Tíminn - 26.03.1982, Blaðsíða 1

Tíminn - 26.03.1982, Blaðsíða 1
TRAUST OG FJÖLBREYTT FRÉTTABLAÐ! Föstudagur 26. mars 1982 69. tölublaö — 66. árg. ■ Suðurlandið fórst norður af Færeyjum laust eftir hádegið i gær. Tiu af ellefu skipverjum var bjargað en eins er saknað. Suðurlandið sem er eitt af skipum Nesskips fór frá Þórshöfn snemma I gærmorgun, áleiðis til fslands. Það flutti saltfarm til landsins. Um hádegisbilið kom slagsiða á skipið en þá var suð- vestan stormur og mjög slæmur sjór á þessum slóðum. Skipverjar fóru i gúmmibjörgunarbát og var bjargað fyrst tveimur um borð i litla þyrlu frá varðskipinu Hvita- birninum, og siðan átta i aðra ■ M/s Suðurland. stærri þyrlu sem kom frá Skot- landi. Mikil leit var strax hafin að manninum, sem er saknað og tóku bæði skip og bátar þátt i leit- inni. Hún hafði ekki borið árangur, þegar flugvélar urðu að hætta vegna myrkurs, en skipin héldu áfram að leita. Hvitabjörninn tilkynnti að Suöurlandið hefði horfið af radarnum um klukkan hálf fimm og er talið að skipið hafi þá sokk- ið. SV Sjá nánar á bls. 3 Bækur á leiksviði - Jónas um Don Kíkóta — bls. 19 ■ Eftir hádegið i gær fór sólin að skina i höfuðborginni um stund og það var næstum sumarbiær i loftinu. Og þá var ekki að sökum aö spyrja, brosin fæddust á andliti barnanna og lif færðist i hverja taug...(Tfmamynd Róbert. Orkustofnun og Almenna verkfræðistofan: GAKIU SAMNINGURINN TEKUR GILDI AFTUR! ■ ,,Já, það er rétt, gamli samn- ingurinn var settur í gildi aftur. Orkustofnun skrifaði okkur bréf i gær, þar sem hún sagðist reiðu- búin til að standa við gerðan samning”, sagði Svavar Jóna- tansson, forstjóri Almennu verk- fræðistofunnar i samtali við Tim- ann i gær. „Og okkar samnings- aðili vestur i Bandarikjunum samþykkti með leyfi sjóhersins einhvern tima snemma i dag”, hélt Svavar áfram. Svavar sagðist vonast til að hægt yrði að hefjast handa við framkvæmdir i Helguvik i dag með undirbúningsvinnu. 1 bréfi Orkustofnunar til Al- mennu verkfræðistofunnar segir m.a. „Orkustofnun er reiðubúin til að hefja störf samkvæmt samningnum frá 10. mars að þvi tilskildu að Almenna verkfræöi- stofan fallist á eftirfarandi: Að samningsupphæðin reiknist yfir i islenskar krónur og að fyrir verk- ið verði greitt i islenskum krón- um. Og að Almenna verkfræði- stofan afli heimilda landeigenda til að fara um landiö og að hún geri bandariska verktakanum grein fyrir greinargerð Orku- stofnunar frá 18. mars.” „Ja, viö getum hafist handa strax þess vegna”, sagði Jakob Björnsson, orkumálastjóri i sam- tali viö Timann. „En að svo stöddu get ég ekki sagt hvenær byrjað verður. Jarðboranir byrja á þviaðleggja slóðir og þess hátt-j; ar einhvern tima á næstunni”. — Verða fyrirvararnir virtir?f „Já, það er alveg ljóst. Viöi hlýðuih okkar yfirmönnum, enj þess er að geta að fyrirvararnirj eru bara innanlandsmál. M.a. snúast þeir um það hver skiptir: dollurunum og það er náttúrulega; bara mál milli okkar og Almennu! verkfræðistofunnar”, sagðif Jakob. —SjóJ ff' pakkinri” — bls. 11-18 bls. 7 — Heppnir bls. 2 SUÐURLANDIÐ FORST Heimilis Tfminn: NORÐUR AF FÆREYJUM tíu skipverjum var bjargaö en eins er saknað

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.