og hann var
fyrir breytinguna i janúar á
sl. ári. Það er þvi von að
menn spyrji til hvers sú
breyting hafi verið. —-Kás
Fyrsta hæð
B-álmu Borg-
arspítalans
opnuð í lok
þessa árs
■ „Fjármögnun B-álmu
Borgarspitalans hefur aldrei
verið tryggari en einmitt nú”,
sagði Adda Bára Sigfúsdóttir,
borgarfulltrúi, á siðasta
borgarstjórnarfundi, vegna
framkominnar fyrirspurnar
frá Páli Gislasyni, þar að lút-
andi. B’endir allt til þess aö
hægt verði að laka fyrstu hæð-
ina, af sjö, i nolkun fyrir lok
þessa árs.
B-álma Borgarspitalans er
hugsuð til að mæta hjúkrunar-
þörf eldra fólks. Hún er fjár-
mögnuð af rikinu að 85%, en
15% af Reykjavikurborg. Meö
tilkomu Framkvæmdasjóðs
aldraöra hefur fjármögnun
byggingarl'ramkvæmda sem
þessarar gjörbreyst. A þessu
og næstu tveimur árum er
ráðgert að sjóðurinn veiti um
18 millj. kr. til byggingu B-
álmunnar, samkvæmt tillögu
sjóðsstjórnarinnar, sem eftir
á að hljóta staðfestingu ráð-
herra.
Nú er verið að ljúka við
steypuvinnu viö B-álmuna. Er
gert ráð fyrir að hún veröi til-
búin undir tréverk 1. júni n.k.
Er Jivi hugsanlegt aö fyrsta
hæðin verði tekin i notkun i
október á þessu ári.
Eina fyrirsjáanlega vanda-
málið er hvort takist að fá
nægilega marga hjúkrunar-
fræðinga til starfa. Á næstu
vikum er Reykjavikurborg aö
opna hjúkrunardeildir fyrir
aldraða f hinu nýja vistheimili
viö Snorrabraut og á Hvita-
bandinu, en mjög erfiðlega
hefur gengið að fá hjúkrunar-
fræðinga til starfa. —Kás